Fréttablaðið - 10.07.2010, Page 18
18 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR
F
yrirtækið ORF Líftækni
stendur á krossgötum.
Undanfarin tíu ár hafa
frumkvöðlar og starfsfólk
fyrirtækisins unnið þrotlaust að
því að þróa nýja aðferð til fram-
leiðslu á sérvirkum próteinum
sem fyrirfinnast í mannslíkam-
anum. Til þess er fræ byggplönt-
unnar nýtt sem smiðja fyrir þessi
prótein, en þau nýtast til læknis-
rannsókna, lyfja- og snyrtivöru-
framleiðslu. Tækifærunum virð-
ast vera lítil takmörk sett. Til er
orðinn nýr grænn iðnaður hér á
landi og fyrsta varan er komin á
almennan neytendamarkað frá
dótturfyrirtæki ORF, EGF BIO-
effect húðdropar frá Sif Cosmet-
ics. Líftækniafurðir ORF fara þó
nær allar á erlendan markað.
Mættu vantrú
Dr. Björn Lárus Örvar er fram-
kvæmdastjóri ORF og hin nýja
tækni er byggð á hugmynd hans
og dr. Einars Mäntylä, annars
sérfræðings í sameindalíffræði
plantna. Fyrirtækið var síðan
stofnað utan um hugmyndina af
Júlíusi B. Kristinssyni, sem nú
starfar sem fjármálastjóri ORF,
Birni og Einari í ársbyrjun 2001.
„Í upphafi var þetta lítið rann-
sókna- og þróunarfyrirtæki þar
sem allur okkar kraftur fór í að
þróa þessa framleiðslutækni. Því
er nú lokið,“ segir Björn. „Fáir
höfðu trú á þessu og erfitt að fá
fjármagn, sérstaklega fyrstu tvö
árin. Þá skipti góður stuðning-
ur Rannís sköpum. Mikill kraft-
ur færðist svo í starfið þegar við
fengum fjárfesti til samstarfs árið
2006. Þá gátum við klárað fram-
leiðslutæknina og hafið fram-
leiðslu á mörgum vörum.“
Húðdropar slá í gegn
ORF er í dag með í framleiðslu,
á mismunandi stigum, 130 sér-
virk prótein sem tilheyra flokki
próteina sem kallast frumuvakar.
Þar af hafa 39 frumuvakar verið
markaðssettir og einn þeirra hér
á Íslandi í húðdropum.
„Við tókum þá ákvörðun að
stofna dótturfyrirtæki utan um þá
framleiðslu; Sif Cosmetics. Ástæð-
an er sú að starfsemi snyrtivöru-
fyrirtækis og ORF Líftækni er svo
ólík. Markaðir ORF eru margir og
sérhæfðir og við tókum þá ákvörð-
un fyrir tveimur árum að það væri
heilladrýgst að stofna sérstök félög
um vörur sem eiga lítið sameig-
inlegt nema upprunann. Fyrsta
félagið er Sif Cosmetics, sem sér-
hæfir sig í því að þróa og mark-
aðssetja snyrtivörur. Húðdrop-
arnir eru í raun bara fyrsta varan
innan þess félags en við stefnum á
að markaðssetja heila snyrtivöru-
línu með frumuvökum, undir vöru-
merkinu BIOeffect.“
Umskipti
„Á undanförnum tveimur árum
hafa orðið algjör umskipti í fyrir-
tækinu. Við höfum þróast frá því
að vera rannsókna- og þróunarfyr-
irtæki; nýsköpunarfyrirtæki, yfir í
fyrirtæki sem framleiðir og mark-
aðssetur vörur. Það sést kannski
best á því hvernig mannahald hjá
okkur hefur breyst. Við byrjuðum
fjögur árið 2001 og erum fjöru-
tíu starfsmenn í dag í Kópavogi
og Grindavík. Um tuttugu manns
hafa komið til okkar síðustu mán-
uðina og við erum að leita að fólki
í hátæknistörf. Hjá fyrirtækinu í
dag er fólk sem spannar allt litróf-
