Samtíðin - 01.05.1971, Side 19
SAMTÍÐIN
15
þetta tækifæri til að brjótast undan áhrifum
þess stíls, ekki sízt með því að mála myndina
með svalari litum. Þessi mynd er því áfangi
á þroskabraut hans.
Filippus II lét ekki festa myndina upp, og
það varð ekki fyrr en listmálarinn Velazquez
uppgötvaði mikilleik hennar síðar, að henni
var valinn viðhlítandi staður í Escorialhöll.
Nú skartar hún í Pradosafninu, 3x4.5 m stór,
sem eitt af merkustu listaverkum þess. Örlög
þessarar myndar eru glöggt dæmi um „opin-
bert listarmat“ og ekki síður um hitt, hve
stórfengleg verk eiga fyrir sér „að batna“
með aldrinum. Kemur þar sitthvað til: frægð-
arorð höfunda, slökun á tregðu, endurmat
nýrra kynslóða o. s. frv. Sagt hefur verið á
latínu, að bækur eigi sér örlög. Sama máli
gegnir vitanlega um annars konar listræn
verk.
Enda þótt náðarsól Filippusar II skini ekki
á E1 Greco, auðnaðist honum brátt að vinna
úrslitasigur sinn með sköpun myndar, sem
nefnist: „Kraftaverkið við greftrun Orgazar
greifa". Hún var máluð handa kirkju í
Toledo.
Eins og títt var um meiri háttar listamenn
Viðreisnartímabilsins, hafði E1 Greco stóra
vinnustofu og allmarga aðstoðarmenn, sem
máluðu myndir eftir listaverkum hans sam-
kvæmt pöntunum, einkum helgimyndir. Kenn-
ir því ýmsra blæbrigða í myndum, sem
dreifðar eru um listasöfn í Evrópu og Ameríku
og við E1 Greco eru kenndar. Hafa ýmsar
þessara mynda fyrir bragðið sætt gagnrýni
á kostnað meistarans. Engu að síður mun
listmálarinn frá Krít ávallt verða talinn einn
af höfuðsnillingum spænskrar málaralistar.
RÖDD KEISARANS:
Ég kæri mig aðeins um þá menn, sem
eru mér nytsamlegir, og einungis meðan
ég get haft not af þeim.
Napóleon I
SAftT E«
að mörg stúlka lliafi misst aðdáanda við
það að giftast Iionurn.
♦
að hugarfarsbreyting þurfi ekki að bera
vott um ósjálfstæði.
♦
að maður, sem skiptir aldrei um skoðun,
kannist ógjarna við yfii’sjónir sínar.
♦
að konan segi: Þegar ég giftist, — en
lcarlmaðurinn: Ef ég kvænist.
♦
að próf reynist stundum vonlaus tilraun
til að mæla dýpi vanþekkingarinnar.
= Hvað merkja þessi
ORÐ?
1. Syplingur, 2. sætrur, 3. temsla, 4. tillæti,
5. tír, 6. að traðjarka, 7. trys, 8. turfa, 9. úlótt-
ur, 10. umsal.
Merkingamar eru á bls. 17.
Guðrún var komin í splunknnýjan
pels og sagði í hrifningu við vinkonu
sína: „1 morgun fékk ég loksins það, sem
ég þráði mest!“
„Og vinur þinn vonandi Iíka“, anzaði
vinkonan.
★ Skófatnaður í fjölbreyttu úrvali.
★ Kaupið skóna þar, sem úrvalið er mest.
SKÓVERZLUN PÉTURS ANDRÉSSONAR
Laugavegi 17 — Laugavegi 96 — Framnesvegi 2