Fréttablaðið - 09.07.2010, Síða 48
20 9. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðs-
sonar
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
Nei! Nei! Nei!
Ekki mála mig
núna!
Ég verð að
segja þér
svolítið!
Skjóttu!
Ég kelaði
við Þúrý-
Lailu í
gær!
Bíddu! Ég datt
aðeins út. Hvað
segirðu...?
Ekki vilj-
andi!
Hún gerði mér
greiða!
Ég trúi
því!
Það var kúnni
á barnum að
reyna við mig
og Þurý-Laila
losaði mig við
hann með
kossi!
Ég hata
þig smá
núna!
Hvernig
var það?
Nákvæmlega
eins og ég bjóst
við! Ég er að
segja þér það
- nákvæmlega
eins!
Lalalala
lalala
lalala!
Fáviti!
Augun þín eru svo
brún.
Þau eru brúnari
en brúnasta
brúnkaka á
brúnum diski.
Það er hárfín lína á milli
ljóðrænnar upphafning-
ar og örvæntingarfullrar
tilraunar.
Heldurðu að þú byrjir að vinna
aftur þegar Hannes byrjar í
skóla? Kannski
Planið var alltaf að vera heima
á meðan krakkarnir þurfa á
mér að halda.
SPÍÍT
Gallinn er að þau munu aldrei
hætta að þurfa á mér að halda.
Ég get
ekki sofið.
Virðist
ég vera
svangur?
Málfarsráðunautur RÚV skrifaði umhugsunarverða grein í Fréttablað-
ið í vikunni, þar sem hann gagnrýndi skort
á umburðarlyndi og þröngsýni í umræðu
um íslenskt mál. Að hans mati er málum-
vöndun til marks um staðnaðan hugsunar-
hátt og vinnur gegn markmiðum um bætta
málnotkun, því athyglin beinist aðallega að
því neikvæða. Þessu eru ekki allir sammála,
til dæmis Eiður Guðnason, sem bloggar um
íslenskt mál. Honum þykir verra að „reiða-
reksstefnan“ hafi náð bólfestu hjá RÚV.
Eiður hefur reyndar margoft lýst því yfir
að hann telji málfari hafa farið hnignandi
hjá ríkismiðlinum; nú vaði málvillur og orð-
skrípi uppi og til að bíta höfuðið af skömm-
inni birti RÚV auglýsingar með enskuslett-
um. Það sé af sem áður var.
EIÐUR á sér vissulega marga skoðanabræð-
ur, sem telja tungutaki og orðfæri í fjölmiðl-
um fara sífellt hnignandi. „Iðulega vaða þar
uppi flestar tegundir mállýta og málfátækt-
ar,“ skrifar til dæmis einn fjölmiðlarýnir.
„Brengluð orðtök, rangar orðmyndir, röng
notkun forsetninga, hugtakaruglingur,
barnaleg orðskrípi og útlendar slettur,
svo að ekki sé talað um margs konar
lágkúru og önnur þess konar dæmi
um vanmátt höfundanna til þess að
koma orðum að því, er þeir vilja
sagt hafa.“ Þetta er eflaust eins og
talað út úr hjarta margra.
OG RÚV er ekki undanskilið þessari
gagnrýni. „Jafnvel sú ríkisstofnun, sem
að staðaldri lætur hina færustu og glögg-
skyggnustu menn leiðbeina um gott málfar,
þverbrýtur sjálf siðaboðin,“ skrifar sami
rýnir og bendir á „fáránlega“ notkun sagn-
arinnar að elska í sápuauglýsingu í Sjón-
varpinu. Hann bætir svo við: „Meðan við
það situr, sem nú er, gæti verið bót, að ein-
beittum mönnum, sem íslenzku hafa numið,
væri fengið það embætti að safna saman
villunum og blöð og fjölmiðlunartæki skyld-
uð til þeirrar syndakvittunar að birta af-
glapaskrána vikulega. Þá kynni að vakna
sá metnaður, að heldur drægi úr málspjöll-
unum.“
NÚ kinka kannski sumir kolli og tauta
eitthvað um orð í tíma töluð. Málið er hins
vegar að þessi texti eftir Jón Helgason rit-
stjóra birtist í Sunnudagsblaði Tímans
16. júní 1968. Hann er hins vegar nánast
samhljóða málflutningi málumvöndunar-
sinna í dag. Ef það vitnar ekki um staðnaða
umræðu veit ég ekki hvað.
HVERNIG ætli Eiði Guðnasyni hafi annars
fallið gagnrýni Sunnudagsblaðs Tímans á
bögubósana á RÚV fyrir 42 árum? Eiður
var jú yfirþýðandi, fréttamaður og vara-
fréttastjóri þar frá 1967 til 1978. Ætli það
hafi hvarflað að honum að kannski væri Jón
Helgason helst til dómharður?
Molar um málfar og minni
Helgarblaðið:
Verksmiðjur úr byggfræjum
- Líftæknifyrirtæki stefnir á að
selja hráefni til að framleiða
líffæri í menn.
Er enn reimt á Kili?
- Tvöhundruð ára gamalt
mannshvarf kannski upplýst
Kortaþjóð í þrjátíu ár
- Greiðslukort í notkun
síðan 1980
Ferðir:
Draumalíf í Cannes
- Jón Víðir Eggertsson rekur
hótel við Miðjarðarhafs-
strönd Frakklands.
Spennandi hinsegin staðir
- Þar sem nýgift samkyn-
hneigð pör njóta lífsins.