Samtíðin - 01.06.1970, Síða 19
SAMTÍÐIN
15
Heimsfræg athafnasöm fjölskylda
i
ElTT sinn fór ég að hlusta á fiðluleik
Yehudis Menuhins í París og varð heldur
en ekki hugfanginn af snilli meistai’ans.
Nú er orðið alllangt síðan, og börn Menu-
hins eru löngu orðin stój- og feta frægðar-
slóð föður síns, nema hvað öllu meiri sögur
fara jafnvel af þeim.
Yehudi Menuhin er Gyðingur, kominn í
beinan karllegg af rabbínum hverjum fram
af öðrum. Þetta hlýtur að vera merkileg
ætt, enda láta afrek hennar nú ekki á sér
standa. Menuhin kvæntist ungri veik-
byggri stúlku, Mamtha, Sher, að nafni,
vestur í Bandaríkjum skömmu fyrir
heimsstyrjöldina 1914—18, en þangað
hafði hann haft hana með sér að austan.
22. apríl 1916 fæddist þeim sonur, sem
var skírður Yehudi, en það er hebreskt
nafn og merkir Gyðingurinn. Seinna eign-
aðust þau hjón tvær dætur: Hephzibah og
Yaltah.
Svo samhent reyndist þessi fjölskylda,
að öll systkinin þrjú gengu í hjónaband
sama árið og ekki nóg með það: Kona Ye-
hudis og maður Hephzibahs voru systkin
°g hétu Nola og Lindsay Nicholas. En
stutt varð í hjónaböndum þeirra. Næst
kvæntist Yehudi stúlku, sem hét Diana
Gould, og Hephzibah giftist félagsfræðingi,
sem ég veit ekki, hvað heitir, enda virðist
hann bara vera maðurinn konunnar sinn-
ar> sem svo er nefnt. Það hefur sannazt á
Hephzibah, sem fyrir henni var spáð i
bernsku, að hún myndi fara mjög að dæmi
Yehudis, bróður síns — að öðru leyti en
Pví, að hann spilar á fiðlu, en hún á píanó!
Hað var eitt sinn fyrir löngu, að Menuh-
in eldri fór með báðar litlu telpurnar sín-
ar til Marcels Ciampis, kennara í píanó-
leik við tónlistarskólann í París, og bað
hann að kenna þeim. Ciampi kvaðst ekki
kenna börnum, en sagði, að einn af nem-
endum sínum myndi gera það. Menuhin
svaraði engu, en lét Hephzibah umsvifa-
laust setjast við hljóðfærið. Telpan fór
þegar að spila „Rondo brillante" eftir
Weber með þeim ágætum, að Ciampi gafst
upp orrustulaust og kvaðst mundu taka
að sér að kenna henni.
„Þá takið þér þessa líka,“ sagði Menuhin
og benti á Yaltah litlu.
„En hún er of ung til náms,“ andmælti
Ciampi.
Telpan settiet þá við hljóðfærið og spil-
aði verk eftir Schumann. Hreif hún Ci-
ampi svo með leik sínum, að hann lofaði
að kenna henni líka og sagði:
„Hún frú Menuhin hefur bara fætt af
sér efnivið í heilan tónlistarskóla."
Að svo mæltu tók hann báðar telpurnar
í bekkinn hjá sér.
„Ég skil ekki, að hægt sé að hugsa sér
betra né óþvingaðra samkomulag en hjá
fjölskyldu minni,“ segir Menuhin. „Hún
Hephzibah er ímynd úthverfunnar á mér,
en Yaltah þess, sem inn snýr.“
Hephzibah hélt fyrsta konsert sinn í
París með Yehudi, bróður sínum, haustið
1934. Það var annar konsertinn hennar.
Systkinin léku verk eftir Mozart, Beethov-
en og Brahms.
Það er áhættulaust að halda konsert
með öðrum eins félaga,“ sagði Hephzibah.
„Yehudi rifjar upp öll verkin með mér,
áður en tónleikarnir hefjast. Allt lifnar
við, þegar hann útskýrir þau. Hann skýr-
ir sérhvert smáatriði, svo að allt liggur
ljóst fyrir. Enda þótt ég flíki engri til-