Fréttablaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 18
18 9. júlí 2010 FÖSTUDAGUR timamot@frettabladid.is Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, Björns Eyþórssonar prentara, Álfheimum 60. Torfey Steinsdóttir Steinn Bjarki Björnsson Eyþór Hreinn Björnsson Ingunn Þorsteinsdóttir Darri Eyþórsson Dagný Yrsa Eyþórsdóttir Ægir Eyþórsson Útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa Sigurbergs Bogasonar frá Flatey á Breiðafirði, Kleppsvegi 32, Reykjavík sem lést 1. júlí sl., fer fram frá Laugarneskirkju, þriðjudaginn 13. júlí nk., kl. 15.00. Kristín Guðjónsdóttir Erla Sigurbergsdóttir Haukur Már Haraldsson Margrét S. Sigurbergsdóttir Þór G. Vestmann Ólafsson Guðjón Sigurbergsson Dagmar Svala Runólfsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Okkar ástkæri frændi Eyjólfur Egilsson Hverahlíð 13, Hveragerði, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði 4. júlí. Jarðarförin fer fram föstudaginn 9. júlí kl. 13.30 frá Hveragerðiskirkju. Systkinabörn Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, Ásgerðar Kristjánsdóttur. Kristinn Sigmundsson Ásgerður Þórisdóttir Þórður Sigmundsson ömmubörn og langömmubarn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð, vinarhug og virðingu vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Kristjáns Hilmars Jónssonar Bylgjubyggð 39b, Ólafsfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Lyflækningadeildar Sjúkrahúss Akureyrar. Fyrir mína hönd og fjölskyldunnar, Ásta Helgadóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Kjartan Guðjónsson listmálari, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju mánu- daginn 12. júlí kl. 11. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á að láta líknarstofnanir njóta þess. Sigurður Kjartansson Hólmfríður Erla Finnsdóttir, Bjarni Kjartansson Lilja Grétarsdóttir, Gunnar Hrafnsson Sólveig Baldursdóttir, og barnabörn. Þökkum vináttu og hlýhug við andlát og útför Trausta Guðmundssonar frá Hofi, Kleifum Ólafsfirði. Þórarinn Guðmundsson og fjölskylda. Elskulegur eiginmaður minn, bróðir og frændi, Þorleifur Jónsson Holtsgötu 41b, andaðist þriðjudaginn 6. júlí á Landakotsspítala. Útför hans verður gerð frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 15. júlí kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Freyja Mogcrama Melendres Margrét Jónsdóttir. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Gísli Bessason frá Kýrholti í Skagafirði til heimilis að Kjarnalundi á Akureyri, lést á heimili sínu 1. júlí. Jarðsett verður mánudaginn 12. júlí kl. 13.30 frá Akureyrarkirkju. Bessi Gíslason Una Þóra Steinþórsdóttir Guðrún Gísladóttir Jóhannes Mikaelsson Elínborg Gísladóttir Hörður Ágústsson barnabörn og barnabarnabörn. MOSAIK Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát okkar ástkæra sonar, bróður, barna- barns og mágs, Karl Cesars Salómonssonar Hafnargötu 5, Vogum Vatnsleysuströnd. Guð blessi ykkur öll. Salómon Viðar Reynisson Þóra Lind Karlsdóttir Svavar Örn Eysteinsson Steinunn Björnsdóttir Gylfi Snær Salómonsson Reynir Viðar Salómonsson Kristín Valgeirsdóttir Birna Björg Salómonsdóttir Karl Cesar Sigmundsson Reynir Ásgrímsson Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. BRYNDÍS SCHRAM ER 72 ÁRA. „Aldurinn skiptir ekki máli heldur hvað maður er að fást við á hverjum tíma.“ Bryndís Schram varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1958. Hún stýrði Stundinni okkar á árunum 1979 til 1983 og lék í kvik- myndinni Skilaboð til Söndru árið 1983. Bryndís er gift Jóni Bald- vini Hannibalssyni fyrrum ráð- og sendiherra og var sendiherrafrú í Washington og Helsinki. Tíu ár eru síðan tilgátuhúsið að Eiríksstöðum í Dalabyggð var vígt. Af því tilefni verður haldin hátíð á Eiríksstöð- um á morgun þar sem gestum gefst tækifæri á að kynnast íslenskri menningu á víkingaöld. „Við ætlum að gera okkur glaðan dag milli klukkan 13 og 18 á morgun og hér mun allt iða af víkingalífi. Hér verða víkingafélögin Rimmugýgur frá Hafnarfirði og Hringhorni frá Akranesi og svo eigum við líka víkingafélag hér í Döl- unum. Gestum verður því boðið upp á bardagasýningar og víkingaleiki og handverk verður sýnt í víkingatjöldum svo eitthvað sé nefnt,“ segir Herdís Erna Gunnarsdóttir, formað- ur menningar- og ferðamálanefndar í Dalabyggð. Eiríksstaðir eru lifandi safn þar sem gestir fá leiðsögn sögumanna í búningum og kynnast lífi Eiríks rauða og fjöl- skyldu hans. Hægt er að handleika verkfæri og húsmuni, klæða sig í víkingaföt og jafnvel leggja sig í rúmstæðin. Til- gátubærinn er jafnstór og grunnurinn þar sem talið er að fyrsta heimili Eiríks rauða og fæðingarstaður Leifs heppna hafi staðið. Dalabyggð stóð að byggingu tilgátuhússins og var Guðjón Kristinsson, hleðslumeistari frá Dröngum, feng- inn ásamt fleirum til að byggja bæinn. „Þeir byrjuðu á því að kynna sér verkfæri frá víkinga- öld, bjuggu þau síðan til og notuðu við byggingu bæjarins. Aðferðirnar voru því alveg ekta og engar vélar komu við sögu. Sumir vilja meina að þetta sé best byggða víkingahús- ið í Evrópu,“ segir Herdís. Þegar dagskrá lýkur á Eiríksstöðum klukkan 18 verða hátíðahöldin flutt inn í Búðardal en á morgun fer þar fram bæjarhátíð á sama tíma. Sú hátíð hefst í kvöld á kjötsúpu- kvöldi þar sem fjórar fjölskyldur opna heimili sín og bjóða gestum upp á kjötsúpu. Á laugardaginn verður meðal annars markaðstjald í Búð- ardal og eldri borgarar munu lesa upp úr verkum Dalaskálda og farin fróðleiksganga um Búðardal. „Þeir sem ekki hafa áhuga á víkingatímanum geta því fundið eitthvað annað við sitt hæfi,“ segir Herdís. Kvöldið endar svo á varðeldi í fjör- unni en nánar má kynna sér dagskrána á www.dalir.is. heida@frettabladid.is EIRÍKSSTAÐIR Í DÖLUM: 10 ÁRA Saga Eiríks rauða LIFANDI SAFN Í 10 ÁR Gestir Eiríksstaða upplifa víkingaöldina. MYND/JÓN SIGURÐUR EYJÓLFSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.