Samtíðin - 01.05.1971, Qupperneq 9
SAMTlÐIN
5
ég raka mig með rafmagnsrakvélinni
minni — eða með pennanum mínum; það
urgar nefnilega dálítið í honum, þegar ég
er að skrifa,“ anzaði leigjandinn.
Eitthvað verður maður að segja
„SEGÐU mér, hvernig stendur á því,
að þú segir fólki alltaf, að þú hafir gifzt
mér til fjár?“
„En væna mín . .. !“
„Væna min! segirðu. En nú vil ég bara
hafa að þú segir mér, hvernig á þessu bulli
stendur, því þú veizt ósköp vel, að ekki
átti ég grænan eyri, þegar við giftumst!“
„Það er hverju orði sannara, en þú
hlýtur að skilja, að eitthvað verður mað-
ur að segja, þegar alltaf er verið að furða
sig á því, hvers vegna maður liafi gifzt
þér.“
Á föstudögum líka?
FERÐALANGUR var að segja allfjöl-
mennri samkundu frá ferðalögum sínum.
Honum fórust m. a. þannig orð:
„Já, góðir áheyrendur. Það er ekki bein-
linis trúlegt, en samt er það satt, að inni
í miðri Afriku rekst maður á þjóðflokka,
sem eru það siðlausir, að þeir éta ein-
göngu mannaket!“
Það fór hrollur um áheyrendaskarann,
en svartklædd kona, hörkuleg á svip, rétti
upp hönd og spurði:
„Og á föstudögum líka?“
Afmælistertan
IÐJUHÖLDUR nokkur, sem hafði geysi-
ieg umsvif, unni sér aldrei hvíldar í skauti
fjölskyldunnar. Ekki var hann fyrr bú-
mn að l)orða á kvöldin en hann fór að
hamast við alls konar teikningar, áætl-
anir og útreikninga og gleymdi þá öllu
öðru.
Kvökl eitt sá hann sér til mikillar undr-
unar stærðar tertu á borðinu í teiknistofu
sinni, skreytta fimm kertum, sem kveikt
hafði verið á.
„Hvað á þetta að merkja?“ spurði hús-
bóndinn, þegar kona hans kom inn til
lians. „A einhver hér á heimilinu afmæli
í dag?“
„Bara nýjasti kjóllinn minn,“ anzaði
frúin. „Það eru fimm ár i dag siðan ég'
eignaðist hann!“
Hafði þau öll í höfðinu
PRÖFESSOR var að prófa læknanema
og spui’ði;
„Getið þér svo nefnt mér öll helztu höf-
uðbeinin ?“
„Ennisbein, kinnbein, nefbein, kjálkar
og .. . biðið þér andartak, ég hef þau öll i
í höfðinu.“
f
Vissi það ekki
BLAÐAMAÐUR var að viða að sér efni
í samtalsþátt niðri við höfnina. Meðal
þeiri’a, sem hann liitti að máli, var sjó-
maður á skipi, sem var að konxa frá út-
löndum.
„Jæja, hvað eru nú bömin þín oi’ðin
mörg?“ spurði blaðamaðui’inn.
„Það veit ég nú bai’a ekki, því það eru
oi’ðin þi’jú ár, síðan ég kom síðast heim.“
Stóðust engan samjöfnuð
KORSlKUBUl sagði við son sinn:
„Þú ættir að skammast þín, strákur, að
vera alltaf svona neðarlega i bekknum
þínum! Þegar Napóleon rnikli var i þess-
urn sarna skóla, var hann alltaf efstur í
sínum bekk.“
„Það getur vel vei’ið,“ aiizaði strákur,
„en þegar Napóleon var á aldri við þig,
var hann orðinn keisari i Frakklandi og
konungur á Italíu, svo þú mátt nú fai’a
að herða þig, ef þú ætlar að ná honum!“