Fréttablaðið - 10.07.2010, Side 2
2 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR
„Þórólfur, er ekki um auðuga
garða að gresja á Íslandi?“
„Nei, við höfum enn ekki gert garð-
inn frægan í þessum efnum.“
Þórólfur Jónsson er garðyrkjustjóri
Reykjavíkur. Í viðtali við Fréttablaðið í gær
sagði Þórólfur að Íslendingar ættu sér
stutta garðamenningu.
Páll Baldvin Baldvinsson, full-
trúi ritstjóra, er hættur störfum
á Fréttablaðinu. Páll Baldvin
hefur starfað á Fréttablaðinu
síðan árið 2006 en var þar áður
ritstjóri DV.
Hann
hefur haft
yfirumsjón
með menning-
arumfjöllun
blaðsins auk
þess að skrifa
leiðara og skoð-
anapistla.
Páll Baldvin
ætlar að hasla
sér völl á vett-
vangi leikhússins.
Fréttablaðið þakkar Páli Bald-
vini vel unnin störf í þágu blaðs-
ins og óskar honum velfarnaðar
á nýjum vettvangi. - aþ
Páll Baldvin
hættir störfum
PÁLL BALDVIN
BALDVINSSON
FÓLK Dansk-norska listakonan
Karen Bit Vejle opnar myndlist-
arsýninguna „Með skærin sem
pensil“ í Norræna húsinu í dag.
Vejle býður gestum inn í ævin-
týraheim klippimynda og þeir
geta einnig gripið í skærin.
Verkin eru stór en á sýning-
unni má meðal annars sjá fimm
metra langt verk sem tók Vejle
200 stundir að klippa. - rat / sjá allt
Karen Bit Vejle mundar skærin:
Býður gestum í
ævintýraheim
KLIPPILISTAVERK Mikil vinna er á bak
við hverja mynd listakonunnar.
STJÓRNSÝSLA Stjórn Íbúðalána-
sjóðs frestaði á fundi í fyrra-
kvöld ráðningu
nýs forstjóra í
stað Guðmund-
ar Bjarnasonar
sem lét af störf-
um um síðustu
mánaðamót.
A l l s b á r -
ust tuttugu og
sex umsókn-
ir um starfið
og hafa fjór-
ir umsækjendur verið boðaðir í
viðtal. Meðal þeirra eru Ásta H.
Bragadóttir, sem er aðstoðar-
framkvæmdastjóri og starfandi
framkvæmdastjóri Íbúðalána-
sjóðs, og Yngvi Örn Kristinsson,
fyrrverandi forstöðumaður hjá
Landsbanka Íslands. Hann hefur
verið starfað sem ráðgjafi félags-
málaráðherra.
Talið er að þessi tvö komi
helst til greina í starf nýs fram-
kvæmdastjóra.
Eins og fyrr sagði var ákvörð-
un um ráðningu framkvæmda-
stjóra frestað á stjórnarfundi
sjóðsins í gær. Ákveðið var að
Ásta myndi áfram gegna starfi
framkvæmdastjóra um óákveð-
inn tíma.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er ekki ljóst hvort málið
verður sett á dagskrá næsta
stjórnarfundar eftir tvær vikur.
Skipunartími núverandi stjórn-
ar Íbúðalánasjóðs rennur út í lok
þessa árs. Stjórnin var skipuð til
fjögurra ára í tíð Magnúsar Stef-
ánssonar, félagsmálaráðherra
Framsóknarflokksins, í lok árs
2006.
Fjórir af fimm stjórnarmönnum
eru fulltrúar Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks. - pg
Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs hættur og nýr hefur ekki verið ráðinn:
Fresta ráðningu um óákveðinn tíma
GUÐMUNDUR
BJARNASON
ORKUMÁL Reykjavíkurborg þarf
að leggja 10 til 12 milljarða króna
til hliðar til að sýna fram á fjár-
hagslegan styrk sinn sem bakhjarl
Orkuveitu Reykjavíkur (OR).
Borgin hefur sett á laggir
áhættustýringarhóp og ákveðið
að vinna markvisst að því að auka
trúverðugleika borgarinnar sem
ábyrgðaraðila á lánamörkuðum.
