Fréttablaðið - 09.07.2010, Blaðsíða 53
FÖSTUDAGUR 9. júlí 2010
STOLTUR FAÐIR Einar Hákonarson, faðir leikstjórans, ásamt Stefáni Sigurðssyni.
ÁNÆGÐ Sigurrós og Kristinn voru á meðal gesta.
GUÐRÚN OG GUÐFINNUR mættu kát í Kringlubíó.
Leikarinn Sylvester
Stallone segist vera í
mjög góðu formi miðað
við aldur og að honum
líði ekki eins og hann
sé orðinn gamall. Stall-
one er orðinn 64 ára og
nýjasta mynd hans er
hasarmyndin The
Expendables. „Mér
líður enn þá vel líkamlega og ég
er í góðu formi. Um leið og ég
get ekki gengið lengur mun ég
hætta að leika í kvikmynd-
um. Bara þótt samfélagið
segi að ég sé gamall þýðir
það ekki að ég sé það,“
sagði Stallone. Hann
er fimm barna faðir
og hefur verið kvænt-
ur þrisvar sinnum.
Fjölskyldan skiptir hann
öllu máli núna. „Ferillinn
var eitt sinn það mikil-
vægasta í heiminum en
ég er allt önnur mann-
eskja núna.“
64 ára í fínu formi
SYLVESTER STALL-
ONE Leikarinn er í
mjög góðu formi og
þvertekur fyrir að vera
orðinn of gamall fyrir
hasarinn.
Tónleikaferð krakkanna í Amer-
ican Idol-þáttunum hefur verið
stytt um tvær vikur, aðeins einum
degi eftir að hún hófst í Bandaríkj-
unum. Ástæðan er minni áhugi en
búist var við. Hætt hefur verið
við átta tónleika með sigurvegar-
anum Lee Dewyze og félögum og
lýkur tónleikaferðinni 31. ágúst í
stað 16. september. Tíðindin eru
í samræmi við dvínandi áhorf á
Idol-þættina í Bandaríkjunum,
sem hafa engu að síður verið þeir
vinsælustu undanfarin ár. Áhorf
á úrslitaþáttinn í vor var það
minnsta frá árinu 2002. Alls 24,2
milljónir fylgdust með þættinum,
sem var 9% minna en árið á undan.
Fyrsta smáskífulag sigurvegarans
Dewyze náði sömuleiðis aðeins 24.
sæti á bandaríska vinsældalistan-
um, sína fyrstu viku á lista.
Tónleikaferð stytt
LEE DEWYZE Tónleikaferð Idol-krakk-
anna um Bandaríkin hefur verið stytt
um tvær vikur.