Fréttablaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 34
9. JÚLÍ 2010 FÖSTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● reykjanesbær
„Með þessu framtaki vildum við
breyta þeim viðteknu hugmynd-
um sem fólk hefur um víkinga
sem slagsmálahunda með því að
leggja áherslu á uppfinningar
þeirra og að sama skapi vekja at-
hygli á sjálfu safninu og einstök-
um menningararfi Íslendinga,“
segir Elisabeth Ida Ward, sýning-
arstjóri Víkingaheima í Reykja-
nesbæ, sem stóð í sumar í fyrsta
sinn fyrir víkinganámskeiðum
ætluðum börnum og unglingum.
Þátttakendur fengu meðal ann-
ars að kynnast skartgripa- og
skipasmíði, ullarvinnslu og húsa-
gerð víkinga, sem voru að sögn
Elisabeth duglegir í að nota það
sem var til á hverjum stað, svo
sem grjót, torf, mold, rekavið og
fleira. „Böðvar Gunnarsson járn-
smiður sýndi líka meðal annars
hversu góðir járnsmiðir víkingar
voru,“ tekur hún sem dæmi og er
ekki í vafa um að margt sem fyrir
augu bar hafi komið á óvart.
Margt fleira verður í boði í Vík-
ingaheimum. Þar er nú til dæmis
sýning um nýjan fornleifafund frá
Vogi í Höfnum, víkingaskipið Ís-
lendingur er til sýnis og í haust
hefjast aftur sýningar á einleikn-
um Ferðasaga Guðríðar, um ferð
Guðríðar Þorbjarnardóttur frá Ís-
landi vestur um haf.
Allar nánari upplýsingar um
Víkingaheima á www.vikinga-
heimar.com og á Facebook. - rve
Einstakir uppfinningamenn
Elisabeth Ida Ward og Böðvar Gunnarsson í víkingaklæðum, ásamt hópi hressra
krakka sem tóku þátt í víkinganámskeiði á vegum Víkingaheima. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Það hefur verið gestkvæmt hjá
skessunni í hellinum það sem af
er sumars en nýverið var lögð ný
gönguleið að hellinum og settir
upp bekkir þar sem hægt er að
tylla sér og snæða nesti á meðan
notið er útsýnis yfir smábáta-
höfnina í Gróf.
Skessan er fimm metra há og
400 ára gömul en börnin þurfa
ekki að óttast hana því hún hefur
gott hjarta. Þegar vel liggur á
skessunni býður hún í lummur
og margir krakkar eru duglegir
að senda henni bréf í póstkass-
ann hennar í hellinn eða á vefinn
hennar, skessan.is.
Gestkvæmt hefur verið hjá skessunni í hellinum.
Skessan er 5 metra há og 400 ára gömul.
Ný göngu- og hjólaleið með-
fram ströndinni í Reykjanesbæ
er strax orðin vinsæl til úti-
vistar og hreyfingar og eykur
um leið söguvitund íbúanna
því upplýsingaskilti við hana
geyma fróðleik um menningu,
sögu og dýralíf.
„Svona stígur er nauðsynlegur í
sjávarplássi,“ segir Árni Sigfús-
son, bæjarstjóri Reykjanesbæjar,
um nýja gönguleið sem liggur frá
smábátahöfninni við Bergið, með-
fram Keflavík og Njarðvíkum,
áleiðis upp á Vogastapa, alls tíu
kílómetra leið. Hann bendir á að
stígurinn skapi eiginlega byltingu
því útivist meðfram hafinu teljist
til lífsgæða sem allir geti nú notið,
óháð efnahag eða stöðu.
„Strandleiðin hefur fjölnota
gildi, þar er hægt að ganga, skokka
eða hjóla og njóta um leið náttúru,
fróðleiks og dýralífs auk þess að
láta hugann reika,“ tekur hann
fram. Sjálfur kveðst hann yfirleitt
hlaupa á morgnana eða kvöldin, að
minnsta kosti rölta eða hjóla.
Stígurinn hefur orðið til á síð-
ustu tveimur árum og Árni rekur
tilurð hans til framkvæmda
vegna landrofs. „Ströndin með-
fram Keflavík og Njarðvík var
víða brotin og kjallarar húsa við
Hafnargötuna í hættu. Það var því
mjög mikilvægt að verja strand-
lengjuna fyrir sjógangi. Til þess
nýttum við grjót úr Helguvíkur-
framkvæmdunum og landmegin
við varnargarðinn myndaðist gott
svæði fyrir göngustíg.“
Sjóvarnagarðarnir eru úr 200
þúsund ára grágrýti sem sprengt
er úr hraunlagastabbanum í
Helguvík. „Við byrjuðum á þess-
um framkvæmdum fyrir einum
fimm árum en landið þurfti að fá
að síga og jafna sig og það hefur
tekið tíma. Því vorum við nú að
ljúka gerð strandleiðarinnar,“ lýsir
Árni og segir upplýsingaskilti hafa
verið sett upp á stóra steina með-
fram henni.
„Fólk uppgötvar merkilega hluti
þegar það fer um stíginn því þar
eru ýmsar minjar um sjósókn í
þessu gamla sjávarplássi. Við
ströndina eru varir sem notaðar
voru til útræðis og gamlir menn
þekktu. Þær voru horfnar, eða
ekki hægt að ganga að þeim leng-
ur, en okkur tókst að verja þær og
tengja við gönguleiðina. Þar erum
við með sagnfræðipunkta sem
segja sögu sjósóknara. Þannig
gefst íbúum og gestum tækifæri til
að fræðast um sögu og helstu ein-
kenni bæjarfélagsins og njóta um
leið útivistar í fallegu umhverfi.“
- gun
Lífsgæði óháð efnahag
„Fólk uppgötvar merkilega hluti þegar
það fer um stíginn því þar eru ýmsar
minjar um sjósókn í þessu gamla sjávar-
plássi,“ segir bæjarstjórinn Árni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ganga meðfram hafinu er góð heilsubót. MYND/DAGNÝ GÍSLADÓTTIR
Skessan alltaf vinsæl
ERTU AÐ FARA
Í SUMARFRÍ?
Pósthúsið ehf. annast dreifingu Fréttablaðsins,
nánari upplýsingar á www.visir.is/dreifing
Þú getur afpantað Fréttablaðið á meðan þú ert að heiman.
Hafðu samband í grænt númer 800-1177 eða sendu póst
á netfangið dreifing@posthusid.is
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU