Fréttablaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 48
20 9. júlí 2010 FÖSTUDAGUR BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðs- sonar ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott Nei! Nei! Nei! Ekki mála mig núna! Ég verð að segja þér svolítið! Skjóttu! Ég kelaði við Þúrý- Lailu í gær! Bíddu! Ég datt aðeins út. Hvað segirðu...? Ekki vilj- andi! Hún gerði mér greiða! Ég trúi því! Það var kúnni á barnum að reyna við mig og Þurý-Laila losaði mig við hann með kossi! Ég hata þig smá núna! Hvernig var það? Nákvæmlega eins og ég bjóst við! Ég er að segja þér það - nákvæmlega eins! Lalalala lalala lalala! Fáviti! Augun þín eru svo brún. Þau eru brúnari en brúnasta brúnkaka á brúnum diski. Það er hárfín lína á milli ljóðrænnar upphafning- ar og örvæntingarfullrar tilraunar. Heldurðu að þú byrjir að vinna aftur þegar Hannes byrjar í skóla? Kannski Planið var alltaf að vera heima á meðan krakkarnir þurfa á mér að halda. SPÍÍT Gallinn er að þau munu aldrei hætta að þurfa á mér að halda. Ég get ekki sofið. Virðist ég vera svangur? Málfarsráðunautur RÚV skrifaði umhugsunarverða grein í Fréttablað- ið í vikunni, þar sem hann gagnrýndi skort á umburðarlyndi og þröngsýni í umræðu um íslenskt mál. Að hans mati er málum- vöndun til marks um staðnaðan hugsunar- hátt og vinnur gegn markmiðum um bætta málnotkun, því athyglin beinist aðallega að því neikvæða. Þessu eru ekki allir sammála, til dæmis Eiður Guðnason, sem bloggar um íslenskt mál. Honum þykir verra að „reiða- reksstefnan“ hafi náð bólfestu hjá RÚV. Eiður hefur reyndar margoft lýst því yfir að hann telji málfari hafa farið hnignandi hjá ríkismiðlinum; nú vaði málvillur og orð- skrípi uppi og til að bíta höfuðið af skömm- inni birti RÚV auglýsingar með enskuslett- um. Það sé af sem áður var. EIÐUR á sér vissulega marga skoðanabræð- ur, sem telja tungutaki og orðfæri í fjölmiðl- um fara sífellt hnignandi. „Iðulega vaða þar uppi flestar tegundir mállýta og málfátækt- ar,“ skrifar til dæmis einn fjölmiðlarýnir. „Brengluð orðtök, rangar orðmyndir, röng notkun forsetninga, hugtakaruglingur, barnaleg orðskrípi og útlendar slettur, svo að ekki sé talað um margs konar lágkúru og önnur þess konar dæmi um vanmátt höfundanna til þess að koma orðum að því, er þeir vilja sagt hafa.“ Þetta er eflaust eins og talað út úr hjarta margra. OG RÚV er ekki undanskilið þessari gagnrýni. „Jafnvel sú ríkisstofnun, sem að staðaldri lætur hina færustu og glögg- skyggnustu menn leiðbeina um gott málfar, þverbrýtur sjálf siðaboðin,“ skrifar sami rýnir og bendir á „fáránlega“ notkun sagn- arinnar að elska í sápuauglýsingu í Sjón- varpinu. Hann bætir svo við: „Meðan við það situr, sem nú er, gæti verið bót, að ein- beittum mönnum, sem íslenzku hafa numið, væri fengið það embætti að safna saman villunum og blöð og fjölmiðlunartæki skyld- uð til þeirrar syndakvittunar að birta af- glapaskrána vikulega. Þá kynni að vakna sá metnaður, að heldur drægi úr málspjöll- unum.“ NÚ kinka kannski sumir kolli og tauta eitthvað um orð í tíma töluð. Málið er hins vegar að þessi texti eftir Jón Helgason rit- stjóra birtist í Sunnudagsblaði Tímans 16. júní 1968. Hann er hins vegar nánast samhljóða málflutningi málumvöndunar- sinna í dag. Ef það vitnar ekki um staðnaða umræðu veit ég ekki hvað. HVERNIG ætli Eiði Guðnasyni hafi annars fallið gagnrýni Sunnudagsblaðs Tímans á bögubósana á RÚV fyrir 42 árum? Eiður var jú yfirþýðandi, fréttamaður og vara- fréttastjóri þar frá 1967 til 1978. Ætli það hafi hvarflað að honum að kannski væri Jón Helgason helst til dómharður? Molar um málfar og minni Helgarblaðið: Verksmiðjur úr byggfræjum - Líftæknifyrirtæki stefnir á að selja hráefni til að framleiða líffæri í menn. Er enn reimt á Kili? - Tvöhundruð ára gamalt mannshvarf kannski upplýst Kortaþjóð í þrjátíu ár - Greiðslukort í notkun síðan 1980 Ferðir: Draumalíf í Cannes - Jón Víðir Eggertsson rekur hótel við Miðjarðarhafs- strönd Frakklands. Spennandi hinsegin staðir - Þar sem nýgift samkyn- hneigð pör njóta lífsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.