Fréttablaðið - 09.07.2010, Page 32
9. JÚLÍ 2010 FÖSTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● reykjanesbær
Í Innileikjagarðinum á Ásbrú
leynist ævintýraheimur barna.
„Það þótti mörgum hermannin-
um kalt að leika úti með börn sín
á íslenskum vetrum og því reistu
kanarnir þennan flotta innileikja-
garð sem hefur heldur betur sleg-
ið í gegn hjá Íslendingum eftir að
við opnuðum hann almenningi
árið 2008,“ segir Hafþór B. Birg-
isson, tómstundafulltrúi félags-
miðstöðvarinnar Fjörheima, sem
rekur Innileikjagarðinn fyrir 8
ára og yngri, og félagsmiðstöð
fyrir unglinga Reykjanesbæjar í
annarri fyrrum aðstöðu Banda-
ríkjahers á Miðnesheiði, þar sem
bíósal má meðal annars finna í
flottum húsakynnum.
„Fjörheimar voru áður í Stap-
anum en þurftu að finna sér ný
heimkynni eftir að Hljómahöllin
fékk þar inni. Þá stóð til að félags-
miðstöðin færi í skólana en ungl-
ingar þvertóku fyrir þann ráða-
hag. Það var svo Árni Sigfússon
bæjarstjóri sem sá tilbúna félags-
miðstöð herstöðvarmanna þegar
hann fór hingað í skoðunarferð og
lét okkur vita af þessari frábæru
aðstöðu,“ segir Hafþór og stað-
festir að staðarvalið hafi vald-
ið unglingum bæjarins ómældri
gleði.
„Á meðan herinn hafði hér að-
stöðu var svæðið lokað óviðkom-
andi umferð svo það er óneitan-
lega framandi fyrir íslensk ung-
menni að koma í þennan heim. Því
hefur aðsókn í Innileikjagarðinn
og Fjörheima verið framar björt-
ustu vonum og allir mjög ánægð-
ir,“ segir Hafþór.
Innileikjagarðurinn er fullbú-
inn fjölbreyttum leiktækjum með
gúmmíundirlagi og góðri aðstöðu
fyrir foreldra sem fylgja börnum
sínum í leik, og alltaf heitt á könn-
unni.
„Hér var allt tilbúið og ekki
annað að gera en að kveikja ljós-
in og opna. Kaninn var ekkert
að spara neitt og allt hjá þeim í
toppstandi. Innileikjagarðurinn
naut því strax mikilla vinsælda
og margir sem halda hér afmæl-
isveislur fyrir börn sín.
Hann er því hreinasta viðbót
við fjölbreytta barna- og fjöl-
skylduafþreyingu sem fyrir var
í Reykjanesbæ,“ segir Hafþór.
Innileikjagarðurinn á Ásbrú er
opinn þriðjudaga til föstudaga frá
klukkan 15 til 18, en frá 12 til 15
um helgar. Aðgangur er ókeypis.
Ævintýri í gamalli herstöð
Ó, það er svo gaman að renna sér í
gegnum rör eftir tilheyrandi príl upp á
toppinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Unga Ísland lífsglatt og kátt. Krakkar af leikskólanum Velli í Innileikjagarðinum á Ásbrú. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Hugmyndin er sú að veita innsýn
í heim goðanna, að menn öðlist ör-
litla hugmynd um út á hvað átrún-
aðurinn gekk,“ segir Guðbrandur
Gíslason einn skipuleggjenda Urð-
arbrunns, nýrrar sýningar sem
verður opnuð í Ramma í Reykja-
nesbæ helgina 16. til 18. júlí.
„Þór, Óðinn, Loki og Freyja eru
meðal goða sem eru gerð skil á
sýningunni. Er hún sett upp í sex
sýningarsölum eða húsum sem eru
tengd saman og hönnuð á nútíma-
legan máta. Þannig fá gestir af-
hentan mpg3-spilara og heyrnar-
tól við innganginn sem þeir smella
á sig og fara þannig í gegnum sýn-
inguna á um korteri,“ útskýrir
Guðbrandur og getur þess að lest-
urinn sé á fjórum tungumálum;
íslensku, ensku, þýsku og dönsku.
„Með sýningunni erum við auðvit-
að ekki síður að höfða til Íslend-
inga en útlendinga og þá ekki síst
skólabarna sem við ætlum að bjóða
í heimsókn í vetur, en þarna geta
þau á skömmum tíma lært heilm-
ikið sem gagnast þeim í námi.“- rve
Skyggnst inn í veröld goðanna
Ýmsir hafa lagt hönd á plóginn til að gera sýninguna sem veglegasta. Auk Guð-
brands: Kristín Ragna Gunnarsdóttir, kennari við LHÍ, sem hannaði verurnar, Hilmar
Örn Hilmarsson, sem samdi tónlistina og Ingunn Ásdísardóttir þjóðháttafræðingur
sem samdi textann og setti sýninguna upp.
Þúsund fiskum hefur verið sleppt
í Seltjörn á Reykjanesi í vor. Það
eru þeir Pálmi Sturluson og Oliver
Keller sem að því standa. Þeir hafa
tekið rekstur tjarnarinnar að sér
tímabundið.
Seltjörn er í sigdæld sunnan í
Kvíguvogastapa, rétt við afleggj-
arann til Grindavíkur. Pálmi segir
ekkert hafa verið annast um vatn-
ið í nokkur ár en þeir félagar hafi
viljað bæta úr því. „Við slepptum
regnbogasilungi og laxi í vatnið
og hann þrífst vel. Fyrsta slepping
var 6. maí og við höfum ekki yfir-
gefið svæðið eftir það. Fyrstu fisk-
arnir voru frá 400 upp í 700 grömm
en eftir það hefur enginn verið
undir tveimur pundum. Þarna var
líka sleppt urriða á sínum tíma og
menn hafa þóst veiða þarna 17 til
20 punda fiska en ég hef ekki orðið
var við slík flikki,“ lýsir hann.
Veiðileyfi eru seld á staðnum,
sem er opinn frá 10 til 21 virka daga
en til miðnættis um helgar. Fimm
fiska kvóti kostar 4.500 krónur, en
ekki er nauðsynlegt að klára hann í
einni ferð. Veiðistangir eru leigðar
út bæði fyrir börn og fullorðna og
þess má einnig geta að Sólbrekku-
skógur er í grenndinni með grillað-
stöðu og nýjum leiktækjum.
Pálmi og Oliver voru atvinnu-
lausir þegar hugmyndinni skaut
upp um að koma auknu lífi í Sel-
tjörnina og selja í hana veiðileyfi.
Pálmi kveðst vita að það taki sinn
tíma að byggja starfsemina upp en
framtakið hafi fengið góðar undir-
tektir. „Ef ég hefði fengið allt klapp-
ið á bakið á sama tíma þá væri ég
kominn á spítala!“ segir hann glað-
lega. - gun
Seltjörnin full af fiski
Seltjörn er skammt frá vegamótum Keflavíkur- og Grindavíkurvega. MYND/OLIVER
Kemur út laugardaginn 10. júlí
Sérblaðið
Ferðir
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband:
Hjörtur Ingi
• hjortur@365.is
• sími 512 5429