Samtíðin - 01.06.1970, Blaðsíða 10
6
SAMTÍÐIN
KVENNAÞÆTTIR
VIÐ birtum hér mynd af sýningardömu
í nýtízku frakka frá Pierre Cardin í París.
Frakkinn er frjálslega sniðinn, og það
er létt yfir honum. Línurnar eru mjúkar
og litasamsetningin: svart, ljósbrúnt og
hvítt, er falleg. Kjólar frá tízkuhúsi Car-
dins eru aftur á móti gerðir samkvæmt
ströngum stíl og stinga því allmjög í stúf
við léttleika frakkans hér á myndinni.
Varðveitum fagurt hörund
NÝLEGA rákumst við á eftirfarandi
grein í erlendu blaði:
Þegar langömmur okkar voru orðnar 35
ára gamlar, áttu þær ævina venjulega að
baki sér. Nútímakonur á þeim aldri eiga
hins vegar venjulega beztu æviár sín ólif-
uð. Þær þurfa ekki að óttast andlega né lík-
amlega hrörnun fyrr en löngu seinna. Þær
eru miklu lengur unglegar en konur fyrr
á tímum og verða þar af leiðandi miklu
eldri en formæður þeirra urðu yfirleitt.
Ungt hörund endurnýjast að jafnaði af
sjálfu sér á 18—20 dögum og varðveitist
mjúkt vegna rakaefna, sem því berast
innan úr líkamanum, ef allt er með felldu.
Það er undir okkur sjálfum komið, hvort
við varðveitum mýkt þess og fegurð, þegar
árin færast yfir. Þá gerast húðfrumurn-
ar oft þreyttar og þurrar vegna ónógs
raka, og hörundið verður hrukkótt. Við
‘Jreijju
Krommenie
VINYL FLÍSAR □ G □ □ LFD Ú KAR
SJÁLFGLJÁANDI - AUÐVELT VIÐHALD - MJÚKT UNDIR FÆTI
FÆST í DLLUM HELZTU BYGGINGAVDRUVERZLUNUM LANDSINS.