Samtíðin - 01.05.1971, Qupperneq 8

Samtíðin - 01.05.1971, Qupperneq 8
4 SAMTÍÐIN R AD D I R---------------------------- ------------R A D D I R--------------- ------------------------RADDIR Alberto Moravia: Viöhorf mífl og vinnubrögð ÉG HEF alltaf verið á undan tímanum. Ég hef skrifað bækur, sem voru gefnar út, áður en fólk hafði skilyrði til að skilja, hvað ég var að fara. Þær fundu engan hljómgrunn. Seinna, þegar ég benti á, að eitthvað, sem fólk var allt í einu orðið stórhrifið af, hefði ;ég sagt fyrir löngu, var mér núið því um nasir, að ég væri hygginn eftir á. Bækur mínar hafa alltaf öðrum þræði fjall- að um kvnferðileg vandamál eða réttara sagt lýst kynlífi mjög nákvæmiega. Þess vegna hefur fólk lesið þær með áfergju, en hefur ekki brotið efni þeirra til mergjar — skvggnzt bak við orðin. Bækumar hafa verið lesnar, af því hve bersögull ég hef verið. Af þeirri ástæðu hef ég ekki fengið Nóbelsverðlaunin. FTvað svokölhiðum framúrstefnuhöfundum viðvíkur, þá álít ég fávíslegt að kalla sig því nafni, fyrr en menn hafa skrifað eitt- hvað, sem veigur er í. Fram úr hverju hafa þessir menn farið? Framúrstefna (avant- gardo-) merkir eitthvað. sem er á undan sinni samtíð, en enginn getur enn sagt um, hvort þessir uneu menn séu á nnVkum hátt á und- an tímanum. Fvrst er að skrifa bókina, síðan að meta boðskan hennar. Ég skrifa þrjá klukkutíma á hverjum degi. Sumir rithöfundar geta levft sér að skrifa ekki orð hálft eða heilt ár, en það get ég ekki. Ég verð að vera sístarfandi. (Úr viðtali við skóldið frá 1967). ORÐSENDING Við þökkum öllum þeim áskrifendum SAMTlÐARINNAR, sem greitt hafa póst- kröfurnar fyrir árg.jaldi blaðsins, sem sendar voru út í apríl. Þeir örfáu. sem eiga þær enn ógreiddar, eru beðnir að greiða þær nú þegar. Með þökk fyrir gott samstarf. SAMTIÐIN r Hefurðu S ? Ættar-biðröft KÆRUSTUPAR sagði við vin sinn: „Okkur dauðlangar að fara að gifta okk- ur, en það, sem stendur í veginum, eru húsnæðisvandræðin. Við fáum hvergi íbúð.“ „En getið ])ið ekki búið bjá foreldrum ykkar?“ spurði vinurinn. „Ekki viðlit! Þeir búa nefnilega enn þá lijá foreldrum sínum!“ Kemur ekki til mála SKIPSTJÖRI á skútu, sem bét María, kvæntist stúlku, sem hét Jórunn. „Ætlarðu ekki að breyta nafninu á skútunni og skýra hana Jórunni?“ spurði vinur bans. „Kemur ekki til mála. En ef bún Jór- unn reynist mér eins vel og skútan mín, getur vel farið svo, að ég fari að kalla hana Maríu,“ anzaði skipstjórinn. Engan hávaða UNGUR maður leigði sér herbergis- kytru bjá gamalli konu. Hún sagði við hann: „Þú mátt aldrei koma með kvenfólk upp til þín, og svo vil ég ekki heldur hafa neinn liávaða, bvorki af útvarpi ne grammófóngargi eða neinu þess báttar. Ætlarðu að muna það?“ „Allt í lagi, ef ég trufla þig ekki, þegar

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.