Samtíðin - 01.11.1971, Síða 19

Samtíðin - 01.11.1971, Síða 19
SAMTÍÐIN 15 GÖV DB CAR8, FRAN8KLR IVIETSÖLIIHÖFIJNDUR AF gömlum vana verður mér einlægt fljót- lega litið í bókabúðaglugga, ef ég staldra við í erlendri borg. í frönskum bókagluggum eru ávallt til sýnis nýjar bækur ásamt „sígildum“ eldri bókum í viðhafnarútgáfum. Undanfarin sumur hefur alltaf skartað þar ný bók eftir Roger Peyrefitte fremst í glugga. Hann er einn af bersöglustu og snjöllustu skáldsagna- höfundum Frakka í dag og byggir verk sín á sönnum viðburðum, svo að fólk bíður hverr- ar bókar hans með forvitni og hugsar: Hvaða skandala skyldi hann nú afhjúpa næst? Á síðastliðnu sumri stóð ný skáldsaga, sem nefndist „Kona nokkur“, eftir Guy des Cars við hlið nýju Peyrefitte-bókarinnar, og dag- inn eftir að ég veitti þessu athygli, las ég í blaði, að fyrstu dagana eftir útkomu hennar hefðu selzt 155.000 eintök af henni. Þetta var í miðjum júlí. í Frakklandi koma bækur út í stríðum straumum allan ársins hring, flestar óinnbundnar, en ekki sem gjafavara í bandi skömmu fyrir jól. Upp á síðkastið eru gefin þar út feiknin öll af pappakiljum, sem, nefn- ast vasabækur og eru bæði handhægar og ó- dýrar. Nú er að segja frá Guy des Cars. Mánuði eftir að ég las, að 155.000 eintök hefðu selzt af nýju bókinni hans á nokkrum dögum, nam salan orðið 255.000 eintökum. En meðan það gerðist, hafði ég lesið mér til ánægju nokkrar af bókum skáldsins. Þar fer allt saman: spenn- andi atburðarás, hæfilegur hraði, frábær mannþekking og notalegur stíll. Hugsun þessa höfundar er það skýr, að bækur hans eru auðskildar útlendingum, en ekki jafn tor- lesnar og bækur þeirra höfunda, þar sem mælgin ber misskýra hugsun ofurliði og vefst um hana eins og illgresi um þróttminni nytja- jurt. Guy des Cars gerir sér títt um konur í sög- um sínum, og í sumarleyfi sínu 1971 kvaðst hann halda sig í spilavítum Blástrandarinnar til að athuga( hvernig konur höguðu sér í áhættuspilum, en þá tilburði sagðist hann ætla að nota í næstu sögu sína. Hann er reynd- ar búinn að gera spilamennsku kvenþjóðar- innar skil í eldri sögum, en tímarnir breyt- ast og konurnar með. Þessi töframaður franskra bókmennta í dag er 61 árs og hefur skrifað 32 bækur. Sum- ar þeirra hafa verið þýddar á 24 tungumál- um, og staðhæft er, að bækur hans hafi selzt í samtals um 80 millj. eintaka. Tvær af sög- um hans hafa verið gefnar út í meir en 4 millj. eintaka hvor. Aðspurður, hvað ylli þessum miklu vinsæld- um sagði skáldið: Tvennt. Fyrst og fremst verður maður að trúa því, sem maður skrifar. Hvernig er hægt að ætlast til, að aðrir geri það, ef maður gerir það ekki sjálfur? Auk þess verður að skrifa um áhugaverð efni á hrífandi hátt. Guy des Cars telur sér það happ að hafa upphaflega verið blaðamaður, enda þótt hann flosnaði brátt upp frá blaðamennskunni. Hann bendir á, að fyrstu bók sína, „Nafnlausa liðs- foringjann", frá 1940 hafi hann skrifað í fréttamannastíl. í annarri skáldsögu sinni, „Konunni í hringleikhúsinu“, telur hann sig hafa náð tökum á að beita skáldbrögðum, en í þriðju bók sinni, „Dómkirkju hatursins“, segist hann hafa komizt á lag með að skrifa skáldsögu. Síðan kveðst hann í sögum sínum hafa tekizt á við efni, sem varða vandamál einstaklinga og þjóðfélagsins í heild. Þessi höfundur vinnur eins og víkingur. „Þetta með trúna á það, sem ég skrifa, nægir auðvitað ekki“, segir hann. „Ritstörfin krefj- ast vinnu og traustrar þekkingar á viðfangs- efnunum. Vitund mín er eins og svampur, sem sígur í sig staðreyndirnar. Síðan pressa ég þær hægt, jafnvel í dropatali, inn í verkið, en gæti þess að ofnýta þær aldrei“. Aðspurður, hve Guy des Cars væri yfirleitt lengi að skrifa skáldsögu, svaraði hann: „2-3 ár núorðið. Mér liggur auðvitað ekki eins mikið á núna og í upphafi. Ég byrja á því að segja sjálfum mér söguna mína hægt og ró-

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.