Samtíðin - 01.11.1971, Qupperneq 10
6
SAMTlÐlN
KVEN NAÞÆTTI R
SÝNINGAHSTCLKAN hér á myndinni
er í kjól frá Patou í París. Þegar við virð-
um liann fyrir okkur, eru áhrifin frá
Chanel greinileg. Þeirra gætir reyndar hjá
flestum tízkuhúsum borgarinnar. Þessi
kjóll er úr rauðu krep-ullarefni. Pilsið er
stórfellt, og skokkurinn er rykktur í mitt-
ið. Efri partur er blúsandi í mittið, og er
það eitt af nýjustu einkennum tízkunnar
í dag. Ermar kjólsins eru langar og víðar
og rykktar við úlnliðinn. Þetta er fallegur
kjóll og fer þeim vel, sem bera sig vel
og eru léttar í hreyfingum.
Andlitshrukkur
EKKI hefur fundizt það kynjalyf, er geti
varið okkur hrörnun líkamans. Fyrstu
ellimörkin taka að gera vart við sig, þegar
við erum um tvítugt, því þá byrjar and-
litið að slapa, vöðvar þess taka að linast.
Margt fólk beitir andlitsvöðvunum ekki
rétt. Það hrukkar til að mynda ennið, lyft-
ir augnabrúnunum óeðlilega, kiprar munn-
inn og lætur hökuna slapa. lAIlt myndar
þetta óhjákvæmilegar hrukkur á aldurs-
skeiðinu milli tvítugs og áttræðs.
Sú er þó bót í máli, að unnt er að losna
við þess háttar hrukkur, ef við venjum
okkur af að mynda þær og hirðum hör-
undið vel. Hentugt er að líta í spegil, ef
við erum í þungu skapi og reyna að lina
Krommenie
VINYL FLÍSAR □ G GÚLFDLJKAR
SJÁLFGLJÁANDI - AUÐVELT VIÐHALD - MJLJKT UNDIR FÆTI
FÆST í DLLUM HELZTU BYGGINGAVÖRUVERZLUNUM LANDSINS.