Fréttablaðið - 10.07.2010, Síða 19
LAUGARDAGUR 10. júlí 2010 19
Skemmdarverk í Gunnarsholti
Í fyrrasumar réðst aðgerðahóp-
ur sem nefnir sig Illgresi inn á
tilraunareit ORF í Gunnarsholti
og eyðilagði allt erfðabreytt bygg
sem var í ræktun á reitnum. Til-
kynning var send til fjölmiðla
og tilraunir ORF með ræktun á
erfðabreyttu lyfjabyggi sagðar
ryðja brautina fyrir ræktun erfða-
breyttra lífvera á Íslandi.
Björn segir að verknaðurinn
hafi verið að fyrirmynd erlendra
öfgahópa sem hafi gert fyrirtækj-
um og háskólastofnunum erlendis
erfitt fyrir við rannsóknir og til-
raunir á erfðatækniplöntum.
„Þarna var ætlunin að prófa
ákveðna verkferla og ræktunar-
og uppskeruaðferðir. Á grunni
annarra viðamikilla tilrauna á
okkar vegum og annarra vitum
við að bygg er sjálffrjóvga, sem
þýðir að hver byggplanta frjóvg-
ar aðeins sjálfa sig, en ekki aðrar
byggplöntur. Við vitum líka að
það er engin planta á Íslandi sem
bygg getur æxlast við. Það er búið
að rækta bygg á Íslandi í þúsund
ár og það finnst einfaldlega ekki
úti í villtri náttúru. Kerfið er því
algjörlega lokað vistfræðilega og
líffræðilega, sem er mikill kost-
ur.“
Utanaðkomandi
Lögregla rannsakaði atvikið og
komst að því að tilkynningin
sem send var fjölmiðlum kom frá
Hollandi en ekki er vitað hverj-
ir áttu í hlut. „Svona lagað dreg-
ur ekki úr okkur kjarkinn. Málið
gæti verið byggt á misskilningi
því mikil andstaða var lengi vel í
Evrópu við erfðabreytt matvæli,
sem hefur verið stunduð í stór-
um stíl síðan 1994, en við rækt-
um ekki matvæli. Þessi andstaða
fer nú minnkandi. Í mjög mörgum
matvælum í dag er að finna hrá-
efni úr erfðabreyttum plöntum,
til dæmis í matarolíum og flest-
um unnum matvælum. Mest allt
kjarnfóður sem notað er í íslensk-
um landbúnaði inniheldur afurðir
erfðabreyttra plantna. Þessi rækt-
un vex hratt, en hún snýr ekki að
okkar fyrirtæki á neinn hátt. Mín
skoðun er hins vegar sú að það er
mikill ábyrgðarhluti að nota ekki
erfðatækni í matvælaframleiðslu.
Valið er einfalt. Ætlum við að
freista þess að brauðfæða mann-
kynið eða ekki? Án erfðabreyttra
matvæla er það útilokað. Það
er engin ástæða til að nota ekki
þessa tækni, þó hluti vel stæðra
Evrópubúa sjái það í hillingum
að hverfa aftur til fortíðar þegar
engin sýklalyf, tilbúinn áburður
eða erfðatækni voru til.“
Leyfi ORF til akurræktunar,
sem Umhverfisstofnun veitti á
sínum tíma, var kært til umhverf-
isráðherra af andstæðingum
erfðatækni. ORF bíður eftir
úrskurði Svandísar Svavarsdóttur
og býst við að leyfið standi. „Öll
lagaleg og vísindaleg rök mæla
með því. Ef ekki verðum við að
hugsa um frekari uppbyggingu
fyrirtækisins í öðrum löndum.
Það hefði afleiðingar fyrir okkar
fyrirtæki og framtíðarhugmyndir
okkar hér heima.“
Framtíðin
Björn sér fyrir sér að innan ekki
langs tíma verði ORF Líftækni
orðið stórfyrirtæki á íslenskan
mælikvarða með nokkur hundruð
manns í vinnu. Um nokkur dótt-
urfélög væri að ræða sem tækju
að sér sérstaka starfsemi byggða
á kjarnaþekkingu og tækni frá
ORF.
„Við viljum sjá nokkur prótein
ræktuð í stórum stíl í akuryrkju,“
segir Björn. „Þetta yrði viðbót
við okkar núverandi starfsemi
sem kæmi landsbyggðinni til
góða enda eigum við Íslendingar
gríðarlegt landflæmi sem best
verður lýst sem eyðimörk. Það
viljum við nýta og byggja upp
grænan úrvinnsluiðnað í kring-
um þetta. En þetta er ekki hægt
nema stuðningur hér innanlands
komi til. Möguleikar okkar eru
gríðarlegir að vissum skilyrðum
uppfylltum því kerfið sem við
höfum þróað er einstakt á heims-
vísu og það er enginn sem getur
náð okkar tæknilega forskoti á
næstunni.“
2001
■ Fyrirtækið stofnað.
2002
■ Fyrsta umferð
fjármögnunar.
■ Fyrsta erfðatækni
byggyrkið búið til.
2003
■ Fyrsta tilrauna-
útiræktunin
(Gunnarsholt).
2005
■ Önnur umferð
fjármögnunar.
■ Samstarfssamning-
ur við Landbúnað-
arháskóla Íslands.
2006
■ Fyrsta virknimæl-
ing á vaxtarþætti
sem framleiddur er
í byggi.
■ Tíu þúsundasta
erfðatækniplantan
framleidd í vefja-
ræktun.
2007
■ Nýjar höfuðstöðvar
í Keldnaholti.
2008
■ ORF hlýtur Nýsköp-
unarverðlaunin
2008.
■ Markaðssetning
BIOeffectTM
vörulínunnar fyrir
snyrtivörur.
■ Fyrsti samningur
við snyrtivörufyr-
irtæki.
■ Fyrsta einkaleyfi
fyrirtækisins gefið
út.
■ Fyrsti samningur
við dreifiaðila.
2009
■ Samstarfssamning-
ur við Háskóla Íslands.
■ Nýjar höfuðstöðv-
ar í Víkurhvarfi 3 í
Kópavogi.
SAGA ORF LÍFTÆKNI
VISSIR ÞÚ?
Frá örófi alda hefur maðurinn reitt sig á lyfvirk efni
úr plöntum og notað sér til lækninga. Í upphafi
9. áratugarins hófst stórfelld framleiðsla á insúl-
íni með erfðatækni þar sem bakteríur eru látnar
framleiða lyfið og í kjölfarið hafa komið fjölmörg
próteinlyf framleidd í bakteríum, gersveppum eða
dýrafrumuræktum. Þessi lyf eru m.a. notuð sem
krabbameinslyf, meðferð við eyðni, liðagigt og MS.
Með sameindaræktun próteinlyfja í plöntum lokast
hringurinn og leitað er aftur í plöntur til lyfjagerðar.
Grunnur að góðri máltíð
www.holta.is
Gullverðlaun
Starfsmenn Holtakjúklinga mega vera stoltir, því á dögunum hlaut
léttreykta kjúklingabringuáleggið frá Holtakjúklingum gullverðlaun
í fagkeppni kjötiðnaðarmeistara. Þeir eru vel að þessum
gullverðlaunum komnir enda er áleggið framleitt af mikilli
fagmennsku úr besta hráefni sem völ er á.