„Í stuttu máli er Reykjavík-
urborg komin af afneitunarstig-
inu,“ segir Dagur B. Eggertsson,
formaður borgarráðs. „Menn hafa
verið að ýta á undan sér býsna
miklum skafli í málefnum Orku-
veitunnar. Við teljum ástæðu til
að taka þessi mál föstum tökum,“
„Áhætta A-hluta borgarsjóðs
vegna Orkuveitu Reykjavíkur
felst einkum í mögulegri lausa-
fjáráhættu sem gæti birst í því
að lánveitandi OR krefur A-hluta
borgarsjóðs um að efna greiðslu-
skuldbindingu sem OR getur ekki
efnt,“ segir í greinargerð fjár-
málastjóra borgarinnar með þeim
tillögum sem samþykktar voru á
borgarráðsfundi í gær.
„Forsendur þess að unnt verði
að ná árangursríkri endur-fjár-
mögnun OR og fjármögnun
nýframkvæmda eru annars
vegar að lánamarkaður hafi trú á
greiðsluhæfi og áætlunum Orku-
veitu Reykjavíkur og hins vegar
að lánamarkaður hafi trú á baká-
byrgðaraðila OR, A-hluta borgar-
sjóðs.“
Sú aðgerð að halda sterkri
lausafjárstöðu með því að tíu til
tólf milljarðar króna verði lagð-
ir til hliðar muni hafa áhrif á
aðgengi og lánskjör við samnings-
gerð um endurfjármögnun skulda
Orkuveitu Reykjavíkur.
OR mun þurfa að endurfjár-
magna að minnsta kosti 33 millj-
arða króna skuldir í ár og næstu
þrjú ár og er þá ekkert litið til lán-
töku vegna nýrra fjárfestinga.
Í minnisblaði fjármálastjóra
kemur einnig fram að hagræð-
ing í rekstri Orkuveitunnar muni
litlum árangri skila til þess að
auka möguleika fyrirtækisins á
að greiða af skuldum sínum þar
sem breytilegur rekstrarkostn-
aður er tiltölulega lítill. Hækkun
gjaldskráa sé skilvirkasta leiðin
til þess að tryggja að fyrirtækið
geti greitt af skuldum sínum.
Fjármálastjóri borgarinnar
hefur lagt til að áætlun um þróun
gjaldskráa næstu ára verði hrað-
að. Um 20 prósenta hækkun gjald-
skrár mundi þó aðeins duga til
þess að standa undir afborgun-
um og vaxtagreiðslum þetta ár og
frekari hækkanir yrðu þá nauð-
synlegar vegna skulda næsta árs.
peturg@frettabladid.is
Reykjavíkurborg þarf
að binda 12 milljarða
Áhætta borgarinnar vegna Orkuveitu Reykjavíkur kallar á 10 til 12 milljarða
lausafjárstöðu. Fjármálastjóri borgarinnar segir 20 prósenta hækkun gjaldskrár
standa undir skuldum þessa árs og frekari hækkanir nauðsynlegar á næsta ári.
SKULDAVANDI Orkuveita Reykjavíkur skuldar himinháar fjárhæðir. Borgin þarf að
leggja 10-12 milljarða til hliðar og halda sterkri lausafjárstöðu til þess að sannfæra
lánsfjármarkaðinn um getu og vilja til að standa við bakábyrgðir gagnvart Orkuveit-
unni. Það er lausafjárstaða langt umfram venjulegar þarfir borgarinnar.
Í stuttu máli er
Reykjavíkurborg kom-
in af afneitunarstiginu.
DAGUR B. EGGERTSSON
FORMAÐUR BORGARRÁÐS
LÍFFRÆÐI Áhrif olíulekans í Mexíkóflóa gætu haft
mun skaðlegri áhrif fyrir vistkerfið á svæðinu en
hingað til hefur verið talið. Hópur vísindamanna
frá Imperial College í London hefur sýnt fram á að
olía veldur arseník-eitrun sem til lengri tíma getur
komist inn í fæðukeðjuna og valdið skaða á gróðri
og dýrum.
Arseník er sterkt eitur sem finnst í steindum og
fyrirfinnst í olíu. Arseník hefur áhrif á ljóstillífun í
sjávargróðri og eykur líkur á genabreytingum sem
valda fæðingargöllum og hegðunarbreytingum hjá
sjávardýrum, eins og kemur fram í grein í nýjasta
tölublaði vísindatímaritsins Science Daily. Þá drep-
ur eitrið fugla sem éta arseník-eitraða fæðu. Því
ofar sem kemur í fæðukeðjuna því sterkari verða
eituráhrifin.
