Samtíðin - 01.05.1971, Page 14
10
SAMTÍÐIN
Ivær ferðir til Mallorcu nieð næstum 200
í'arþega. Við höfum einnig skipulagt ferð-
ir fyrir liópa og einstaklinga og selt ferð-
ir með m/s Gullfossi, einkum hringferðir
skipsins.“
VIÐ: „Veitið þið erlendu ferðafólki fyr-
irgreiðslu hér á Iandi?“
STEINN; „Sú þjónusta okkar er enn á
byrjunarstigi, en við höfum fullan hug á
að auka fjölbreytni hennar.“
VIÐ: „Ymsa lesendur SAMTlÐARINN-
AR langar að kynnast fyrirkomulagi svo-
nefndra IT-ferða. Hvernig er þeim hátt-
að?“
Steinn Lárusson réttir okkur eftirfar-
andi lesmál:
Fyrirkomulag þessara ferða er þannig,
að ferðazt er eftir fyrirfram gerðri áætl-
un, og kostnaður ferðai’innar greiðist all-
ur fyrir brottför. I verðinu eru innifaldar
flugferðir, gisting, skemmtiferðir og önn-
ur þjónusta, sem tiltekin er fyrir hverja
ferð. —r Þér leggið peningana á borðið,
en allan undirbúning og fyrirgreiðslu á
lierðar ferðaskrifstofunni. Það, sem þér
fáið í staðinn, er ódýr og' vel undirbúin
skemmtiferð á vinsælustu ferðamanna-
slóðir Evrópu — skemmtiferð við yðar
hæfi, því ferðaskrifstofan kappkostar að
hafa sem fjölbreytilegast úrval ferða á
boðstólum. IT-ferðir eru til orðnar fyrir
samvinnu IATA-flugfélaganna og alþióð-
legra ferðaskrifstofa. Með þeim er fólki
gefinn kostur á afar ódýrum sumarlevfis-
ferðum til annarra landa. Það er cinmitt
vegna þess að allir þættir ferðalagsins eru
skipulagðir og undirbúnir fyrirfram og
IT-ferðin seld sem ein heild, að tekizt hef-
ur að bióða svo lágt verð, að allir hafa
ráð á að fljúga til útlanda í sumarleyf-
inu.
VIÐ: Og að lokum þetta: Hefurðu ekki
trú á, að lsland geti orðið eftirsótt ferða-
mannaland í framtíðinni?“
STEINN: „Skilyrðin eru fyrir liendi, en
til þess að svo verði, þurfa allir Islending-
ar, sem hér eiga hlut að máli, að sameina
krafta sína einhuga.“
UNDUR «<• AFREKj
4 Stærsta stálgerð heimsins er Bethle-
hem Steel Corporation í Sparrow Point í
Maryland 1 Bandaríkjunum.
4 Elzti þjóðfáni heimsins er danski fán-
inn Dannebrog. Hann er frá 1219.
4 Stærsta höll heimsins er Louvre í Par-
ís. Hún var reist á tímabilinu 1546-1857 og
nær yfir 19.8 ha flatarmál. Verulegur hluti
Louvre-hallarinnar er nú lista- og fornminja-
safn, en frönsk ráðuneyti hafa þar einnig
bækistöð sína.
4 Stærsta höll, sem enn er aðsetur vald-
hafa, er Vatikanið í Rómaborg. Það er 5.5 ha.
að flatarmáli, og í þvi eru 1400 herbergi,
salir, kapellur o. fl. vistarverur.
4 Hæsti fjallstindur jarðarinnar, Mount
Everest í Himalayafjöllum, var fyrst klifinn
árið 1953 af Játmundi P. Hillary, sem frægt
er orðið.
4 Stærsta eistihús heimsins, ef miðað er
við herbergjafjölda, er Conrad Hilton Hotel
í Chicago. Það er 25 hæðir með- 2600 gesta-
herbergjum (upphaflega 3000). Starfsmenn
gistihússins eru um 2000. — Miðað við hús-
stærð er Waldorf Astoria í New York samt
stærra. Það nær yfir 7577 fermetra grunn-
flöt og er 190.7 m hátt. í veitingasölum þess
geta 6000 gestir matazt samtímis.
4 Stærsta tóbakssölufvrirtæki heimsins
er British-American Tobacco Comnany Ltd. í
Lundúnum. Það var stofnað árið 1902. Hluta-
bréf fvrirtækisins voru árið 1965 virt á 552.-
693.866 sterlingsnund, og sala þess nam það
ár 1 milliarði dollara. Félagið á rúmlega 140
verksmiðjur, og starfa þar meir en 100.000
menn.
4 MUNIÐ að tilkynna SAMTÍÐINNI undir
eins bústaðaskipti til að forðast vanskil.