Samtíðin - 01.11.1971, Side 22
18
SAMTlÐIN
og dást að þeim, til að þaullesa þær og
læra ai' þeim, til að njóta þeirra. Þess hátt-
ar fólki hef ég gaman af að selja bækur.
En sumir leggja fé sitt í bækur, og yður
er óhætt að trúa því, að það borgar sig.
Hér um bil allir kaupsýslumenn í þessum
heimi selja eitthvað, sem annaðhvort er
ætt eða nothæft til einhvers: kjöt og kart-
öflur, sjónvarpstæki og ísskápa. Forrétt-
indi mín eru í því fólgin að selja ánægju,
þekkingu og óskadrauma. Þar við bætist,
að viðskiptavinur minn og stéttarhræðra
minna veit, að bókin, sem hann er að
kaupa, verður orðin margfalt verðmætari
eftir 10 ár. Isskápur er orðinn helmingi
verðminni, skömmu eftir að búið er að
selja hann, og eftir nokkur ár er hann
orðinn ónýtur“.
BLM: „Ykkur fornbókásölum er mein-
illa við „bókaslátrarana“, sem þið nefnið
svo“.
F de N: „Allir fornbókasalar vita, að
Chastillons staðalýsingarnar frönsku frá
1648 eru næstum því orðnar ófáanlegar í
bókarformi, af þvi að bóksalarnir hafa
skorið þetta rit sundur og sclt það í blöð-
um til að ramma inn og liengja upp á
veggi. Þetta er hneyksli! Eg keypti eintak
af þessari l)ók árið 1945 og seldi það aftur
1947. Fyrir þrem árum keypti ég svo sama
eintakið í New York 10 sinnum hærra
verði en ég hafði selt j)að!“
Fernand de Nobele og stéttarbræður
hans hata „bókaslátrarana“ svo mjög
vegna sundurlimunar þeirra á gömlum,
dýnnætum bókum, að þeir segjast vel geta
horft á þessa bókaspilla verða sjálfa fyrir
ámóta meðferð og bækurnar!
Guðm. Arnlaugsson: 59. grein
SKALDSKAPUR
Á SKÁKBORÐI
B M ¥M
m m m m
mm a mt
Lausn á skákdæminu í síðasta l)laði:
1. Ha2 og mátar i 2. leik, hverju sem
svartur svarar. Takið eftir því að í. Hc2
strandar i\ 1. — Dc7 og 1. — Hd2 á 1.—
Dd6! Svartur er patt, ef hvítur drepur
drottninguna.
Lítum á annað verðlaunadæmi eftir
Otto Wurzburg.
89. Otto Wurzburg.
1. verðl. hjá American Chess Bulletin
1947.
Ka5, Dc7, Hg6, Bd5.
Ka8, Ha7, Hb8, Bg7, Pa6, Ph7, Pc5.
Hvítur á að máta í 3. leik.
Þetta dæmi er sennilcga auðveldast að
leysa með því að athuga hlutverk hvítu
mannanna hvers um sig.
Kóngurinn virðist standa á a5 til þess
að koma í veg fyrir að peðinu á a6 sé
leikið fram, drottningin virðist naumast
geta verið hetur staðsett cn hún er, biskup-
inn má ekki hreyfa af skálínunni vegna
skákar og tilgangslítið virðist að hreyl'a
FRAMKÖLLUN - KÓPÍERING
flttiatcrúerjluniH
Laugavegi 55, Reykjavík. Sími 22718
MINJAGRIPIR GG GJAFAVÖRUR
VIÐ ALLRA HÆFI.
Skartgripaverzlunin EIVIAIL
HAFNARSTRÆTI 7 - SIMI 2-D4-7I