Samtíðin - 01.11.1971, Side 12
8
SAMTlÐIN
Nýjasta Parísargreiðslan
hvernig liann reynist nýju kærustunni
sinni. Það skyldi þó aldrei í'ara svo, að
hann ln-ygðist henni líka ? Ef sú yrði raun-
in á, sæirðu bezt, hvern mann hann hefur
að gevma.
•fc Hættulegur þríhyrningur
B. skrifar: Systir mín giftist fyrir tveirn
árum. Við vorum ákaflega samrýmdar,
áður en hún fór að heiman. Nú kemur
liún alltaf til min, ef eitthvað bjátrar á og
hún þarf á ráðum að halda. Ég er þess
vegna hálfgerður heimagangur hjá
lienni og manni hennar. Og hvað held-
urðu, að liafi gerzt? Ekki annað en það,
að manni hennar lízt orðið betur á mig
en hana! Hann hefur meira að segja
sagt það við mig berum orðum, að sér
finnist ég miklu yndislegri en systir mín
og segist halda, að hann fari að elska
mig, ef ég komi svona oft heim til þeirra.
Hvernig á ég að hætta því, þegar systir
mín þarf svo oft á hjálp minni að halda?
SSVAR: Systir þín virðist vera ung og
óráðin. Þess vegna þarf hún að styðja sig
við aðra. Ég held, án þess að ég geti
raunar fullyrt nokkuð um það, að ef þú
liættji’ að venja komur þínar til hennar,
muni hún leita trausts og halds hjá
manni sinum í staðinn fyrir að leita allt-
af til þín af gömlum vana. I þínum
sporum mundi ég því hiklaust draga mig
í hlé. Og sannaðu til, að við það niunu
ungu hjónin treysta kærleiksböndin sin
á milli. Það væri sannarlega ógæfulegt,
ef þú yrðir til þess að spilla hamingju
þeirra með sifelldri návist þinni. Svo-
nefndir ástarþríhyrningar geta reynzl
hættulegir.