Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 6
6 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR
173.800kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
frítt fyrir golfsettið í flug, ótakmarkað golf í 7 daga,
gisting á 5* Marriott-hóteli með hálfu fæði, frí
afnot af golfkerru, fríir æfingarboltar, akstur til
og frá flugvelli og fararstjórn.
Verð á mann í tvíbýli:
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Golf á Spáni
La Sella 16.–23. október Fararstjóri: Björn Eysteinsson
Verðlaunatillagan um byggingu nýs Landspítala
1 2
3
5
6
4
89
10
111213
14
17
16
15
Nýtt heildarskipulag Landspítal-
ans var ákveðið í gær. Haldin var
hönnunarsamkeppni um útlit nýja
spítalans og varð hönnunarteymið
SPITAL hlutskarpast varðandi
frumhönnun fyrsta áfangans og
tengdrar háskólastarfsemi.
Stakkur var sniðinn eftir vexti
í valinu á hönnuninni og segir
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðis-
ráðherra að hugmyndin sem varð
fyrir valinu sé mun smærri í
sniðum og ekki eins ríkmann-
leg og lagt var upp með á tímum
ofþenslu.
Í SPITAL eru ASK arkitekt-
ar, Bjarni Snæbjörnsson arki-
tekt, Kanon arkitektar, Medplan,
Teiknistofan Tröð, Landark, Efla
verkfræðistofa, Lagnatækni og
Norconsult.
Helgi Már Halldórsson, verk-
efnastjóri SPITAL, segir verkefn-
ið vera mikinn áfanga. „Þau ger-
ast ekki stærri á Íslandi í dag,“
segir Helgi.
Ein af meginforsendum hönn-
unarkeppninnar var að flytja
Landspítalann í Fossvogi að
Hringbraut og ljúka þannig sam-
einingu stóru spítalanna á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrsti áfangi
verkefnisins samanstendur af
starfsemi í 66 þúsund fermetra
nýbyggingu og háskólastarf-
semi í allt að tíu þúsund fermetra
nýbyggingu.
Spítalalóðin verður byggð sem
eins konar bæjarhverfi til að nýt-
ast sem best og viðhalda ákveðn-
um sveigjanleika í umhverfinu. Í
umsögn dómnefndar hönnunar-
keppninnar er tillögu SPITAL lýst
sem sterkri hugmynd og höfund-
ar nái vel því markmiði sínu að
skapa bæjarsamfélag sem myndar
ramma um þverfaglegt samstarf
ólíkra greina. Uppbrot starfsem-
innar í aðskildar byggingar með-
fram götum er talið ríma vel við
núverandi byggð á spítalalóðinni.
Talað er um skírskotun til vinn-
ingstillögu um skipulag Vatns-
mýrarinnar.
Alþingi samþykkti í júní lög um
stofnun hlutafélags sem standa
mun að útboði á byggingu nýs
háskólasjúkrahúss við Hring-
braut. Útboð á að leggja fram
fyrir vorið 2011 og vonast er til að
jarðvegsframkvæmdir geti haf-
ist um sumarið. Gert er ráð fyrir
alútboði og að ríkið taki spítalann
á langtímaleigu í allt að fjörutíu
ár. sunna@frettabladid.is
Spítalalóðin verður
eins og bæjarhverfi
Úrslit í hönnunarkeppni um byggingu nýs Landspítala urðu ljós í gær. Ekki eins
ríkmannlegt og lagt var upp með á tímum ofþenslu, segir heilbrigðisráðherra.
1. Aðalanddyri með þjónustu og veitingahúsum fyrir almenning
á 2. hæð norðan megin.
2. Aðalaðkoma meðferðarkjarna á 2. hæð (jarðhæð að Smára-
götu).
3. Gjörgæsla, svæfing, vöknun á 3. hæð.
4. Mötuneyti starfsfólks á 2. hæð.
5. Inngangur bráðamóttöku (þeirra sem koma á eigin vegum),
slysamóttaka 1. hæð.
6. Háskóli Íslands, heilbrigðisvísindasvið.
7. Læknagarður.
8. Rannsóknarhús LSH og Blóðbankinn.
9. Bílageymsla.
10. Þyrlupallur.
11. Skurðstofur á 3. hæð sunnan megin.
12. Hjartagjörgæsla á 3. hæð vestan megin.
13. Sjúkrabílaaðkoma bráðamóttöku á 1. hæð.
14. Legudeildir á 4. og 5. hæð.
15. Barnaspítali Hringsins.
16. Myndgreiningardeild á 2. hæð að sunnanverðu.
17. Sjúkrahótel.
7
DÓMSMÁL Catalina Mikue Ncogo
hefur verið dæmd í Héraðs-
dómi Reykjaness í fimmtán mán-
aða fangelsi fyrir milligöngu um
vændi, líkamsárás og brot gegn
valdstjórninni. Hún var sýknuð af
mansalsákæru.
Catalina var ákærð fyrir að hafa
haft tekjur af vændi sex kvenna.
Þá var hún einnig fundin sek um
að hrækja á lögreglumann. Loks
var hún dæmd fyrir að hafa ráðist
á konu í stigagangi í fjölbýlishúsi
þar sem þær bjuggu báðar. Catal-
ina hafði verið að ryksuga gang-
inn í fjölbýlishúsi þar sem hún bjó
þegar nágranni hennar kom til
hennar og vildi ræða við hana um
brot á húsreglum. Það endaði með
því að Catalina vafði snúrunni um
hnúana á sér og lamdi konuna. Var
Catalina dæmd til að greiða henni
250 þúsund krónur í bætur.
Í byrjun desember síðastliðins
var Catalina dæmd í tveggja og
hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi
Reykjaness fyrir hagnýtingu
vændis og fíkniefnabrot. Hæsti-
réttur þyngdi þann dóm í þrjú og
hálft ár. Dómurinn nú er hegning-
arauki við þann dóm.
Tveimur dögum eftir að héraðs-
dómur kvað dóminn upp í desem-
ber var Catalina handtekin og
úrskurðuð í gæsluvarðhald vegna
gruns um vændisstarfsemi og
fleiri brot. - jss
Catalina Mikue Ncogo dæmd fyrir vændisstarfsemi en sýknuð af mansalsákæru:
Dæmd fyrir milligöngu um vændi
CATALINA Var enn dæmd í gær.
SÓLEYJARTORG Nýbyggingar sjúkrahússins verða skipulagðar til að skapa eins konar
lítið bæjarhverfi með áherslu á að viðhalda sýn yfir gamla Landspítalann. Hægt er að
kynna sér tillögurnar á slóðinni www.haskolasjukrahus.is á netinu.
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 90 stöðum um land allt. Nánari
upplýsingar á visir.is/dreifing
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt
á Vísi eða fengið sendan daglegan
tölvupóst með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
Óttast þú að hryðjuverk verði
framin á Norðurlöndum?
Já 57,3%
Nei 42,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ferð þú akandi í vinnuna í
sumar?
Segðu skoðun þína á visir.is
VIÐSKIPTI Bandaríska verslunar-
keðjan Wal-Mart er stærsta fyrir-
tæki í heimi.
Þetta kemur fram á nýjum
lista tímaritsins Fortune 500 yfir
stærstu fyrirtæki heimsins. Sam-
kvæmt Fortune nam velta Wal-
Mart 408 milljörðum dollara á síð-
asta ári eða 51 þúsund milljörðum
króna.
Í næstu sætum á eftir Wal-Mart
eru olíufélögin Exxon Mobil og
Shell en þau veltu tæplega 300
milljörðum dollara á síðasta ári.
Wal-Mart var í þriðja sæti á lista
Fortune á síðasta ári.
Verslunarkeðja veltir mestu:
Wal-Mart er
stærst í heimi
KJÖRKASSINN