Samtíðin - 01.11.1971, Page 9

Samtíðin - 01.11.1971, Page 9
SAMTÍÐIN 5 Hafiö þér nokkrar sannanir? PARISIARFRD kom til lögfræðings og sagði: „Ég þarf að fá skilnað.“ „Jæja, frú mín, og hvað hafið þér npp á að klaga?“ „Maðurinn minn hefur ekki reynzt mér trúr.“ „Og hafið þér sannanir fyrir þvi?“ „Hvort ég hef,“ svaraði frúin. „Ég held nú til dæmis, að hann sé bara alls ekki faðir að hörnunnm mínum!“ „Boöháttur lítillar sagnar” RARNAKENNARI, sem var að kenna 12 ára bekk íslenzku, bað Sæmund litla að koma upp að töflu og Skrifa setning- una: Gimbrin át heyið, þannig að sögnin yrði i boðhætti. Drengurinn tók krítina, hugsaði sig lengi um og skrifaði síðan: Gibba, gibb! Ekkert liggur á STDLIvA sá auglýst eftir ráðskonu i Visi og fór á vettvang. Húsbóndinn, sem aug- lýst hafði, kom sjálfur til dyra. Þegar þau voru setzt inn í stofu, sagði hann: „Eruð þér vön eldamennskn ?“ „Hvort ég er!“ anzaði stúlkan. „Og þvottum og ræstingu?“ „Auðvitað“. „Hm . . . og eruð þér líka náttúruð fyrir ungbörn?“ „Ha, ungbörn. Ja-á, en ég held nú, að við ættum að fara gætilega í þeim efnum að minnsta kosti svona til að byrja með ...“ Striplingar DTLENDINGDR sagði við vin sinn: „Þú kannast við Cawley-hjónin. Þetta eru alveg óforbetranlegir striplingar, skal ég segja þér. Eitt kvöld um daginn héldu þau fínt boð, og þar voru bara allir her- strípaðir!“ „Allir?!“ „Já, og það var svo hatrammt, maður, að þegar ég kom í boðið, kom berstripaður þjónn til dyra!“ „Ja, hver skollinn! Og hvernig sástu, að það var þjónn?“ „Það leyndi sér nú svo sem ekki, að það var ekki þjónustustúlka!“ Hattur og höfuð EIGINMAÐDRINN sat makindalega i stól, lottaði pípuna sína og átti sér einskis ills von, þegar konan hans birtist óvænt í dyrunum með splúnkunýjan hatt. „Líttu á nýja hattinn minn!“ sagði hún. „Er hann ekki fix?“ Maðurinn hristi höfuðið og anzaði mæðulega: „Ekkert botna ég í því, hvernig þú ferð að kalla þessi ósköp, sem þú ert með á höfðinu, hatt, manneskja?“ „Og ég er nú oft búin að furða mig á því, hvernig hægt er að kalla þessi ósköp, sem eru undir hattinum þínum, höfuð!“ svaraði frúin. Hvort hann er! GÖMDL kona kej'pti lítinn hund af hundasala i Paris. Þegar hún var búin að borga hundinn, spurði liún til frekara ör- yggis: „Og er hann nú tryggur, greyið?“ „Hvort hann er! Ég er búinn að selja hann fimm sinnum, og alltaf kemur hann hingað aftur“, anzaði hundasalinn. Hjúskaparauglýsing Eftirfarandi augl}rsing stóð nýlega í er- lendu lilaði: Róndi um fertugt óskar eftir að kynnast þrítugri stúlku, sem á skurð- gröfu, með hjónaband fyrir augum. Nafn ásamt mynd af skurðgröfunni sendist hlað- inu.

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.