Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 24
 14. APRÍL 2010 MIÐVIKUDAGUR Vagnhöfða 23 // 110 Reykjavík // Sími 590 2000 // www.benni.is Toyo Open Country All Terrain Frábær alhliða jeppadekk fyrir allar aðstæður. Mjúk og hljóðlát dekk sem skila þér alla leið. Toyo Open Country Mud Terrain Níðsterkt og slitsterkt jeppadekk sem þolir hvað sem er. Frábært akstursdekk á vegum og utan vega. Þolir auðveldlega mjög þunga bíla. Toyo Winter Tranpath S1 Vetrardekk sem er gríðarlega vinsælt til notkunar allan ársins hring. Mjúkt, hljóðlátt og virki- lega endingargott dekk sem hefur slegið í gegn á Íslandi. BFGoodrich All Terrain Áratuga reynsla á Íslandi. Sívinsæl jeppadekk fyrir íslenskar aðstæður, gott grip og frábær ending sem íslendingar kannast við. Bílabúð Benna hefur lagt mikla áherslu á hjólbarðaþjónustu sína undanfarin ár og er í dag umboðsaðili fleiri tegunda af hjólbörðum en nokkru sinni fyrr. Hjólbarðadeild fyrirtæk- isins er orðin mjög umfangs- mikil, sem tryggir hagstæða samninga og gott verð á hjólbörðum til viðskiptavina. Jón Hauksson hjá dekkjadeild Bíla- búðar Benna nefnir fyrst til sög- unnar japönsku hágæðadekkin frá Toyo Tires sem Bílabúð Benna hefur selt frá árinu 2005 og notið hafa mikilla vinsælda hérlend- is. „Viðtökurnar hafa verið frá- bærar hjá landanum og ber þar helst að nefna harðskeljadekkin en þau innihalda brot úr valhnetu- skel í gúmmíinu. Auk harðskelja- dekkjanna bjóðum við upp á sum- ardekk, vetrardekk, harðskelja- dekk, heilsársdekk, jeppadekk og sendibíladekk frá þessum þekkta framleiðanda.“ Mörg önnur þekkt dekkjamerki má finna í Bílabúð Benna og má þar nefna BFGoodrich jeppa- og fólksbíladekk og Kormor- an-fólksbíladekk en bæði merk- in eru dótturfyrirtæki Michelin. „BFGoodrich-jeppadekkin þekkja flestir jeppamenn á Íslandi, enda hefur Bílabúð Benna selt þau dekk í áratugi við góðan orðstír. Við höfum einnig tryggt okkur umboð- ið fyrir Accelera-dekkin, en það eru frábær dekk, sem uppfylla alla alþjóðlega gæðastaðla og eru auk þess á mjög hagstæðu verði,“ segir Jón og bætir við að dekkin hafi verið pöntuð og notuð í reynslu- akstur síðasta sumar og hafi reynst vel í alla staði. „Dekkin voru þá til dæmis prófuð á leigubílum til að fá reynslu af endingu þeirra og út- koman var mjög góð. Auk þess eru dekkin með þeim ódýrustu á land- inu í dag og reynslan af þeim og móttökur viðskiptavina hafa farið fram úr björtustu vonum.“ Bílabúð Benna er þessa dag- ana að opna nýtt hjólbarðaverk- stæði að Tangarhöfða 8 en auk þess sem verkstæðið mun anna þreföldum fjölda bíla á við áður, verður boðið upp á smurþjónustu og bílaviðgerðir. „Á nýja staðnum verða þurrkublöð, perur, rafgeym- ar, bremsuklossar og varahlutir fá- anleg en þjónustuverkstæði Bíla- búðar Benna verður í sama húsi, sem og bón- og þvottastöð þannig að öll þjónusta fyrir bílinn verð- ur til staðar á einum stað. Annars er aðalfókusinn hjá okkur núna að halda verðinu eins lágu og hægt er og við bjóðum til dæmis upp á vaxtalaus kreditkortalán til allt að tólf mánaða til að létta fólki róð- urinn. Okkar markmið er að vörur okkar og þjónusta sé fyrsta flokks í alla staði, og að vöruverð sé eins hagstætt og kostur er.“ Öll þjónusta á einum stað „Okkar markmið er að vörur okkar og þjónusta sé fyrsta flokks í alla staði, og að vöruverð sé eins hagstætt og kostur er,“ segir Jón Hauksson hjá Bílabúð Benna. FRÉTTABLAÐIÐ/LKSDLSLFDJKL ● ÓKEYPIS ÖRYGGIS- SKOÐUN Til að auka öryggi ökumanna og farþega í um- ferðinni er boðið upp á ókeyp- is munsturmælingu og loft- mælingu hjá Bílabúð Benna og Nesdekkjum. Nesdekk mælir mótorolíuna að auki sé þess óskað. Nánar á toyo.is. Á vefsíðunni toyo.is er hægt að skoða úrval af dekkjum japanska framleiðandans Toyo. Bæði er hægt að nálgast tæknilegar upp- lýsingar á síðunni og einnig ná sér í skjámyndir fyrir tölvuna. Toyo-harðskeljadekkin þykja mjög góður valkostur þar sem grip þeirra er frábært án þess að notast þurfi við nagla og minnka þau þar af leiðandi svifryksmeng- un. Hið virta Tire Review Magaz- ine gerir árlega skoðanakönnun meðal sjálfstætt starfandi hjól- barðasala í Norður-Ameríku á hverju ári, og Toyo-dekkin hafa haft vinninginn síðustu sjö ár af átta. Árið 2007 voru dekkin valin „Best Overall Brand“ eða besta al- hliða vörumerkið. Það sem gerir þessa könnun Tire Review Mag- azine sérstaklega marktæka er að það eru hjólbarðasalarnir sjálfir sem gefa dekkjunum einkunn en þeir hafa auðvitað bestu tenging- una við viðskiptavini sína. Burt með svifrykið Toyo-dekkin þykja henta vel í baráttunni við svifryksmengunina.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.