Samtíðin - 01.11.1971, Side 35
SAMTlÐIN
31
ÞEIR
VITRU SÖGÐU
IW ________________
ÍSAK JÓNSSON: „Aðalatriðið í lífinu er
að legg'ja sig fram við hvert það starf, sem
býðst“.
G. K. CHESTERTON: „Ég trúi ekki á
blind forlög, sem menn falla fyrir, hvern-
ig sem þeir breyta, en ég trúi á ill forlög,
sem menn verða fyrir, ef þeir aðhafast
ekkert“.
BERNARD SHAW: „Beztu umbóta-
menn, sem heimurinn hefur eignazt, byrj-
uðu lækninguna á sjálfum sér“.
CASTLEROSSE: „Æska og elli ættu að
vera hamingjusamleg æviskeið, því að
æskufólk hefur ekki hugmynd um, hvað
það á fyrir höndum, og gamalt fólk er
búið að ljúka svo miklu amstri“.
STEPHEN LEACOCK: „Ég er mjög
trúaður á hamingjuna, og ég hef þreifað
á því, að því meira sem ég vinn, þeim
mun hamingjusamari verð ég“.
SVEN MÖLLER KRISTENSEN: „Skáld-
skapur er nytsamur, að maður segi ekki
ómissandi, af því að hann veitir andlegum
þroska okkar auðugustu næringuna og
leitast við að gera okkur að heilsteyptum
mönnum“.
LIN YUTANG: „Fégræðgi gerir menn
oft að hugleysingjum, en valdagræðgi ger-
ir þá alltaf að ruddamennum. Það er sú
versta ást, sem til er. Ást á fjármunum
særir aðra menn sjaldan, en valda- og
framalöngun gerir það ævinlega. Fégráð-
ugir menn kúga almenning, valdagráðugir
menn kúga mikilmennin“.
OSCAR WILDE: „Meðan litið er á stiíð
eins og hvern annan fantaskap, verður
alltaf eitthvað heillandi við þau. En þegar
farið verður að álíta þau viðbjóðsleg,
hætta þau að heilla hugi manna“.
BÓKAMARKAÐINUM
Þorsteinn Erlingsson: Rit I-III. Ljóðmæli, sögur,
ritgerðir. Tómas Guðmundsson sá um útgáf-
una 964 bls., íb. kr. 1200.00
Haim G. Ginott: Foreldrar og táningar. Upp-
eldishandbók. Björn Jónsson þýddi. 179 bls.,
ób. kr. 335.00, íb. kr. 435.00.
Ingibjörg Sigurðardóttir: Ástir og hetjudáð.
Skáldsaga. 154 bls., íb. kr. 260.00.
Jónas Jónsson: Samferðamenn. Minningaþætt-
ir. Með myndum. Jónas Kristjánsson bjó til
prentunar. 288 bls., ib. kr. 500.00.
Nú—Nú, bókin sem aldrei var skriíuð. Minn-
ingar Steinþórs Þórðarsonar á Hala í Suður-
sveit. Með myndum. Stefán Jónsson sá um
útgáfuna. 511 bls., íb. kr. 538.00.
Hannes Jónsson: Hið guðdómlega sjónarspil.
Endurminningar. Með myndum. 176 bls., ib.
kr. 448.00.
Gunnar M. Magnúss: Það voi'aði vel 1904. Geng-
ið í gegnum eitt ár Islandssögunnar og það
eitt hinna merkari og atburðir þess raktir
frá degi til dags. Með myndum. 288 bls., íb.
kr. 700.00.
Jakobína Sigurðardóttir: Sjö vindur gráar. Smá-
sögur. 168 bls., íb. kr. 535.00.
Jón Helgason: Vér Islands börn. III. bindi. Frá-
sagnir af íslenzkum örlögum og eftirminni-
legum atburðum. 216 bls., ib. kr. 620.00.
Margrét Jónsdóttir: Kökur Margrétar. 2. útg.
Með myndum. Leiðbeiningar við kökugerð.
.83 bls., íb. kr. 235.00.
Sóley í Hlíð: Maður og mold. Skáldsaga. 312
bls. íb. kr. 445.00.
Eíinborg Lárusdóttir: Hvert liggur leiðin? Bók
um fjóra landskunna miðla og samstarf höf-
undarins við þá. 220 bls., íb. kr. 535.00.
Þórbergur Þórðarson: Islenzkur aðall. Endur-
minningar. 3. útg. 233 bls., íb. kr. 640.00.
Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaupið
bækurnar og ritföngin bar, sem úrvalið er
mest. Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Bókaverslun ÍSi\FOLiÞJk B
Austurstræti 8 — Reykjavík — Sími 1-45-27