Mark Sephton, prófessor í sjávarlíffræði við Imp-
erial College, segir í viðtali við Science Daily að
rannsóknin sýni þá ógn sem olíumengun getur haft
til framtíðar. „Rannsókn okkar er tímabær áminn-
ing um að olíumengun er eins og tímasprengja sem
ógnar samsetningu lífríkisins í hafinu.“
Olíuborpallurinn Deepwater Horizon eyðilagð-
ist og sökk í apríl síðastliðnum. Allt frá þeim tíma
hefur gríðarlegt magn olíu lekið út í hafið. Misvís-
andi fréttir eru af því magni sem hefur lekið í sjó-
inn en samkvæmt útreikningum bandaríska tíma-
ritsins Newsweek eru það um fjórar milljónir tunna.
- shá
Ný rannsókn vísindamanna varpar ljósi á nýja ógn af olíulekanum í Mexíkóflóa:
Áhrif olíulekans vanmetin
DAUÐADÆMDUR Birtingarmyndir olíuslyssins eru hræðilegar.
Til langs tíma gæti skaðinn þó verið enn meiri. NORDICPHOTOS/AFP
Neysluvatn þar f að sjóða
Íbúum Eskifjarðar er ráðlagt að sjóða
allt neysluvatn næstu daga vegna
mengunarslyss í löndunarhúsi Eskju
á sunnudag. Sýnataka leiddi í ljós að
gerlar eru í vatninu sem geta leitt til
þess að fólk verði veikt.
ESKIFJÖRÐUR
MENNING Borgarráð hefur sam-
þykkt umsókn Reykjavíkurborg-
ar um titilinn Bókmenntaborg
UNESCO. Umsóknin gerir ráð
fyrir að borgin standi að eflingu
bókmenningar í borginni meðal
annars með því að koma á fót
miðstöð bókmennta og gera bók-
menntir sýnilegar. Einnig er gert
ráð fyrir eflingu lestrar- og bók-
menntaáhuga með ýmsum hætti.
Borgarstjóri efast ekki um
ávinning Reykjavíkur, enda
Íslendingar löngum skilgreint sig
sem bókmenntaþjóð. - sv
Sótt um titil til UNESCO:
Reykjavík verði
bókmenntaborg
DÓMSMÁL Sýslumaðurinn í
Reykjavík stöðvaði uppboð á
húsi í gær eftir að eigandinn
mótmælti uppboðinu á þeim for-
sendum að óvissa ríkti um upp-
hæð skuldarinnar en á húsinu
hvílir gengistryggt lán. Er þetta
í fyrsta sinn sem sýslumaður
stöðvar uppboð vegna þessa. Frá
þessu var greint í fréttum Stöðv-
ar 2 í gærkvöldi.
Frjálsi fjárfestingabankinn fór
fram á nauðungarsölu á húsinu.
Á húsinu er áhvílandi myntkörf-
ulán í yenum og svissneskum
frönkum, sem hefur tvöfald-
ast frá því það var tekið. Eftir
að sýslumaður stöðvaði uppboð-
ið lýsti Frjálsi fjárfestingabank-
inn því yfir að hann hygðist kæra
niðurstöðuna til héraðsdóms.
Sýslumaður stöðvar uppboð:
Mótmæli skuld-
ara tekin gild
Vel sjáanlegur gufustrókur
Myndarlegur gufustrókur stóð upp úr
öðrum katli Eyjafjallajökuls í gærdag.
Samkvæmt upplýsingum Veðurstofu
var engin hreyfing á skjálftamælum.
Svo virðist sem reykurinn sé vatns-
gufa en vatn getur safnast saman
þegar mikil rigning er á svæðinu.
Fylgst er grannt með málum hjá
Veðurstofunni.
EYJAFJALLAJÖKULL
Stálu bíl og fóru á rúntinn
Þrír unglingar stálu bíl í Kópavogi
í fyrrakvöld og fóru á rúntinn. Þeir
skiptust á að aka og fóru víða um en
ökuferðinni lauk í Reykjavík þar sem
þeir skildu bílinn eftir. Bíllinn mun
nokkuð skemmdur eftir ökuferðina.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SPURNING DAGSINS