Fréttablaðið - 16.06.2010, Qupperneq 12
12 16. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
LOFTFIMLEIKAR Ungur Indverji stekkur
með tilþrifum út í skurð í Nýju-Delí.
FRÉTTABLAÐIÐ / AP
Verslanir opnar: mán-mið 11-19, fim 11-21, fös 11-19, lau 11-18 og sun 13-18, www.smaralind.is
Í Smáralind blásum við til þjóðhátíðar
16. júní með glaum og gleði. Hæ, hó, tökum
forskot á sæluna og sjáumst í Smáralind!
GLEÐILEGA
ÞJÓÐHÁTÍÐ
Smáfólkið fær frítt í hoppukastala (kl. 12-19)
Frítt kandífloss (kl. 14-17)
Frítt í minigolf fyrir fjölskylduna
Blöðrur fyrir öll börn (kl. 12-18)
Frímiði í Veröldina okkar fyrir öll börn
Nöfn þeirra sem kaupa gjafakort fara
í RISApott
Allir sem mæta með íslenska fánann fá ís
í brauði frá Kjörís í Ísbúð Smáralindar (kl. 12-19)
Þjóðhátíðartilboð í verslunum
Allt ofangreint á meðan birgðir endast. Sjáumst!
ALÞINGI Almenn niðurfelling skulda
upp á 20 prósent kostar 114 millj-
arða, setur Íbúðalánasjóð á haus-
inn og eykur útgjöld hjá Lánasjóði
íslenskra námsmanna og bönkun-
um. Þetta sagði Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra í ræðu á
Alþingi í gær.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, spurði forsætisráðherra út í
grein Helga Hjörvar í Fréttablað-
inu í gær, en þar talaði hann fyrir
því að leið almennrar niðurfellingar
yrði skoðuð. Sigmundur sagði Helga
hitta naglann á höfuðið og með grein
sinni tæki hann undir sjónarmið
Framsóknarflokksins í málinu. Við-
urkenna þyrfti að um tapað fé væri
að ræða sem ætti að afskrifa og leið-
rétta þannig lánin.
Jóhanna ítrekaði að leið ríkis-
stjórnarinnar varðandi heimilin
væri eðlilegri. Þar væri komið best
til móts við þá verst stöddu og gætu
sumir fengið allt að 90 prósent nið-
urfellingu skulda. Nýta þyrfti það fé
sem fyrir hendi væri til að aðstoða
þá verst stöddu. Hvatti hún þing-
heim til að styðja tillögurnar og
afgreiða áður en Alþingi færi í sum-
arfrí, þó að mögulega þyrfti að taka
nokkra daga aukalega í umræður
þar um.
Helgi sagði í grein sinni að án
almennra aðgerða væri einkum
komið til móts við þá sem lengst
gengu í skuldsetningu.
Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, segir að
flokkurinn hafi talað fyrir þverpól-
itísku samráði um að meta svigrúm-
ið til almennrar skuldaleiðréttingar,
„enda hefur það smám saman verið
að koma í ljós að þessar sértæku
leiðir eru allt of tafsamar og hafa
nýst of fáum“.
Lilja Mósesdóttir, þingmaður
Vinstri grænna og formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar, tekur
undir það. Hún segir að á einu
ári hafi 400 manns getað nýtt sér
úrræði eins og greiðsluaðlögun.
Sú tala gæti hækkað í 2.000 eftir
ný frumvörp sem liggi fyrir þing-
inu. Það sé allt of lítið, um 22 þús-
und manns séu á vanskilaskrá. Hún
vill fara í almenna niðurfellingu
skulda.
- kóp
Sífellt fleiri vilja leiðréttingu
Æ fleiri þingmenn tala fyrir almennri niðurfellingu skulda að einhverju marki. Ríkisstjórnin er á móti þeirri
leið. Viðskiptaráðherra segir að koma verði til móts við fólk sem keypti fyrstu eignina þegar verð var sem hæst.
STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoðun
gerir ekki athugasemd við undir-
búning sameiningar skattumdæma
landsins, samkvæmt skýrslu sem
gefin var út í gær. Um síðustu ára-
mót voru embætti ríkisskattstjóra
og níu skattstjóra víðs vegar um
landið sameinuð í eitt og landið
gert að einu skattumdæmi.
Ríkisendurskoðun telur að und-
irbúningur sameiningarinnar hafi
byggt á skýrum faglegum og fjár-
hagslegum markmiðum og rúmist
innan heimilda. Að auki liggi fyrir
skýr verk- og tímaáætlun. - kóþ
Ríkisendurskoðun tilkynnir:
Líst ekki illa á
sameininguna
HEILBRIGÐISMÁL Læknafélag
Íslands lýsir yfir fullum stuðn-
ingi við greinargerð landlæknis
vegna detox-meðferðar Jónínu
Benediktsdóttur. Þetta kemur
fram í yfirlýsingu sem félagið
sendi frá sér í gær.
„Félagið vill í þessu samhengi
benda á að samkvæmt lögum
um heilbrigðisþjónustu er öll
heilbrigðisstarfsemi hér á landi
háð starfsleyfi frá landlækni
og lýtur eftirlitsskyldu hans, án
tillits til þess hvort hún er veitt
af ríkinu eða öðrum aðilum með
eða án greiðsluþátttöku ríkis-
ins,“ segir í stuðningsyfirlýs-
ingunni.
Landlæknir deilir hart á ristil-
hreinsun Jónínu í greinargerð
sinni og segir hana gagnslausa.
Jónína hefur svarað honum full-
um hálsi. - sh
Ekki hrifnir af ristilskolun:
Læknar styðja
landlækni
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
BJARNI
BENEDIKTSSON
LILJA
MÓSESDÓTTIR
SIGMUNDUR D.
GUNNLAUGSSON
KIRGISISTAN, AP Að minnsta kosti
nokkur hundruð manns hafa látið
lífið í óeirðum í suðurhluta Kirgis-
istans síðustu daga, að mati Rauða
krossins. Æ fleiri fréttir berast af
því að ýtt hafi verið undir átökin
beinlínis til þess að koma bráða-
birgðastjórn landsins frá völdum.
Óeirðirnar hafa beinst að Úsbek-
um, sem eru í minnihluta í landinu.
Borgin Osh hefur að stórum hluta
verið lögð í rúst og yfir hundr-
að þúsund manns hafa flúið yfir
landamærin til Úsbekistans.
Á þriðjudag lokuðu stjórnvöld
í Úsbekistan landamærunum,
þannig að fjöldi fólks hefur safn-
ast saman við landamærin eða
situr fast á einskismannslandi milli
gaddavírsgirðinga hvoru megin.
Bráðabirgðastjórn landsins
hefur sakað Kurmanbek Bakijev,
fyrrverandi forseta, og fjölskyldu
hans um að hafa hvatt til óeirðanna
í þeirri von að hætt verði við þjóðar-
atkvæðagreiðslu um nýja stjórnar-
skrá, sem á að halda 27. júní.
Bakijev hraktist frá völdum í
apríl í kjölfar fjölmennra mótmæla
gegn honum. - gb
Óeirðirnar í Kirgisistan hafa kostað hundruð manna lífið:
Fólk innlyksa á landamærum
VIÐ LANDAMÆRI ÚSBEKISTANS Yfir
hundrað þúsund manns hafa flúið yfir
landamærin. NORDICPHOTOS/AFP