Fréttablaðið - 09.07.2010, Side 19
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
ÚLFALDI úr mýflugu er tónlistarhátíð sem haldin
verður í Mývatnssveit þriðja árið í röð nú um helg-
ina. Meðal þeirra hljómsveita sem koma fram eru
Bróðir Svartúlfs og Agent Fresco. Frítt er á tónleik-
ana og ekkert aldurstakmark.
„Þetta er bara tínt úti í haga,“ segir
Elín Stephensen kennari um haga-
salat sem hún gefur lesendum upp-
skrift að. „Ég hef verið að prófa
mig áfram og smakka til það sem
mér finnst best saman. Það eru jú
afskaplega fáar íslenskar tegund-
ir sem eru eitraðar. Þannig að það
er bara spurning um að labba út í
móa með skál og safna.“
Elín byrjaði að gera hagasalat-
ið fyrir um fimm árum. En hvern-
ig datt henni þetta í hug? „Ég er
sveitastelpa í eðli mínu og hef allt-
af haft óskaplega gaman af blóm-
um og jurtum,“ segir Elín, sem
er kennari í Reykjavík á veturna
en dvelur norður í Svarfaðardal á
sumrin. „Ég er alin upp við það að
afi, amma og allir í kringum mig
hérna í sveitinni voru alltaf að
benda mér á blómin.“
Elín segist hafa byrjað smátt.
„Það er svolítill ævintýraþráður
í mér og ég hef gaman af því að
prófa eitthvað nýtt. Ég byrjaði á
hundasúrum saman við venjulegt
salat. Ég hafði verið að tína mér
blóðberg í te og svo tók ég þetta
skrefinu lengra einn daginn,“ upp-
lýsir Elín og tekur fram að mikil-
vægt sé að blöðin séu ný og fersk.
Salatið hefur að sögn Elínar
slegið í gegn á meðal gesta hennar.
„Fólk verður mjög hissa og sumir
eru svolítið feimnir við að prófa.
Ég er reyndar með nokkrar venju-
legar salatplöntur í garðinum líka
til að eiga ef einhver þorir ekki.“
martaf@frettabladid.is
Nýtir villta náttúruna
Elín Stephensen fer út í móa til að tína plöntur og blóm í hagasalt sem hefur slegið í gegn meðal gesta
hennar. Hún prófar og smakkar mismunandi plöntur saman og gefur lesendum uppskrift að hagasalati.
Elín Stephensen hefur leyft nemendum sínum að smakka hagasalatið og segir þá kunna vel að meta það. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
10 frekar lítil njólablöð
15 stór túnsúrublöð
10 stór blöð af maríustakk og
hnefafylli af blómum
10 stk. klóelfting
1 hnefi blóðberg, blöð og blóm
1 hnefi smári, blöð og blóm
1 hnefi túnfíflablóm, bikarblöðin
skorin frá ef vill
Mikilvægt er að tína aðeins nýju
blöðin og blómin af hverri jurt,
til dæmis á klóelftingin helst að
vera þétt en ekki búin að breiða
úr sér.
Elín setur sjaldan nokkuð út
á salatið en ber fram með því
ólífuolíu og balsamikedik.
Hagasalat Elínar
fyrir fjóra
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
4ra rétta
Góð tækifæ
risgjöf!
Kryddlegin bleikja
með rússneskri pönnuköku, dillrjóma og piparrótarsósu
Humarsúpa
rjómalöguð, með Madeira og grilluðum humarhölum
Fiskur dagsins
það ferskasta hverju sinni; útfærður
af matreiðslumönnum Perlunnar
*** eða / Or ***
Lambatvenna
með steinseljurótarmauki, aspas, rófu,
soðkartöflu og basil-myntu gljáa
Kókoshnetu Tapioca
með steiktu mangói og lychee sorbet
Verð aðeins 7.290 kr.
tilboðsseðill
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki