Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2010
Vagnhöfða 23 // 110 Reykjavík // Sími 590 2000 // www.benni.is
Toyo Proxes T1R
Eitt albesta
sportbíladekkið á
markaðinum. Ótrúlegt
grip hvort sem er á
blautum eða þurrum
vegum. Draumadekk á
hvaða sportbíl sem er.
Toyo 350
Mjög gott sumardekk
á fólksbíla þar sem
aðaláherslan er lögð á
þægindi og öryggi í akstri.
Dekkin eru
„Low Rolling Resistance“
sem sparar eldsneytis-
eyðslu bílsins.
Toyo Proxes ST2
Frábært dekk á alla
sportjeppa. Þolir
mikinn hraða og
mikið álag í beygjum
eins og myndast á
þungum og kraft-
miklum sportjeppum.
Accelera Alpha
Sumardekk fyrir fólksbíla
á ótrúlega hagstæðu
verði. Frábær dekk undir
alla fólksbíla.
Sumir keyra á íturvaxnari hjól-
börðum en aðrir. Einn þeirra er
Hjörtur Sævar Steinason bif-
reiðasmiður sem lætur fjörutíu
og níu tommu dekkin fleyta
honum þangað sem hann vill.
Hjörtur er aðeins búinn að aka á
bílnum sínum réttan mánuð en á
samt að baki ferð um Sprengisand
og Gæsavatnaleið til Egilsstaða
og fjórar ferðir á Fimmvörðuháls.
Hverrar gerðar skyldi gripurinn
vera? „Það er eiginlega sárt að
segja frá því, vegna þess að ég er
mikill Chevrolet-maður en þetta er
Ford F250, 97-árgerð,“ segir Hjört-
ur kíminn og kveðst bara ekkert
hafa út á Fordinn að setja. „Hann
gerir allt sem fyrir hann er lagt,
mjög vel og ánægjulega.“
Fordinn er sem sagt nýkominn á
götuna en Hjörtur er samt búinn að
eiga hann síðan í desember 2005.
Flutti hann inn frá Bandaríkjunum
óbreyttan sem þýðir meðal annars
að hann var á upprunalegum tut-
tugu og níu tommu hjólbörðum.
Kveðst hafa verið með hann á verk-
stæði af og til síðan vegna hækk-
unarbreytinganna sem var lokið nú
um áramótin. Ýmis smáatriði voru
þá eftir sem hann ætlaði að dunda
við í rólegheitum, meðal annars
málun. En svo var auglýst vetrar-
ferð hjá jeppaklúbbnum 4X4 um
Sprengisand og austur með Vatna-
jökli norðanverðum um miðjan
mars. „Þá ákvað ég að drífa mig og
klára bílinn svo ég gæti farið með.
Skrapp samt til Kanaríeyja í byrj-
un febrúar en undi varla þar af því
ég vissi af verkefninu heima. Mér
tókst samt að ljúka því í tæka tíð og
bíllinn stóð sig með prýði.“
Hjörtur var svo heppinn að
eiga 49 tommu dekkin undir Ford-
inn þegar hann keypti hann, hafði
ætlað þau undir annan Pickup
Chevrolet 2004 sem hann á líka og
er á 38 tommum. „Það varð aldrei
af því að ég breytti Chevrolettin-
um. Við hjónin erum að hugsa um
að aka á honum yfir sumrið og hafa
Fordinn til vetrarferða. Þá þurf-
um við ekki að eiga marga dekkja-
ganga og skipta vor og haust.“
En hvað er það við þessi stóru
hjól sem heillar Hjört? „Bara það
að ég kemst þangað sem ég vil. Ég
geri svolítið að því að veiða og hef
gaman af vetrarferðum í snjó, til
dæmis inn í Landmannalaugar og á
Hveravelli. Þungir bílar þurfa stór
dekk til að ná floti í snjó.“
Íslenskar óbyggðir virðast engin
hindrun fyrir mann eins og Hjört
og hann kveðst aldrei þurfa að
keðja þó á harðfenni sé ekið. „Ég
hleypi bara úr dekkjunum. Þannig
hafa þau miklu betri gripgetu en
keðjur, enda grófmynstruð. Ég var
til dæmis á tveimur pundum þegar
ég fór á Fimmvörðuháls.“ - gun
Kemst þangað sem ég vil
Hjörtur er ánægður með Fordinn á 49 tommunum. „Hann gerir allt sem fyrir hann er lagt mjög vel og ánægjulega,“ segir hann.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gamlir hjólbarðar eru efnismik-
ið hráefni sem auðvelt er að
endurnýta. Franska vöru-
merkið Tadé inniheld-
ur heimilislínu, sem
unnin er úr dekkjum.
Tadé byggðist upp-
haflega utan um bað-
línu þegar stofnandi
merkisins heillaðist
af bað- og handverks-
menningu Miðaustur-
landa á ferðum sínum
þar.
Vörulína Tadé vatt
upp á sig og inniheldur
nú heimilisvörur eins
og hnífapör, lampa
og skálar,
allt unnið af
handverks-
fólki í Mið-
Austurlönd-
um. Endurunnir
hjólbarðar bættust svo
nýlega við vöruúrvalið.
Grófir og slitsterkir hjól-
barðarnir eru sniðnir upp
á nýtt og saumaðir saman
í fötur, bala, körfur og jafn-
vel skó. Sjá.www.tade.fr. - rat
Hráefni í körfur, bala og skó
Balar eða tunnur
undir þvott eða undir
blómin úti á palli.
Ótrúlega
nettir bakkar
miðað við
fyrra hlutverk
gúmmísins.
Gúmmíið er til
dæmis saumað
saman með
grófu snæri.