Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 2
2 14. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR DÓMSMÁL Tveir karlmenn og tvær konur hafa verið ákærð fyrir fíkniefnasmygl, peningaþvætti og sölu fíkniefna. Hinir ákærðu eru íslensk, karl og kona, svo og par af erlendu bergi brotið. Síðarnefnda parið er ákært fyrir að hafa staðið saman að innflutn- ingi á rúmlega 800 grömmum af kókaíni frá Dóminíska lýðveldinu. Efnin fluttu þau innvortis, en mað- urinn hafði lagt á ráðin um fjár- mögnun og ferðatilhögun vegna smyglsins. Hjúin losuðu sig við efnin á Hótel Fróni á Laugavegi í Reykjavík. Lög- regla fann kókaínið tveimur dögum síðar á dvalarstað mannsins. Sami maður er einnig ákærð- ur fyrir peningaþvætti. Hann seldi fíkniefni fyrir 1,2 milljónir á árunum 2008 til 2009, sem hann hafði sjálfur smyglað til landsins. Íslenska konan, sem ákærð er í mál- inu, geymdi fíkniefnaágóðann fyrir manninn. Maðurinn hafði einnig látið hana fá kókaín og marijúana, auk þess sem hann lét íslenska karl- manninn ákærða fá kókaín til að selja. Íslendingurinn er því ákærð- ur fyrir kókaínsölu en einnig pen- ingaþvætti þar sem hann var í vit- orði með konunni um geymslu á fyrrnefndum fíkniefnagróða. - jss INNVORTIS Parið var með nær kíló af kókaíni innvortis. Tveir karlmenn og tvær konur ákærð fyrir stórfelld fíkniefnabrot: Kókaínsmygl og peningaþvætti PAKISTAN, AP Meira en 70 almenn- ir borgarar létu lífið þegar pak- istanskar herþotur gerðu loftárás á þorpið Sara Walla norðvestan til í Pakistan, skammt frá landa- mærum Afganistans á laugardags- morgun. Talsmaður pakistanskra stjórn- valda viðurkenndi þetta í gær, en sjaldgæft er að stjórnvöld viður- kenni mannfall meðal almennra borgara af ótta við að stuðningur almennings við árásir á herskáa uppreisnarhópa dvíni enn frekar. Íbúi í öðru þorpi á svipuðum slóðum fullyrti að þrettán almenn- ir borgarar hefðu látið lífið í árás á mánudag, en stjórnvöld höfðu hald- ið því fram að sú árás hefði kostað fjóra uppreisnarmenn lífið. - gb Loftárás í Pakistan: Kostaði um sjö- tíu manns lífið Á SJÚKRAHÚSI Hjúkrunarkona sinnir einum hinna særðu eftir loftárásina á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Nær fimmtugur maður hefur verið dæmdur í Héraðs- dómi Norðurlands eystra fyrir að sleppa ógeltum fola í beiti- land í Garðsárdal í Eyjafjarðar- sveit. Þetta flokkast undir brot á búfjárlögum. Folinn fyljaði marg- ar hryssur sem þar voru í haga- göngu. Maðurinn mætti ekki fyrir dóm. Hann var dæmdur til að greiða 250 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppsögu dómsins að telja, en sæta ella fangelsi í átján daga. - jss Braut lög um búfjárhald: Sektaður fyrir lausan graðfola DÓMSTÓLAR Karlmaður á þrítugs- aldri hefur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir þjófnaði og rán. Maðurinn var meðal annars dæmdur fyrir að hafa ógnað starfsmanni í verslun 10/11 með sprautunál fyrr á árinu og hótað að stinga hann og smita af alnæmisveiru. Maðurinn þving- aði starfsmanninn þannig til að opna peningakassa og stal þaðan 28 þúsund krónum. Þá er maðurinn dæmdur fyrir að stela tækjum úr bifreið sem hann braust inn í. Jafnframt fyrir innbrot í íbúðarhúsnæði, þar sem hann stal einnig tækjum. Hann á sakaferil að baki. - jss Dæmdur fyrir rán: Ógnaði með sprautunál LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu rannsakar nú hver kunni að hafa slett blárri málningu á útibú Landsbankans á Laugavegi 77 í fyrrinótt, nótt- ina eftir að rannsóknarskýrslan var birt. Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir að lög- reglu hafi verið tilkynnt um slettumálið. „En þetta er ekki litið alvarleg- um augum þar sem um einangr- að tilvik er að ræða,“ bætir hann við. Málningin, sem slett var á glugga útibúsins, var blá að lit. - jss Skemmdarvargs leitað: Málningu slett á Landsbanka Í dálkinum Frá degi til dags í gær var vitnað í eftirfarandi ummæli Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans: „Ég hef alltaf haft þá trú að það væru, að það væru allt aðrir aðilar sem hefðu átt bankann heldur en hérna, eða sem sagt allt aðrir aðilar keypt bankann heldur en menn hafa sagt. Og mig hefur oft grunað að það væru einhverjir aðrir sem raunverulega ættu hann.“ Rang- lega var fullyrt að Sigurjón ætti þarna við Landsbankann. Ummælin birtust sem útdráttur í kafla um einkavæð- ingu Búnaðarbankans og vísa trúlega til hans. LEIÐRÉTTING LÖGREGLUMÁL Maður á fertugs- aldri var handtekinn í Árbæ þegar hann reyndi að flýja á hlaupum og henti frá sér fíkni- efnum sem reyndust vera kókaín. Þetta var eitt af mörgum fíkniefnamálum sem komu á borð lögreglu um helgina. Í íbúð manns sem var handtekinn í miðborginni fundust kanna- bisplöntur og amfetamín. Þá hafði lögregla afskipti af fjór- um mönnum í miðborginni, sem allir voru með fíkniefni í fórum sínum, ýmist marijúana eða amfetamín. Kona var handtekin með marijúana í Kringlunni og fjórir karlmenn með kannabis- efni víðs vegar á höfuðborgar- svæðinu. - jss Annasamt hjá lögreglunni: Henti kókaíni á harðahlaupum ÖRYGGISMÁL Farþegaþota frá American Airlines lenti til örygg- is á Keflavíkurflugvelli í gær eftir að ljós kom að óþekktar gufur höfðu lekið út í vélinni. Fimm farþegar fundu til ónota og fengu þeir aðhlynningu sjúkra- liðs. Vélin var frá American Air- lines og var á leið vestur um haf frá París þegar lekinn kom í ljós. Vélin, sem er af gerðinni Boeing 767, var með 145 farþega um borð og var suður undan íslenska flug- stjórnarsvæðinu þegar gufunnar varð vart. - gar Öryggislending í Keflavík: Óþekktar gufur í Boeing-þotu ELDGOS Gosinu á Fimmvörðuhálsi er lokið en því lauk í fyrradag. Virknin í eldstöðinni var orðin mjög lítil á sunnudag en fyrir hádegi í fyrradag var smá virkni í einum gígnum. Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðing- ur fékk Jón Kjartansson þyrlu- flugmann til að smella af mynd klukkan ellefu á mánudagsmorg- un og senda honum í kennslu- stund í Háskóla Íslands. „Þetta var mesta „instant“ kennsla sem ég hef tekið þátt í,“ segir Magnús Tumi. Nemendurnir höfðu verið að velta því fyrir sér hvort gos- inu væri lokið en mælar sýndu þá mjög lítinn gosóróa. Síðdegis í gær var gosinu svo lokið og er Guðmundur Hilm- arsson flaug yfir í gær var ekki virkni í gígnum. Magnús Tumi segir ekki hægt að fullyrða að ekki muni gjósa aftur þarna. Ef kvika fari aftur að streyma undir Eyjafjallajökli geti hún hugsan- lega leitað útrásar um gosrás- ina. Eftir því sem lengri tími líði verði það ólíklegra. Enn mælast smáskjálftar undir Eyjafjalla- jökli. Magnús Tumi segir hraunið verða fullstorknað eftir nokkrar vikur, yfirborðið kólni hratt en hraunið á nokkrum mánuðum. - sbt Hraun úr nýrri eldstöð verður fullstorknað eftir nokkrar vikur: Eldgosinu á Fimmvörðuhálsi lokið í bili NÝTT LANDSLAG Gosið á Fimmvörðuhálsi stóð í ríflega þrjár vikur. Þegar nokkrir dagar voru eftir af því höfðu um 1,3 ferkílómetrar af hrauni runnið úr eldstöðinni og hraunið var 10 til 20 metra þykkt. MYND/GUÐMUNDUR HILMARSSON. Skjöldur, er hægt að fá öll bindin hjá Kormáki og Skildi? „Já, við eigum meira en níu bindi og mikið af nýjum bindum.“ Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis er níu bindi og fæst víða í verslunum fyrir 6.000 krónur. Skjöldur Sigurjónsson er annar eigenda Herrafataverslunar Kormáks og Skjaldar. EFNAHAGSMÁL Ný úttekt Seðlabanka Íslands (SÍ) sýnir að 24 þúsund heimili í landinu glíma enn við verulega greiðsluerfiðleika þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda og úrræði fjármálafyrirtækja. Þau heimili sem eru í mestum vanda bera hátt í helming allra skulda vegna bílakaupa og 27 prósent íbúðarlána. Ein af megin niðurstöðum úttektarinnar er að skuldsetn- ing vegna bílakaupa gegni stóru hlutverki í að skapa þann skulda- vanda sem heimilin í landinu berj- ast við. Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hag- fræðingur hjá SÍ, segir mikið hafa áunnist síðan síðasta úttekt bank- ans á skuldavanda heimilanna var unnin, en bráðabirgðaniðurstöður voru birtar síðastliðið haust. Nýju gögnin sýni að um fimm þúsund heimili hafi nú getu til að standa undir skuldum sem gátu það ekki áður. „Þessi úttekt gerir okkur ekki síst kleift að kortleggja þann hóp sem enn er í vanda. Það eru tekjulágir og barnafólk frekar en barnlausir. Frekar ungt fólk en eldra og greinilegt að vandinn er töluvert mikill á þeim svæðum þar sem hraðast byggðust upp í hús- næðisuppsveiflunni.“ Í úttektinni kemur fram að ef ekki hefði verið gripið til frysting- ar lána strax eftir hrun væri hlut- fall verst settu skuldaranna verið mun hærra. Aðrar aðgerðir sem gripið var til á seinni stigum hafa líka aðstoðað nokkurn hóp fjöl- skyldna. „Það breytir því þó ekki að um 24 þúsund heimili eru enn í verulegum vanda.“ Þorvarður Tjörvi segir að næstu skref til að létta á skuldavanda heimilanna snúi helst að bílalán- um. „Við sýnum hvert athyglin ætti helst að beinast og það eru frekar bílalánin en húsnæðislánin. Þau virðast vera veigamikil skýr- ing af hverju þessir hópar sem ég nefndi eru í þessum vanda.“ Þorvarður segir að gagnagrunn- ur SÍ um skuldavanda heimilanna sé orðinn gríðarlega stór og stjórn- völd og fjármálastofnanir geti nýtt sér hann á marga vegu til að grípa til næstu aðgerða til að aðstoða skuldsett heimili. Gagnagrunn- urinn eigi sér reyndar enga hlið- stæðu í heiminum. svavar@frettabladid.is Bílalán eru flestum heimilum til trafala Ný úttekt Seðlabankans á skuldum heimilanna bendir til að fimm þúsund heimili hafi náð að bæta stöðu sína umtalsvert með aðgerðum stjórnvalda og fjármálafyrirtækja. Fimm sinnum fleiri heimili eru enn í verulegum vanda. BÍLAFLOTI Skuldsettustu heimilin eru í hvað mestum vanda vegna bílalána. Um 3800 heimili af þeim verst settu borga af tveimur bílalánum. ÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÁRNI PÁLL ÁRNASON Félags- og tryggingamálaráðherra hefur lagt mikla áherslu á leiðréttingu gengistryggðra bílalána. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.