ið á menntunarskalanum, öfugt við
það sem gerðist í byrjun. Þá voru
þetta nokkrir doktorar sem störðu
ofan í smásjár.“
ORF er stærsta fyrirtæki sinn-
ar tegundar í Evrópu og framleið-
ir vöru sem er einstök á heims-
vísu. Fyrir leikmann virðist
þetta tvennt gefa nær ótakmark-
aða möguleika. „Núna er áhersl-
an á að stækka mjög hratt,“ segir
Björn. „Við viljum nýta það tækni-
lega og markaðslega forskot sem
við greinilega höfum. Með það í
huga leituðum við í fyrsta skipti
til fjárfesta utan landsteinanna
í janúar, og til liðs við okkur eru
komnir mjög öflugir fagfjárfest-
ar sem deila sýn okkar. Því vilj-
um við núna auka framleiðslu-
getuna með meiri tækjakosti og
leggja enn meiri áherslu á mark-
aðsstarfsemi. Íslendingar verða
varir við þetta í gegnum húðdrop-
ana en þetta á við um mun fleiri
vörur, enda er aðeins ein af 39
vörum okkar á innlendum mark-
aði. Aðrar vörur fara til háskóla,
fyrirtækja og rannsóknastofnana
erlendis.“
Verðmætara en gull
Heimsmarkaðurinn með frumu-
vaka, ef lyf eru undanskilin, er
áætlaður um einn milljarður
Bandaríkjadala á ári, eða um 125
milljarðar króna. Séu lyf tekin
með hækkar sú tala margfalt. Um
fimmtán frumuvakar eru á mark-
aðnum sem lyf, og eru til dæmis
nýttir við krabbameinsmeðferð
bæði hér á landi og erlendis. Mark-
aðurinn fyrir eitt þessara lyfja er
fimm milljarðar Bandaríkjadoll-
ara; eða 625 milljarðar íslenskra
króna.
„Við erum að fara inn á lyfjaþró-
unarmarkaðinn en það verður gert
í gegnum annað dótturfélag okkar
sem heitir Gló Biopharma og var
stofnað í fyrra. Þar erum við í við-
ræðum við indverska fjárfesta um
að fara með okkur í stórt lyfjaþró-
unarverkefni.“
Lyfjaþróun er tímafrek og dýr
og Björn telur að afurð verkefnis-
ins sé ekki að vænta fyrr en eftir
mörg ár. „Þarna erum við að tala
um nokkur prótein sem kæmu á
markað eftir fimm til sjö ár en við
tökum enga áhættu af kostnaði við
verkefnið.“
Nýtast við smíði á líffærum í menn
Björn og félagar tóku þá ákvörð-
un að einbeita sér að framleiðslu
frumuvaka þegar ljóst þótti að
mikilvægi þeirra myndi margfald-
ast í framleiðslu á líftæknivörum
og margs konar læknisfræðilegum
rannsóknum. „Það sem síðan ger-
ist er að menn eru komnir á fulla
ferð með nýja tegund af lækn-
isfræði, svokallað regenerative
medicine. Við köllum þetta vefja-
smíði og felst einfaldlega í því að
nota stofnfrumur til þess að búa til
mismunandi vefi eða jafnvel líf-
færi. Við erum að sjá fyrstu dæmi
þess að búin hefur verið til þvag-
blaðra utan líkama sem var rækt-
uð úr stofnfrumum. Þessu má líkja
við að hægt sé að smíða varahluti í
menn. Einnig hafa verið búnar til
hjartalokur, vélinda og barki, svo
dæmi séu tekin. Til þessa horfum
við og fyrirtækið sem býr til þvag-
blöðru myndi í framtíðinni kaupa
aðra vaxtarþætti af okkur en þeir
sem væru að búa til barkakýli.“
Það má því segja að ORF Líftækni
rækti hráefni sem meðal annars
eru notuð við smíði á líffærum í
menn.
