Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 26
 14. APRÍL 2010 MIÐVIKUDAGUR Borgardekk (Bakvið Hótel Cabin) Fyrirtækið Arctic Trucks sér- hæfir sig í öllu sem viðkemur jeppum og jepplingum og þjónustar aðila víða um heim. „Við erum alltaf að bæta nýjung- um við okkur, síðast dekkjum frá Dunlop og Maxxis undir mótor- hjól og fjórhjól eftir að við tókum við Yamaha-umboðinu á Íslandi,“ segir Hallveig Andrésdóttir, mark- aðsstjóri Arctic Trucks að Klett- hálsi 3 og bætir við að forsvars- menn fyrirtækisins séu ánægð- ir með að geta bætt frekar við þá dekkjaflóru sem fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum upp á. Hallveig segir að Arctic Trucks hafi í gegnum árin sérhæft sig í jeppum og jepplingum. „Við höfum til að mynda selt eigin hönnun, AT405 38 tommu dekkið, við góðar undirtektir í mörg ár. Það var þróað sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður og hefur nýst hér vel allt árið um kring. Dekkið hefur einnig verið notað í leiðangra erlendis, til dæmis var það notað í leiðangri á segulpólinn með breska bílaþætt- inum Top Gear.“ Vegna þess hversu vel lands- menn hafa tekið þessu íslenska hugviti eru hugmyndir uppi um að hefja framleiðslu á dekkjum í fleiri stærðum að sögn Hallveig- ar. „Við eigum í samskiptum við erlenda aðila en þetta er langvinnt ferli og tekur því sinn tíma.“ Arctic Trucks selur einnig jeppadekk frá framleiðandanum Dick Cepek, sem hefur verið vel tekið hérlendis. „Áralöng reynsla er komin á dekkin sem eru vönd- uð og góð og fást frá 30 tommum og upp í 35 tommur og ganga því undir fjölbreyttan hóp bíla,“ segir Hallveig. Arctic Trucks rekur eigið dekkjaverkstæði en þar að auki verkstæði fyrir jeppabreytingar og almennar bílaviðgerðir. Einn- ig er fyrirtækið með fullkomna skoðunarstöð þar sem viðskipta- vinir geta látið ástandsskoða bíla sína eða bíla sem þeir hyggjast kaupa. „Við finnum að fólk leggur aukna áherslu á að hafa bíla sína í lagi enda ekki margir sem hyggja á endurnýjun í augnablikinu. Fólk vill að fararskjótinn sé í góðu standi fyrir ferðalög innanlands í sumar,“ segir Hallveig. Þess utan selur fyrirtækið ýmsan aukabún- að í bíla, svo sem toppgrindur og farangursbox, sem og húddhlífar og gluggavindhlífar. En Arctic Trucks er ekki ein- göngu með starfsemi á Íslandi þar sem fyrirtækið rekur verk- stæði í Noregi og á í samstarfi við aðila í Brasilíu, Finnlandi, Síberíu í Rússlandi og í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um bílabreyting- ar. „Starfsmenn okkar hafa síðustu misserin verið við störf víða um heiminn. Breytingarnar okkar eru byggðar á reynslu íslenskra jeppa- manna, en reynslan sýnir að þær nýtast ekki síður við aðrar aðstæð- ur til dæmis við akstur í sandi. Við höfum meðal annars gert breyt- ingar á bílum sem notaðir eru við rannsóknastörf og í leiðangra á fjarlægar slóðir, svo sem á segulp- ólinn og suðurpólinn, en segja má að þátttaka í slíkum leiðöngrum sé í raun sú besta gæðaprófun á hönn- un okkar og framleiðslu sem fáan- leg er,“ segir hún. Verkefnin liggja víða Arctic Trucks rekur eigið dekkjaverkstæði en þar að auki verkstæði fyrir jeppabreyt- ingar og almennar bílaviðgerðir. Einnig er fyrirtækið með fullkomna skoðunarstöð þar sem viðskiptavinir geta látið ástandsskoða bíla sína eða bíla sem þeir hyggjast kaupa. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ● SEKT VIÐ NOTKUN NAGLADEKKJA Yfir sumartímann er skylt að aka ekki á negldum vetrardekkjum. Sektir við því að aka á nagladekkjum á tímabilinu 15. apríl til 1. nóvember er 5.000 krónur. Ef negldu dekkin eru, auk þess að vera enn undir bíln- um eftir 15. apríl, orðin uppslitin eða eru skemmd og því háskaleg til aksturs, þá er heimilt að sekta ökumann um allt að 5.000 krónur á hvert ónýtt nagladekk sem undir bílnum er. Nánar á www.fib.is. Dick Cepek FCII Fáanlegt í 30-35“ stærðum og fyrir 15, 16, 17 og 18 tommu felgur. Sterkt og gott alhliða jeppadekk með heils- ársmynstri. Hentar vel fyrir míkróskurð og neglingu. Dick Cepek FC 44 x 18,5 15 Frábært snjóakstursdekk sem jeppamenn þekkja af reynslunni. Hentar vel fyrir míkróskurð og neglingu. AT 405 38 x 15,5R 15 Frábært alhliða jeppa- dekk, mjög hljóðlátt á vegum. Dekkið er míkróskorið og neglan- legt. Kletthálsi 3 // 110 Reykjavík // Sími 540 4900 ProComp AT (All terrain) Fáanlegt í 30-35“ stærðum og fyrir 15, 16, 17 og 18 tommu felgur. Sterkt og endingargott jeppdekk með heils- ársmynstri. Mjög hljóðlátt. Hentar fyrir míkróskurð.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.