Fréttablaðið - 09.07.2010, Side 18
18 9. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Björns Eyþórssonar
prentara, Álfheimum 60.
Torfey Steinsdóttir
Steinn Bjarki Björnsson
Eyþór Hreinn Björnsson Ingunn Þorsteinsdóttir
Darri Eyþórsson
Dagný Yrsa Eyþórsdóttir
Ægir Eyþórsson
Útför elskulegs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa, langafa og
langalangafa
Sigurbergs Bogasonar
frá Flatey á Breiðafirði,
Kleppsvegi 32, Reykjavík
sem lést 1. júlí sl., fer fram frá Laugarneskirkju,
þriðjudaginn 13. júlí nk., kl. 15.00.
Kristín Guðjónsdóttir
Erla Sigurbergsdóttir Haukur Már Haraldsson
Margrét S. Sigurbergsdóttir Þór G. Vestmann Ólafsson
Guðjón Sigurbergsson Dagmar Svala Runólfsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Okkar ástkæri frændi
Eyjólfur Egilsson
Hverahlíð 13, Hveragerði,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði 4. júlí.
Jarðarförin fer fram föstudaginn 9. júlí kl. 13.30 frá
Hveragerðiskirkju.
Systkinabörn
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
vegna fráfalls móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
Ásgerðar Kristjánsdóttur.
Kristinn Sigmundsson Ásgerður Þórisdóttir
Þórður Sigmundsson
ömmubörn og langömmubarn.
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem auðsýndu okkur samúð,
vinarhug og virðingu vegna andláts
og útfarar ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Kristjáns Hilmars
Jónssonar
Bylgjubyggð 39b, Ólafsfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Lyflækningadeildar Sjúkrahúss Akureyrar.
Fyrir mína hönd og fjölskyldunnar,
Ásta Helgadóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Kjartan Guðjónsson
listmálari,
verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju mánu-
daginn 12. júlí kl. 11. Blóm og kransar vinsamlegast
afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á að
láta líknarstofnanir njóta þess.
Sigurður Kjartansson Hólmfríður Erla Finnsdóttir,
Bjarni Kjartansson Lilja Grétarsdóttir,
Gunnar Hrafnsson Sólveig Baldursdóttir,
og barnabörn.
Þökkum vináttu og hlýhug við andlát
og útför
Trausta Guðmundssonar
frá Hofi, Kleifum Ólafsfirði.
Þórarinn Guðmundsson og fjölskylda.
Elskulegur eiginmaður minn, bróðir og
frændi,
Þorleifur Jónsson
Holtsgötu 41b,
andaðist þriðjudaginn 6. júlí á Landakotsspítala. Útför
hans verður gerð frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn
15. júlí kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Freyja Mogcrama Melendres
Margrét Jónsdóttir.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Gísli Bessason
frá Kýrholti í Skagafirði til heimilis að
Kjarnalundi á Akureyri,
lést á heimili sínu 1. júlí. Jarðsett verður mánudaginn
12. júlí kl. 13.30 frá Akureyrarkirkju.
Bessi Gíslason Una Þóra Steinþórsdóttir
Guðrún Gísladóttir Jóhannes Mikaelsson
Elínborg Gísladóttir Hörður Ágústsson
barnabörn og barnabarnabörn.
MOSAIK
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát
okkar ástkæra sonar, bróður, barna-
barns og mágs,
Karl Cesars
Salómonssonar
Hafnargötu 5,
Vogum Vatnsleysuströnd.
Guð blessi ykkur öll.
Salómon Viðar Reynisson Þóra Lind Karlsdóttir
Svavar Örn Eysteinsson Steinunn Björnsdóttir
Gylfi Snær Salómonsson
Reynir Viðar Salómonsson Kristín Valgeirsdóttir
Birna Björg Salómonsdóttir
Karl Cesar Sigmundsson
Reynir Ásgrímsson
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
BRYNDÍS SCHRAM ER 72 ÁRA.
„Aldurinn skiptir ekki máli
heldur hvað maður er að fást við
á hverjum tíma.“
Bryndís Schram varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1958. Hún stýrði Stundinni okkar á
árunum 1979 til 1983 og lék í kvik-
myndinni Skilaboð til Söndru árið
1983. Bryndís er gift Jóni Bald-
vini Hannibalssyni fyrrum ráð- og
sendiherra og var sendiherrafrú í
Washington og Helsinki.
Tíu ár eru síðan tilgátuhúsið að Eiríksstöðum í Dalabyggð
var vígt. Af því tilefni verður haldin hátíð á Eiríksstöð-
um á morgun þar sem gestum gefst tækifæri á að kynnast
íslenskri menningu á víkingaöld.
„Við ætlum að gera okkur glaðan dag milli klukkan 13 og
18 á morgun og hér mun allt iða af víkingalífi. Hér verða
víkingafélögin Rimmugýgur frá Hafnarfirði og Hringhorni
frá Akranesi og svo eigum við líka víkingafélag hér í Döl-
unum. Gestum verður því boðið upp á bardagasýningar og
víkingaleiki og handverk verður sýnt í víkingatjöldum svo
eitthvað sé nefnt,“ segir Herdís Erna Gunnarsdóttir, formað-
ur menningar- og ferðamálanefndar í Dalabyggð.
Eiríksstaðir eru lifandi safn þar sem gestir fá leiðsögn
sögumanna í búningum og kynnast lífi Eiríks rauða og fjöl-
skyldu hans. Hægt er að handleika verkfæri og húsmuni,
klæða sig í víkingaföt og jafnvel leggja sig í rúmstæðin. Til-
gátubærinn er jafnstór og grunnurinn þar sem talið er að
fyrsta heimili Eiríks rauða og fæðingarstaður Leifs heppna
hafi staðið. Dalabyggð stóð að byggingu tilgátuhússins og
var Guðjón Kristinsson, hleðslumeistari frá Dröngum, feng-
inn ásamt fleirum til að byggja bæinn.
„Þeir byrjuðu á því að kynna sér verkfæri frá víkinga-
öld, bjuggu þau síðan til og notuðu við byggingu bæjarins.
Aðferðirnar voru því alveg ekta og engar vélar komu við
sögu. Sumir vilja meina að þetta sé best byggða víkingahús-
ið í Evrópu,“ segir Herdís.
Þegar dagskrá lýkur á Eiríksstöðum klukkan 18 verða
hátíðahöldin flutt inn í Búðardal en á morgun fer þar fram
bæjarhátíð á sama tíma. Sú hátíð hefst í kvöld á kjötsúpu-
kvöldi þar sem fjórar fjölskyldur opna heimili sín og bjóða
gestum upp á kjötsúpu.
Á laugardaginn verður meðal annars markaðstjald í Búð-
ardal og eldri borgarar munu lesa upp úr verkum Dalaskálda
og farin fróðleiksganga um Búðardal. „Þeir sem ekki hafa
áhuga á víkingatímanum geta því fundið eitthvað annað við
sitt hæfi,“ segir Herdís. Kvöldið endar svo á varðeldi í fjör-
unni en nánar má kynna sér dagskrána á www.dalir.is.
heida@frettabladid.is
EIRÍKSSTAÐIR Í DÖLUM: 10 ÁRA
Saga Eiríks rauða
LIFANDI SAFN Í 10 ÁR Gestir Eiríksstaða upplifa víkingaöldina.
MYND/JÓN SIGURÐUR EYJÓLFSSON