Fréttablaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI9. júlí 2010 — 159. tölublað — 10. árgangur FÖSTUDAGUR skoðun 16 3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Reykjanesbær Föstudagur veðrið í dag Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 ÚLFALDI úr mýflugu er tónlistarhátíð sem haldin verður í Mývatnssveit þriðja árið í röð nú um helg-ina. Meðal þeirra hljómsveita sem koma fram eru Bróðir Svartúlfs og Agent Fresco. Frítt er á tónleik-ana og ekkert aldurstakmark. „Þetta er bara tínt úti í haga,“ segir Elín Stephensen kennari um haga-salat sem hún gefur lesendum upp-skrift að. „Ég hef verið að prófa mig áfram og smakka til það sem mér finnst best saman. Það eru jú afskaplega fáar íslenskar tegund-ir sem eru eitraðar. Þannig að það er bara spurning um að labba út í móa með skál og safna.“Elín byrjaði að gera hagasalat-ið fyrir um fimm árum. En hvern-ig datt henni þetta í hug? „Ég er sveitastelpa í eðli mínu og hef allt-af haft óskaplega gaman af blóm-um og jurtum,“ segir Elín semer kennari í R Nýtir villta náttúrunaElín Stephensen fer út í móa til að tína plöntur og blóm í hagasalt sem hefur slegið í gegn meðal gesta hennar. Hún prófar og smakkar mismunandi plöntur saman og gefur lesendum uppskrift að hagasalati. Elín Stephensen hefur leyft nemendum sínum að smakka hagasalatið og segir þá kunna vel að meta það. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 10 frekar lítil njólablöð15 stór túnsúrublöð10 stór blöð af maríustakk og hnefafylli af blómum10 stk. klóelfting1 hnefi blóðberg, blöð og blóm1 hnefi smári, blöð og blóm1 hnefi túnfíflablóm, bikarblöðin skorin frá ef vill Mikilvægt er að tína aðeins nýjblöði Hagasalat Elínarfyrir fjóra V i 4ra rétta Góð tækifærisgjöf! Kryddlegin bleikjameð rússneskri pönnuköku, dillrjóma og piparrótarsósuHumarsúparjómalöguð, með Madeira og grilluðum humarhölum Fiskur dagsinsþað ferskasta hverju sinni; útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar *** eða / Or *** Lambatvennameð steinseljurótarmauki, aspas, rófu, soðkartöflu og basil-myntu gljáa Kókoshnetu Tapiocameð steiktu mangói og lychee sorbet Verð aðeins 7.290 kr. tilboðsseðill reykjanesbærFÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010 föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 9. júlí 2010 Þjóðlegt safn Tilgátuhúsið að Eiríksstöðum í Dölum var vígt fyrir tíu árum. tímamót 18 Gefðu boltann! 1.500 króna sending til þurfandi í Afríku Um helgina verðum við í Smáralind og fyrir framan stærstu verslunarkjarna borgarinnar soleyogfelagar.is Bæklingur frá Kjötkompaníi fylgir með Fréttablaðinu í dag Þúsundir daglega OPIÐ 11 - 19 ALLA DAGA VIKUNNAR ÉG ER OG BRAGÐGÓÐ JÓGÚRT SEM KEMUR Á ÓVART Kauptu mig! Úr rokki í leiklist Einn besti trommari landsins, Bjössi í Mínus, fer í leiklistarnám í haust. fólk 34 ORKUMÁL Notkun varmadæla á stöðum þar sem ekki er nægur jarðhiti til beinnar húshitunar gæti sparað tugi megavatta á ári, segir Þorsteinn I. Sigfússon, prófessor við Háskóla Íslands og forstjóri Nýsköpunar- miðstöðvar Íslands, í grein í Fréttablaðinu í dag. Þorsteinn segir í greininni ekkert að vanbúnaði að byrja að setja upp varmadælur á tólf stöðum á landinu. Það myndi skapa atvinnu í hátæknigrein- um auk þess að spara rafmagn og draga úr mengun. „Varmadælubyltingin gæti orðið að stærðargráðu sem jafna mætti við nýja virkjun,“ skrifar hann. „Ef enn lengra yrði gengið mætti koma til móts við mikla mengun samfara varaaflstöðvum í kötlum sem brenna olíu.“ - bs / sjá síðu 17 Þorsteinn I. Sigfússon: Orkubylting í varmadælum BJART SYÐRA Í dag verða víðast norðan 3-8 m/s. Skýjað með köflum og minnkandi úrkoma norðan til en bjartviðri syðra. Hiti 10-18 stig, hlýjast S-lands. VEÐUR 4 10 14 14 13 10 Á ÚTKIKKI Á ARNARHÓL Þessi stóri, svarti hundur horfði á stjórnarráðshúsið í gær líkt og þaðan væri stórra tíðinda að vænta á meðan aðrir slökuðu á og nutu veðurblíðunnar sem lék við borgarbúa. LÖGGÆSLA Þrír menn voru handteknir af norsku öryggislögreglunni í gær grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Mennirn- ir, sem eru frá Írak, Úsbekistan og Kína, eru taldir tengjast Al Kaída hryðjuverka- samtökunum og að hafa ætlað að framleiða sprengiefni. Magnus Ranstorp, sænskur sérfræðing- ur í hryðjuverkastarfsemi, segir við Frétta- blaðið að ekki komi á óvart að hryðjuverka- mennirnir hafi valið Noreg. Hann segir líklegt að hryðjuverkamenn líti í auknum mæli til landa þar sem þeir telja minna eft- irlit með mögulegri hryðjuverkastarfsemi. Í mati ríkislögreglustjóra á skipulagðri glæpastarfsemi og hættu á hryðjuverkum frá því í mars kemur fram að hættustig á Íslandi hafi talist sambærilegt við það sem er á öðrum Norðurlöndum og að nauðsyn- legt sé að yfirvöld haldi vöku sinni. Enn- fremur er þar bent á að íslenska lögreglan býr ekki yfir forvirkum rannsóknarheim- ildum og má því ekki safna upplýsingum um einstaklinga eða lögaðila liggi ekki fyrir rökstuddur grunur um tiltekið afbrot. Þess vegna eru möguleikar lögreglunnar á Íslandi til þess að fyrirbyggja hryðjuverk ekki taldir þeir sömu og á hinum Norður- löndunum. Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, segir að verið sé að skoða hvort veita eigi lögreglunni forvirkar rannsóknarheimildir. „Við ætlum að skoða þetta og láta réttar- farssérfræðinga vinna tillögur að því hvernig slíkar heimildir myndu líta út og undir hvaða eftirliti þær væru, því það er alveg klárt að ef lögreglan fær slíkar heim- ildir þarf að vera skýr rammi um það hve- nær má nota þær og hvers konar eftirlit er með notkun þeirra,“ sagði Ragna. Ragna telur atburðina í Noregi áhyggju- efni en segir að miðað við þau gögn sem liggi fyrir á Íslandi stafi meiri hætta af skipulagðri glæpastarfsemi. Spurð hvort endurmeta eigi hættuna á hryðjuverkastarf- semi á Íslandi í kjölfar atburðanna sagði Ragna of snemmt að segja nokkuð til um það. - mþl, þeb / sjá síðu 6 Hryðjuverk til Norðurlanda Þrír handteknir í Noregi grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Hryðjuverkamenn líta í auknum mæli til landa þar sem slík starfsemi þekkist ekki. Forvirkar rannsóknarheimildir til skoðunar, segir ráðherra. Ég held að Íslendingum stafi meiri hætta af skipulagðri glæpastarfsemi. MAGNUS RANSTORP SÉRFRÆÐINGUR VIÐ FORSVARSHÖGSKOLAN Í STOKKHÓLMI Blikar í banastuði Alfreð Finnbogason skoraði þrennu fyrir topplið Blika í gær. sport 28, 30 & 31 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N DÓMSMÁL Slitastjórn Glitnis rær nú að því öllum árum að fá aðgang að gögnum í vörslu hússtjórnar glæsi- hýsis á Manhattan-eyju þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingi- björg Pálmadóttir eiga tvær lúxus- íbúðir. Telur slitastjórnin að gögn- in, auk gagna úr Royal Bank of Canada, séu nauðsynleg til að rekja slóð þess fjár sem hjónin eru sökuð um að hafa svikið út úr Glitni. Þegar íbúðirnar voru keyptar gerði hússtjórnin kröfu um að lagð- ar yrðu fram ýmsar viðkvæmar upplýsingar um persónulega hagi og fjármál Jóns Ásgeirs og Ingi- bjargar. Mjög er nú bitist um þau gögn fyrir rétti í New York, líkt og upplýsingar um nýlega tíu milljóna dollara uppgreiðslu Ingibjargar á láni af reikningi hjá Royal Bank of Canada. Jón Ásgeir og Ingibjörg hafa krafist þess að dómari hafni aðgangi að gögnunum. Þau séu persónuleg og varði ekki málið á hendur þeim. - sh / sjá síðu 10 Slitastjórn reynir að komast yfir persónuleg gögn um Jón Ásgeir og Ingibjörgu: Óttast opinberun hússtjórnargagna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.