Prótein úr mannslíkamanum
Frumuvakarnir, sem eru lítil
prótein úr mannslíkamanum,
skipta hundruðum og stýra því
hvað verður um frumuna. Hvort
hún verður húðfruma, hvítt eða
rautt blóðkorn. „Það var engin til-
viljun hvaða frumuvaki var settur
í húðdropana sem Sif framleiðir.
Við vissum að hann gæti gert gagn
í snyrtivörum. Þegar við skoðuð-
um starfsemi húðarinnar sáum
við hvað þessi frumuvaki skiptir
miklu máli, bæði hvað varðar öldr-
unareinkenni og almennt viðhald
húðarinnar. Þess vegna ákváðum
við að þróa einfalda og örugga húð-
vöru sem hefur fengið vægast sagt
frábær viðbrögð á markaði. Önnur
leið til að framleiða húðdropana,
leið sem menn vilja auðvitað helst
ekki nota í snyrtivöruiðnaði, er að
nota erfðabreyttar bakteríur, dýra-
frumur eða vef úr manni.“
Byggfræi breytt í verksmiðju
Það er hægt að erfðabreyta byggfræi til að framleiða prótein sem notuð eru við líffærasmíði. Líka má fá uppistöðu í lyf við
krabbameini. Svavar Hávarðsson ræddi við Björn Lárus Örvar hjá ORF Líftækni um möguleika líftækninnar og fyrirtækisins.
FRAMKVÆMDASTJÓRINN Björn Lárus Örvar telur að fyrirtækið verði innan skamms tíma orðið stórfyrirtæki á íslenskan mælikvarða.
➜ ORFEUS™ FRAMLEIÐSLUKERFI ORF
Orfeus™ kerfið byggist á því
að nýta fræ byggplöntunn-
ar sem smiðju fyrir sérvirk
prótein. Með aðstoð nýrrar
þekkingar í erfðatækni eru
plöntunum gefin „erfðafyrir-
mæli“ um að framleiða þau í
fræjum sínum.
Þessi erfðafyrirmæli eru í
raun nákvæmlega smíðað-
ar erfðaupplýsingar í stórri
DNA sameind sem flutt er
yfir í byggið í hvert sinn sem
framleiða þarf nýtt, sérvirkt
prótein. Eftir flutninginn
verður til nýtt yrki af bygginu
sem er eins að öllu leyti og
annað bygg nema að það
getur kerfisbundið framleitt
þetta sérvirka prótein í fræjum
sínum. Eftir uppskeru eru sér-
virku próteinin fínhreinsuð úr
fræjunum með nýjustu tækni
og gæðaprófanir gerðar áður
en að sölu kemur.
VÍSINDI Árið 2008 hlaut fyrirtækið Nýsköp-
unarverðlaun RANNÍS, Útflutningsráðs og
Nýsköpunarmiðstöðvarinnar.
Græna smiðjan er einstök á heimsvísu og framleiðslan er að mestu leyti
sjálfvirk. Byggplönturnar eru ræktaðar í næringarlausn á sérhönnuðu færi-
bandi. Hitastigi, birtu, og rakastigi er stjórnað nákvæmlega til að aðstæður
fyrir ræktunina séu sem bestar. Mikla orku þarf til ræktunar byggs í gróður-
húsi og smiðjan notar rafmagn og heitt vatn frá orkuveri Hitaveitu Suður-
nesja í Svartsengi.
Engin mold er notuð heldur er um vatnsrækt að ræða. Sáð er í öðrum
endanum, plantan ferðast svo enda á milli í gróðurhúsinu þar sem skorið
er upp. Um 70 mismunandi frumuvakar eru framleiddir í Grænu smiðjunni
í dag.
GRÆNA SMIÐJAN - HÁTÆKNIGRÓÐURHÚS ORF