Fréttablaðið - 09.07.2010, Síða 30
9. JÚLÍ 2010 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● reykjanesbær
Fótboltavöllur Keflavíkur var
nýlega tekinn í notkun eftir
gagngerar endurbætur. Þor-
steinn Magnússon, formaður
knattspyrnudeildar Keflavíkur,
segir þetta gríðarlega breyt-
ingu á aðstöðu.
„Þetta er auðvitað gerbylting á
aðalleikvanginum,“ segir Þor-
steinn Magnússon, formaður knatt-
spyrnudeildar Keflavíkur, þar sem
fótboltavöllurinn hefur verið end-
urnýjaður með nýju aðstöðuhús-
næði, en hann var tekinn aftur í
notkun 4. júlí síðastliðinn. Að hans
mati voru lagfæringarnar orðnar
tímabærar.
„Völlurinn er náttúrlega orð-
inn 43 ára gamall og var alltaf til
vandræða bæði á vorin og sérstak-
lega á haustin þegar rigndi, en þá
var hann allur í pollum,“ útskýr-
ir Þorsteinn um ástæður þess að
hafist var handa við að taka fót-
boltavöllinn í gegn í október á síð-
asta ári.
En hvað var gert? „Meðal ann-
ars voru lagðar í hann nýjar dren-
lagnir og hitunar- og vökvunar-
kerfi. Svo var hlaupabrautin um-
hverfis gamla völlinn fjarlægð
svo hægt yrði að stækka svæðið
fyrir nýja völlinn, en hann verður
þannig færanlegur innan þess svo
hægt verði að dreifa álaginu. Þá
var völlurinn girtur upp á nýtt, ný
þjónustubraut búin til, varamanna-
skýli og ný mörk sett upp,“ tekur
Þorsteinn sem dæmi.
Hann bætir við að í haust verði
vígt nýtt félagsheimili fyrir deild-
ir innan Keflavíkur. „Knattspyrnu-
deildin fær skrifstofur í nýju hús-
næði, það er í nýju félagsheimili
sem verður byggt ofan á búnings-
klefa við Sunnubraut. Við höfum
verið á hrakhólum með aðstöðu
síðustu ár, þannig að þetta verður
breyting til batnaðar,“ segir hann
og getur þess að almennt sé mjög
vel haldið utan um íþróttalífið á
svæðinu.
„Það er kannski helst að maður
láti sig dreyma um að fá góða stúku
við fótboltavöllinn, það verður klár-
lega næsta mál á dagskrá,“ segir
Þorsteinn bjartsýnn og kveðst
vilja koma á framfæri þökkum til
bæjaryfirvalda fyrir störf í þágu
íþrótta og félagslífs. - rve
Metfjöldi hefur verð ráðinn í at-
vinnuátaksverkefni á vegum
Reykjanesbæjar í sumar.
„Við erum með atvinnuátak
fyrir sautján til tuttugu ára nema,
ungmennin okkar í framhalds-
skólunum sem fá ekki vinnu og
eiga ekki rétt á neinum bótum,“
segir Guðrún Þorsteinsdóttir,
starfsþróunarstjóri Reykjanes-
bæjar, en tvö hundruð ungmenni
hafa verið ráðin til ýmissa um-
hverfisverkefna í bænum, meðal
annars við tyrfingu og hreinsun
bæjarins.
„Svo höfum við fengið háskóla-
nemendur sem eru að koma inn í
fjölskyldu- og félagsþjónustuna í
alls kyns verkefni. Þau eru líka að
koma inn á umhverfis- og skipu-
lagssvið í skjalavinnslu og skönn-
un á teikningum og inn í byggða-
safnið og bókasafnið,“ útskýrir
Guðrún en í heildina fengu um
240 ungmenni starf hjá bænum í
tengslum við atvinnuátaksverk-
efnið. Guðrún segir þetta stærsta
hóp sem tekið hefur þátt í atvinnu-
átaki á vegum bæjarins. „Í gegn-
um tíðina hefur bærinn komið
inn og svarað þörfinni, þegar og
ef hún hefur verið.“
Innt eftir því af hverju ákveðið
var að ráðast í atvinnuátaksverk-
efni segir Guðrún: „Í fyrsta lagi
er atvinnuleysi svo mikið og þessi
ungmenni fá engar atvinnuleysis-
bætur. Við urðum að gera eitthvað
og bregðast við kallinu.“
Yfir fimm hundruð nemendur
fengu vinnu í Vinnuskólanum og
að sögn Guðrúnar hafa þeir aldrei
verið fleiri.
