Fréttablaðið - 07.06.2010, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 7. júní 2010 9
Það er800 7000 • siminn.is
Facebook, YouTube, Google, tölvupóstur og
fréttamiðlarnir fylgja þér á ferðalaginu á
stærsta 3G dreifikerfi landsins.
Stuð á 3G netinu
í símanum á ferð
um landið
BRETLAND Maður drukknaði í ánni
Machynlleth í Wales í gær þegar
hann reyndi að bjarga dóttur
sinni frá drukknun. Stúlkunni
var bjargað á land en hún hafði
farið út í ána á eftir hundi fjöl-
skyldunnar.
Lögregla og slökkvilið ásamt
sjúkraflutningamönnum reyndi
árangurslaust að koma manninum
til hjálpar upp úr ánni eins og fram
kemur á fréttavef Breska ríkisút-
varpsins. Maðurinn var í tjaldúti-
legu með dætrum sínum tveim en
fjölskyldan er frá Englandi.
Faðir drukknar í Wales:
Drukknaði við
björgun dóttur
BANDARÍKIN Meintir hryðju-
verkamenn voru handteknir á
JFK-flugvelli í New York í gær.
Yfirvöld hafa haft auga með
mönnunum síðustu fjögur árin.
Bandarísk yfirvöld telja að
mennirnir tilheyri sómölsku
hryðjuverkasamtökunum Al Sha-
baab sem eru nátengd Al Kaída og
telja þau að mennirnir hafi ætlað
að ræna og myrða bandaríska
þegna á erlendri grund. Þeir verða
færðir fyrir dómara í dag. - ls
Handteknir á JFK-flugvelli:
Tveir grunaðir
um hryðjuverk
NEW YORK Fréttamenn söfnuðust
saman við heimili annars hinna hand-
teknu.
NÝSKÖPUN „Við eigum í viðræðum við fjár-
festa og erum langt komin. En þetta tekur
tíma,“ segir Haukur Davíð Magnússon, fram-
kvæmdastjóri og einn stofnenda tónlistarveit-
unnar og netsamfélagsins Gogoyoko. „Það
er ekkert þolinmótt fjármagn á Íslandi þótt
margir gefi sig út fyrir að eiga það og ákvarð-
anafælni ríkjandi,“ bætir hann við.
Gogoyoko gekk snemma á síðasta ári frá
samningum við Nýsköpunarsjóð atvinnulífs-
ins og Vilhjálm Þorsteinsson, stjórnarfor-
mann CCP, um fjármögnun upp á hundrað
milljónir króna. Til stóð að ljúka fjármögn-
un upp á rúmar tvö hundruð milljónir króna
í maí og tryggja óbreyttan rekstur næstu tvö
árin. Haukur er þrátt fyrir þetta bjartsýnn.
Nokkrir þeirra sem rætt er við eru erlendir
fjárfestar. Þeir munu lítið spenntir fyrir því
að setja áhættufjármagn í verkefni hér, ekki
síst þar sem ekki er lengur hægt að kaupa
varnir gegn gengissveiflum.
Haukur og segir ekki útilokað að fyrirtækið
flytji starfsemina úr landi af þessum sökum.
Þá bjóða mörg önnur lönd betri stuðning við
sprotafyrirtæki en býðst hér. „Við höfum
skoðað þetta og útilokum ekkert,“ segir hann.
Tuttugu manns vinnur hjá Gogoyoko. - jab
FRUMKVÖÐULLINN Haukur Davíð, sem stendur á
hægri hönd starfsmanns Gogoyoko, segir ekki útilokað
að fyrirtækið flytji starfsemina úr landi eigi það að geta
fjármagnað sig.
Erfitt að finna áhættufjármagn hér á landi, segir Haukur Davíðs Magnússon, stofnandi Gogoyoko:
Tónlistarveita útilokar ekki landflótta
FASTEIGNIR Michael Jenkins, banda-
rískur fjárfestir, hefur í gegnum
félag sitt Þórsgarð ehf. keypt 25
íbúðir á Íslandi og hyggst koma
þeim í útleigu.
Teitur Jónasson, talsmaður
Þórsgarðs og Meira-leiguhúsnæð-
is, segir að áhugi á Íslandi hafi
kviknað hjá Jenkins sem stundi
fjárfestingar sínar á ýmsum stöð-
um. Hann vilji fjárfesta á Íslandi
til langs tíma.
„Jenkins metur það svo að hér
séu góðir fjárfestingarmöguleik-
ar til lengri tíma. Hann hefur trú á
því að landið muni ná sér og að það
verði aftur eftirspurn á húsnæðis-
markaðnum,“ segir Teitur.
Íbúðirnar sem Jenkins keypti
eru í nýbyggingum á Norðurbakk-
anum í Hafnarfirði, við Löngulínu
í Sjálandshverfinu í Garðabæ og
við Vallarkór í Kópavogi. Flestar
íbúðirnar eru þriggja eða fjögurra
herbergja.
Meira-leiguhúsnæði mun að
sögn Teits bjóða þessar íbúðir
fyrir svipaða leiguupphæð og sé á
markaði. Með öðruvísi skilmálum
en nú tíðkist, sem miði að því að
fólk leigi til langs tíma, eigi hins
vegar að tryggja réttindi leigutak-
ans betur, meðal annars með aukn-
um uppsagnarfresti fyrir leigjand-
ann. Leigusalinn njóti samt aðeins
þess uppsagnarfrests sem kveðið
sé á um í lögum. Þá geti leigjendur
skipt um innréttingar og gólfefni
kjósi þeir að gera breytingar. - gar
Michael Jenkins sagður hafa trú á endureisn á Íslandi eftir efnahagshrunið:
Bandarískur fjárfestir keypti
25 nýjar íbúðir til að leigja út
TEITUR JÓNASSON Talsmaður Michaels Jenkins á Íslandi segir hann hafa trú á að
markaðurinn hér nái sér á strik. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VATIKANIÐ Páfi vill frið við botn
miðjarðahafs „Ég ítreka þá skoð-
un mína að alþjóðasamfélagið
beiti sér tafarlaust fyrir lausn
deilunnar fyrir botni Miðjarðar-
hafs og komi
þannig í veg
fyrir frekari
blóðsúthell-
ingar,“ sagði
Benedikt 16.
páfi í messu
sem hann hélt
í lok þriggja
daga heim-
sóknar sinnar
til Kýpur. Páfi
vill að deiluað-
ilar slíðri sverðin og bindi enda á
vaxandi ofbeldi.
Benedikt páfi hefur áður lýst
yfir stuðningi sínum við stofnun
sjálfstæðs ríkis Palestínumanna
og hefur hann hvatt þá til að
standast þá freistingu að grípa til
ofbeldis og hryðjuverka. - ls
Átök fyrir botni Miðjarðarhafs:
Páfi vill binda
enda á ofbeldið
BENEDIKT PÁFI
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/PJETU
R