Fréttablaðið - 20.04.2010, Síða 6
GOS Í EYJAFJALLAJÖKLI
6 20. apríl 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Anna Björk Ólafsdóttir
sem fædd er og uppalin á
bænum Raufarfelli undir
Eyjafjöllum hefur yfirgef-
ið heimili sitt ásamt börn-
um sínum. Bóndi hennar
fer tvisvar á dag og sinnir
skepnunum. Óvissan um
framhaldið tekur á.
„Við tókum þá ákvörðun á laugardag
að fara. Þá var allt í svartamyrkri
og við ósofin vegna hávaða sem
fylgdi gosinu aðfaranótt laugardags
þegar þrumur og eldingar voru. Við
fórum fyrst til Víkur og gistum þar
aðfaranótt sunnudags. Svo komum
við við á bænum í gær [sunnudag]
og pökkuðum niður. Núna erum við
á Hvolsvelli, gistum hjá ættingj-
um og ætlum að vera hér á meðan
enn er öskufall,“ segir Anna Björk,
bóndi á Raufarfelli I.
Anna Björk segir undanfarna
daga hafa verið erfiða. Mjög óþægi-
legt sé fyrir bændur að vita ekki
nákvæmlega hvaða áhrif askan
hafi á skepnurnar. „Það er alveg
skelfilegt að þurfa að upplifa þetta,
það er svart og þykkt lag yfir öllum
túnum. Við vitum ekki hvort við
erum að fara að heyja í sumar. Og
við óttumst það eðlilega að askan
skaði skepnurnar, helst myndi
maður vilja koma þeim í burtu,“
segir Anna Björk en hún og maður
hennar, Kristinn Stefánsson, eru
með 45 mjólkandi kýr og 100 naut-
gripi. Fjórtán nautgripi keyrðu þau
til slátrunar á sunnudag því þeir
stóðu úti.
Anna Björk segir mjög óþægilegt
að vera á staðnum í öskufalli, hún
hafi fundið fyrir ertingu í hálsinum
inni, jafnvel þótt gluggar séu lok-
aðir enda sé sjáanlegt ryklag yfir
öllu inni.
„Ég er fædd og uppalin á bænum
og hef aldrei séð annað eins. Auð-
vitað hef ég alla tíð vitað að það er
eldstöð í Eyjafjallajökli en það er
svo langt síðan hún gaus. Jökullinn
hefur alltaf bara verið fallegur og
skýlt okkur fyrir norðanáttinni.“
Anna Björk segir dagana síðan
gosið og öskufallið hófst hafa verið
erfiða.
„Auðvitað er þetta mikið áfall
og álag og ofboðslega erfitt,“ segir
hún. Hún segir börnin hennar tvö
sem enn búa heima, sjö og ellefu
ára, lítið hafa tjáð sig um atburðina.
„Þau spurðu í gær þegar við vorum
að pakka niður: af hverju getum við
ekki bara verið heima?“ segir Anna
Björk en börnin hennar ganga í
skóla á Hvolsvelli og þótti henni og
manni hennar minnst rask vera af
því að flytja þangað að sinni, fyrst
þau geta gist hjá ættingjum.
„Þau voru ekki í skóla í síðustu
viku og ég vildi reyna að ná aftur
venjulegum degi í stað þess að vera
alltaf að koma og fara og flakka
milli staða,“ segir Anna Björk.
Maðurinn hennar fer nú tvisvar á
dag og sinnir skepnunum og hjálp-
ar eldri sonur þeirra við búverkin,
en þau taka um tvær klukkustund-
ir í senn. Frá Hvolsvelli að Rauf-
arfelli eru um 48 kílómetrar um
gömlu Markarfljótsbrúna.
Anna Björk segir fleiri bændur á
svæðinu þar sem öskufallið er mest
hafa flúið heimili sín tímabundið.
„Það er líka mjög óþægilegt að
vera þarna núna þegar er rok, jafn-
vel þó að ekki sé öskufall þá fýkur
askan sem er þarna út um allt.“
sigridur@frettabladid.is
Rannsóknar-
Samfylkingarfélagi í Reykjavík hélt fyrsta félagsfundinn af
remur um sk rslu rannsóknarnefndar Al ingis sl. mi vikudag.
Fjölmenni var á fundinum og voru gó ar umræ ur me al
félagsmanna a loknum áhugaver um framsögum eirra Sigur ar
Líndals, lagaprófessors og Jóhanns Haukssonar, bla amanns.
Næstu tvo mi vikudaga, 21. apríl og 28. apríl, mun umræ an um
rannsóknarsk rsluna halda áfram á vettvangi félagsins. Fundirnir
ver a á Hallveigarstíg 1, hefjast kl. 20.30 og eru öllum opnir.
______________________________________________
Mi vikudagur 21. apríl
Hva a lærdóm má Samfylkingin
draga af sk rslunni?
Gestir á ö rum fundinum ver a Valger ur Bjarnadóttir, ingkona
og Jóhann Ársælsson, fyrrverandi ingma ur. Fundarstjóri ver ur
Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi.
______________________________________________
Vi hvetjum félagsmenn og a ra sem hafa áhuga á a ræ a og
kynna sér efni sk rslunnar a fjölmenna á mi vikudagsfundi
félagsins og taka átt í mótun samfélagsins.
Allir velkomnir!
Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík
sk rslan
PIPA
R\
TBW
A
•
SÍA
•
1
0
0
5
8
0Sjá nánar á barnahatid.is
BÚA HJÁ ÆTTINGJUM Anna Björk ásamt sonum sínum Hákoni Erni og Ásgeiri Heið-
ari. Þau ætla að gista hjá ættingjum á Hvolsvelli á meðan enn er öskufall.
MYND/EGILL BJARNASON
Haldnir voru fjórir fundir í gær með íbúum á Suður- og Suðausturlandi,
skipulagðir af yfirvöldum og almannavarnanefnd í héraði. Á fundinum voru
dýralæknar, veðurfræðingur, jarðvísindamaður, fulltrúi Rauða krossins og
fleiri sérfræðingar til að veita íbúum upplýsingar. Samkvæmt upplýsingum
frá Almannavörnum verður allt brunatryggt tjón bætt, en allur húsakostur
er brunatryggður. Ekkert mat hefur verið lagt á annað tjón, til að mynda er
ekki ljóst hvernig tún koma undan öskunni, en Bjargráðasjóður kemur þar
að bótagreiðslum. Í undirbúningi er opnun upplýsingamiðstöðvar fyrir íbúa.
Samkvæmt upplýsingum Almannavarna verður hún á Hvolsvelli með útibú
austar í sveitum.
Íbúum hamfarasvæða verður veittur sálrænn stuðningur en Rauði kross
Íslands sér um það verk. Sálfræðingur verður í Heimalandi milli 12 og 14 í
dag. Einnig verður opið hús fyrir þá sem staddir eru á höfuðborgarsvæðinu í
Rauðakrosshúsnæðinu í Borgartúni 25 á milli tvö og fjögur á morgun.
Íbúafundir í dag eru að Laugalandi klukkan 14.00 og Vestmannaeyjum
klukkan 18.00, og á morgun á Hellu klukkan 17.00 og Hvolsvelli klukkan
20.00.
Íbúafundir og áfallahjálp
Flúðu svartamyrkur,
ösku og gosdrunur
ÖSKUSKÝIÐ Bæirnir undir Eyjafjöllunum virðast litlir og varnarlausir þegar öskuskýið frá Eyjafjallajökli steypir sér yfir þá.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Landlæknirinn í Færeyjum mælist
til þess að foreldrar láti ekki unga-
börn sofa utandyra. Þá ætti fólk
sem allajafna notast við augnlinsur
að skipta yfir í gleraugu.
Þá varar landlæknir fólk með önd-
unarfærasjúkdóma, svo sem astma
og bronkítis, við að vera utandyra.
„Eins og flestir hafa tekið eftir er
svolítið af ösku í loftinu yfir Fær-
eyjum. Askan kemur frá eldgosinu
á Íslandi. Einnig er svolítill brenni-
steinn í loftinu,“ segir á heimasíðu
færeyska dagblaðsins Sósíalsins. Því
sé gripið til þessara ráðstafana.
- kóþ
Aska í loftinu yfir Færeyjum:
Ungabörn sofi ekki í
vögnum utandyra