Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 28
 14. APRÍL 2010 MIÐVIKUDAGUR8 ● fréttablaðið ● dekk Hundarnir þurftu meðal annars að hlaupa í gegnum gömul dekk. NORDICPHOTOS/AFP Gömul dekk þurfa ekki að enda á haugunum þar sem þau menga móður jörð. Þau má nýta á ýmsan hátt. Á myndinni má sjá hunda landamæravarða í Hvíta-Rúss- landi sem verið er að þjálfa til starfa. Þeir þurfa meðal ann- ars að hlaupa í gegnum og hoppa yfir gömul dekk. Myndin er tekin á hunda æfingasvæði hersins í bænum Smorgon 130 kílómera norðvestur af Minsk. - sg Notuð til að þjálfa hunda Hin kristna hátíð Sirni Zagovezni er ávallt haldin á sunnudegi, sjö vikum fyrir páska og markar upp- haf lönguföstu sem einnig er ætlað að marka upphaf vorsins. Í gamla daga var algengt að fagna Sirni Zagovenzi með því að kveikja í stórum bálkesti. Ungir og aldnir komu saman við eldinn og báðust fyrirgefningar á öllu því sem þeir gætu hafa gert á hlut hver annars. Ungir menn stukku síðan yfir eldinn en talið var að sá sem stykki lengst yrði fyrstur til að kvongast á komandi hausti. Á myndinni sem hér fylgir eru búlgarskir karlmenn að hlaða bál- köst fyrir hátíðina sem haldin var í smábæ í Búlgaríu í febrúar. Lík- legt er að dekkjabálið hafi verið ansi myndarlegt en þó ólíklegt að nokkur ungur maður hafi viljað stökkva yfir það eldhaf. - sg Dekkjabrenna í tilefni föstu Búlgarskir karlmenn hlaða dekkjum í brennu í tilefni af hátíðinni Sirni Zagov- ezni sem haldin er hátíðleg í febrúar. NORDICPHOTOS/AFP Uppfinning gúmmídekkja er gjarnan rakin til skoska dýralæknisins Johns Boyds Dunlop (1840-1921). Hávaði frá þykkum tréhjólum á þríhjóli sonar Dun- lops, varð til þess að dýralæknirinn fékk árið 1876 þá hugmynd að líma gúmmí utan á þau. Nánar til- tekið tók hann gúmmíslöngu, límdi utan á hana gúmmílengjur til stuðnings og límdi því næst ventil úr fótbolta drengsins á slönguna. Því næst límdi hann þetta á tréhjólin og reyrði með dúk. Að svo búnu fyllti Dunlop slönguna af lofti og varð þar með fyrstur til að nota þrýstiloftfylltan hjólbarða. Dunlop stofnaði síðar fyrirtækið Dunlop Pneumatic Tyre Company sem framleiddi uppfinn- inguna. Hún náði góðri útbreiðslu og átti sinn þátt í að auka vinsældir reiðhjóla og síðar bifreiða. Dýralæknir fann upp gúmmídekkin John Boyd Dunlop hannaði gúmmí- dekk undir þríhjól sonar síns, til að draga úr hávaða sem það olli.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.