„Vinnuskólinn er meira í hverf-
unum, í beðahreinsun og slætti.
Svo ætlum við að fara meira í al-
menna hreinsun og umhverfis-
verkefni.“ - mmf
Guðrún Þorsteinsdóttir segir að ákveðið hafi verið að ráðast í átaksverkefnið vegna
mikils atvinnuleysis. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fjölda ungmenna veitt störf
Ráðist var í framkvæmdir í fyrra og síðan þá hefur fótboltavöllurinn tekið stakka-
skiptum.
Gerbylting á allri aðstöðu
Þorsteinn segist vera hæstánægður með þær endurbætur sem hafa verið gerðar á vellinum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
● HEIMILI JÓRUNNAR JÓNSDÓTTUR OG HELGA ÁS-
BJÖRNSSONAR Í INNRI NJARÐVÍK Enn má finna leifar hins
horfna tíma á heimili Jórunnar og
Helga í Njarðvík þegar kirkjugest-
ir komu við í kaffi hjá Jórunni og
hundurinn Plútus vappaði um á
hlaðinu. Í þessu gamla timburhúsi,
sem reist var 1906 og þótti með
betri húsum, má finna húsbúnað
og myndir af fjölskyldunni og ást-
vinum sem gaman er að skoða.
Húsið er opið í sumar frá miðviku-
degi til sunnudags frá kl. 13 til 17.
Ókeypis aðgangur.
Náttúruvika verður haldin á
Reykjanesi dagana 25. júlí til 2.
ágúst þar sem sveitarfélögin á
Reykjanesskaga kynna fjölbreytta
nátttúru skagans með því að bjóða
upp á gönguferðir, fjöruferðir,
fræðslu, sýningar og fleira.
Í Reykjanesbæ verður gengið
um Rósaselsvötn með Konráð Lúð-
víkssyni, fyrrum formanni Skóg-
ræktarfélags Suðurnesja. Hann
mun segja frá skipulagi skóg-
ræktar á svæðinu og hugmynd-
um um verndun Rósaselsvatna.
Ketill G. Jósefsson leiðsögumaður
gengur um Hafnir og lýsir liðinni
tíð, meðal annars fléttar hann inn
frásögnum úr æsku sinni. Hjólað
verður í gegnum Reykjanesbæ með
Helgu Ingimundardóttur leiðsögu-
manni og nokkur listagallerí heim-
sótt, með viðkomu í skógarrjóðri
þar sem fuglalíf verður skoðað og
farið verður í grasaferð með Ás-
dísi Rögnu grasalækni þar sem
hún mun fræða fólk um íslenskar
lækningajurtir og áhrif þeirra til
lækninga og heilsubótar.
Náttúruvikan er samstarfsverk-
efni menningarfulltrúa Grinda-
víkur, Garðs, Sandgerðis, Voga,
Reykjanesbæjar og sjf menning-
armiðlunar.
Allar nánari upplýsingar um
dagskrárviðburði má finna á slóð-
inni natturuvika.is.
Náttúruvika á næstunni
Reykjanesviti er ein af táknmyndum
Reykjanessins og góðir gönguslóðar
liggja að honum. NORDICPHOTOS/GETTY
● STEKKJARKOT Á NJARÐVÍKURFITJUM Stekkjarkot er gott
dæmi um kotbýli sem sjómenn og fjölskyldur þeirra bjuggu í allt fram á
20. öld. Kotið var endurreist árið 1993, eldri hluti þess er frá miðri 19. öld
og sá yngri frá síðustu dögum
kotsins. Síðustu ábúendurnir,
þau Björg Einarsdóttir og Bjarni
Sveinsson, fluttu út árið 1924. Við
kotið er endurgert fjós, og brunn-
ur sem fylgdi kotinu er vel sýni-
legur í nágrenninu. Kotið er opið
í sumar frá miðvikudegi til sunnu-
dags frá kl. 13 til 17. Ókeypis að-
gangur.