Fréttablaðið - 10.07.2010, Síða 11
LAUGARDAGUR 10. júlí 2010 11
SAMFÉLAGSMÁL Forsvarsmenn
Víkingahátíðar í Reykjavík, sem
halda á í fyrsta skipti á Klambra-
túni næsta sumar, eru mjög
óánægðir við nafnbreytinguna á
túninu en nafni þess var breytt
úr Miklatúni í Klambratún í vik-
unni.
Víkingahátíð-
in hefur verið
markaðssett
víða erlendis
undir nafinu
Grand Viking
Festival at
Grand Park en
enska þýðing-
in á Miklatúni
er Grand Park.
Gunnar Ólafsson, forsvarsmaður
víkingafélagsins Einherja, segir
nafnbreytinguna skemma veru-
lega fyrir hátíðinni og óttast að
þátttaka í hátíðinni verði minni
en ella. Hann harmar að borgar-
stjórn hafi gert þetta án samráðs.
Unnið hefur verið að hátíð-
inni lengi en hún verður hald-
in í fyrsta skipti 17. til 19. júní á
næsta ári. - mþl
Nafnbreyting veldur óánægju:
Reykvískir vík-
ingar ósáttir
GUNNAR
ÓLAFSSON
Piltur á hjóli fyrir bíl
Ekið var á fjórtán ára gamlan pilt á
reiðhjóli við Tryggvatorg á Selfossi
eftir hádegi í gær. Að sögn lögreglu
virðist pilturinn ekki hafa meiðst
alvarlega. Hann var fluttur á slysadeild
á Selfossi til skoðunar.
Fannst sofandi í fellihýsi
Húsfreyju í Keflavík brá í brún í gær-
morgun þegar hún kom að erlendum
manni sofandi í fellihýsi hennar.
Útlendingurinn bað afsökunar en
kvaðst peningalaus. Hann var ekki
með neinn farangur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
AKUREYRI Eiríkur Björn Björg-
vinsson verður ráðinn bæjar-
stjóri Akureyrar til næstu fjög-
urra ára.
Meirihluti
bæjarstjórnar
ákvað þetta í
gær en gengið
verður form-
lega frá ráðn-
ingunni síðar
í þessum mán-
uði. Eiríkur
mun hefja störf
15. ágúst næst-
komandi.
Eiríkur Björn var áður bæjar-
stjóri Fljótsdalshéraðs en hann
lét af störfum eftir kosningarnar
í maí eftir átta ára starf. Hann
er menntaður íþróttakennari auk
þess að hafa lokið diplómaprófi í
stjórnun.
Geir Kristinn Aðalsteinsson,
forseti bæjarstjórnar Akureyrar,
segist mjög ánægður með þessa
niðurstöðu og telur að hæfur
maður hafi verið ráðinn. - mþl
Bæjarstjórn Akureyrar:
Eiríkur Björn
nýr bæjarstjóri
EIRÍKUR BJÖRN
BJÖRGVINSSON
ORKUMÁL Guðni A. Jóhannesson
orkumálastjóri segir að breyting-
ar á frumvarpi iðnaðarráðherra
um verndar- og nýtingaráætlun
kalli á að svarað verði spurningum
um stöðu Torfajökulssvæðisins og
einstakra svæða á Reykjanesi og í
Krýsuvík.
Breytingin felur í sér að ekki megi
taka nýjar ákvarðanir um að ráðast
í virkjanir innan friðlýstra svæða
óháð niðurstöðum þeirrar vinnu sem
fram hefur farið við gerð rammaá-
ætlunar. Með breytingunni var leyst-
ur ágreiningur stjórnarflokkanna
sem hafði valdið því að málið komst
ekki á dagskrá
Alþingis mánuð-
um saman. „Sam-
kvæmt þessu
koma virkjana-
kostir á friðuð-
um svæðum ekki
til greina,“ segir
Guðni orkumála-
stjóri. Óvíst sé
hvort breyting-
in muni hafa ein-
hver áhrif í raun en hún feli í sér víð-
tækari ályktanir um gildi friðunar
en hingað til. Verið sé að láta friðun
ná til markmiða sem ekki hafa verið
skilgreind. Ein af þeim spurning-
um sem svara þurfi í framhaldinu
sé hvort ætlunin sé að útiloka frek-
ari rannsóknir og mat á Torfajök-
ulssvæðinu. Búið sé að leggja mat á
svæðið í heild og gefa náttúruvernd-
argildi þess háa einkunn. Eftir sé að
skoða einstaka virkjanakosti innan
þess.
„Það er spurning hvort menn
vilja halda áfram að kanna svæðið
eða loka því hér og nú,“ segir Guðni.
Eins geti þurft að svara flóknum
lagatæknilegum spurningum um
stöðu einstakra svæða í Krýsuvík
og á Reykjanesi. - pg
Orkumálastjóri um breytingar á frumvarpi um verndar- og nýtingaráætlun:
Flóknum spurningum ósvarað
GUÐNI A.
JÓHANNESSON
hefur opið umhverfis landið
Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is
Verið velkomin til okkar í sumar:
Blanda í Húnavatnssýslu: Dimmir hratt á draugaslóð – málverkasýning Baska
Búrfell í Þjórsárdal: Gengið að verki – ljósmyndasýning Jakobs Jakobssonar
Andlit Þjórsdæla – líf í Þjórsárdal í 1100 ár
Þjóðveldisbærinn – Lifandi vitni um húsakynni á þjóðveldisöld
Krafla í Mývatnssveit: Kröflueldar – kvikmynd og fræðsla um orku í iðrum jarðar
Laxá í Aðaldal: Hvað er með Ásum? – goðafræði og höggmyndir Hallsteins Sigurðssonar
Ljósifoss við Sog: Náttúran í hönnun – samstarfsverkefni með Hönnunarmiðstöð Íslands
Végarður í Fljótsdal: Framkvæmdin við Kárahnjúka í máli og myndum. Ferðir inn í Fljótsdalsstöð
Allar stöðvar: Raunveruleikatékk – hringferð um landið í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík
Landsvirkjun býður alla velkomna
í stöðvar sínar í sumar. Í stöðvum
Landsvirkjunar umhverfis landið má
kynna sér orkuvinnslu úr vatnsafli
og jarðvarma.
Samhliða orkufræðslu er boðið upp
á sýningar af ýmsum toga, meðal
annars í samstarfi við Listahátíð í
Reykjavík og Hönnunarmiðstöð
Íslands.
Komdu í heimsókn í sumar
Við tökum vel á móti þér
Opið alla eftirmiðdaga í sumar. Aðgangur ókeypis.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
10
16
39
DÓMSMÁL Kona hefur verið
dæmd í fimm mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að kasta
glerglasi í andlit konu á veit-
ingastað í Reykjavík. Glasið
brotnaði og sauma þurfti skurð
í andliti fórnarlambsins. Auk
fangelsisrefsingarinnar var
konan dæmd til að greiða hinni
sem meiddist 250 þúsund í
skaðabætur.
Konan neitaði sök fyrir dómi.
Hún kvaðst ekki hafa miðað á
andlit hinnar, heldur hafi það
lent þar óvart. - jss
Kona dæmd fyrir líkamsárás:
Kastaði glasi í
andlit konu
SVALANDI ÍSTERTA Þessi fallega risa-
panda gæddi sér á ístertu á heimssýn-
ingunni í Sjanghæ í Kína í gær.
NORDICPHOTOS/AFP