Samtíðin - 01.11.1971, Síða 15

Samtíðin - 01.11.1971, Síða 15
SAMTÍÐIN 11 getur grunað, hvílíkt starf býr að baki mynd- sköpunar af því tagi? Þegar mikill listamað- ur tekur sér fyrir hendur að stilfæra mann- lí'fið, hvort heldur í lesm’áli, tónum eða litum, er hann með nokkrum hætti að fást við ein- hverja þá æðstu sköpun, sem hugazt getur. Degas fórnaði listarstarfi sínu öllum með- fæddum gáfum sínum, lærdómi og menntun og jafnvel mannorði sínu að því leyti, að samtímagagnrýnendur áfelldust óspart við- horf hans til viðfangsefna, sem þeir hneyksl- uðust á. Sjálfur taldi hann listtúlkun sína algert einkamál sitt, fullkomlega friðheilagt og óviðkomandi áreitnum blaðamönnum. Hann var yfirstéttarmaðurinn, sem hafði viðbjóð á hvers konar sýndarmennsku og var mótfallinn opinberri viðurkenningu, orðu- veitingum og þess háttar. Hann þráði umfram allt frið og næði og brynjaði sig hörku í viðskiptum við þá, er gerðu honum ónæði og töfðu hann. Því var sagt, að hann væri kaldhæðinn og illur viður- skiptis. Eftir lát hans kom hins vegar í Ijós, að hann hafði verið maður viðkvæmur, mild- ur og skilningsríkur í garð vina sinna. Stirfni hans í viðmóti var einungis sjálfsvörn við- kvæmrar sálar, er löngum hafði þjáðst af þjakandi efasemdum, en var jafnframt gagn- tekin listrænum hugsjónum, sem hann efað- ist aldrei um, að væru sér örugg leiðarvísun. Hann bar takmarkalausa virðingu fyrir tækni- kunnáttu listmálarans, sem hann taldi nauð- synlega forsendu sannrar listsköpunar. Á hinu æðra, óskilgreinalega sviði myndlistar- innar var hann lengst af á heillavænlegri þróunarbraut, keyrður áfram af miskunnar- lausri sjálfsgagnrýni. Bezt lét honum að rnála myndir sínar í friði og ró vinnustofunnar að undangengnum hárnákvæmum athugunum úti í stórborginni. Minni hans á það, sem þar hafði borið fyrir augun, var afburða trútt. Hann gat því skilað fyrirmyndunum á léreft- ið eftir minni og magnað þær og stílfært í kyrrð vinnustofunnar með hugmyndaflugi sínu og tæknikunnáttu. Svo kom reiðarslagið. Degas fór að missa sjónina. Sjóndepran magnaðist eftir 1890. Hann hafði gegnt herþjónustu í þýzk-franska stríðinu 1870. Kom þá í ljós, að hann var næstum blindur á hægra auga. Hann brást karlmannlega við sjóndeprunni. Hann átti sér háþróaða kunnáttu og innri skáldsýn, þótt augu hans myrkvuðust. Viðbrögð hans voru m.a. í því fólgin, að hann tók að mála stærri myndir með færri og sterkari drátt- um en áður. Allt hið smágerðara í myndsköp- un hans frá fyrri tíð hlaut nú að víkja. Hann sá það ekki framar. Á vissan hátt fullkonm- aðist list hans í þessum lokaátökum við mein- leg örlög. Auk þess tók hann nú til við högg- myndagerð og varð brátt einn af meisturum samtíðar sinnar í þeirri listargrein. En þar kom, að hann varð að gefast upp. Myrkrið lamaði allt framtak hans. Síðustu æviár meistarans urðu æði dapur- leg. Beztu vinir hans dóu. Þar við bættist, að húsið, sem hann hafði dvalizt í mestan hluta ævinnar, var rifið ofan af honum. Svo skall á heimsstyrjöldin fyrri. Pólitísk vitfirr- ing ógnaði menningu Norðurálfunnar. Tor- tíming saklausra hermanna, svo að milljónum skipti, af öllum stéttum menningarþjóðanna fylltu viðkvæmar sálir vonleysi og ógn. Há- reystin frá fallbyssunum barst til Parísar, þar sem hálfblindur snillingur eigraði einmana um göturnar. Og septemberdag einn 1917 slokknaði lífsljós hans, eftir að hann hafði varið allri ævinni til að gefa heiminum ei- líft líf í litum og línum. Forstjórinn: „Vitið bér, fröken, hve- nær við hættum hér störfnm?“ anzaði nýi einkaritarinn bros- andi, „þegar einhver bankar á dyrnar GÓÐUR mánuður byrjar með því, að menn gerast áskrifendur að SAMTÍÐINNI. ORÐSEMDIIMG Nýir áskrifendur að SAMTÍÐINNI fá senda árgangana 1969, 1970 og 1971 fyrir aðeins 550 kr., ef greiðsla fylgir pöntun. SAMTÍÐIN, Pósthólf 472, Reykjavík. Alls konar myndatökur Einnig passamyndir, teknar í dag, tilbúnar á morgun. Studio GESTS, Laufásvegi 18 a — Sími 2-40-28

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.