Fréttablaðið - 10.07.2010, Page 24
24 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR
F
yrsta kreditkortið var
gefið út á Íslandi 10.
júlí 1980 og sjö dögum
síðar gekk Haraldur
Haraldsson, þáverandi
forstjóri Eurocard, inn
í Tékk Kristal og notaði kreditkort
fyrstur manna á Íslandi. Euro-
card var fyrstu þrjú árin eitt með
markaðinn en VISA-kort komu svo
til landsins árið 1983. Aðeins 150
fyrirtæki tóku við kortum í fyrstu
og fengu kortaeigendur sérstakan
bækling með kortinu sínu um hvar
hægt væri að nota það.
Ekki var hægt að nota íslenskt
kreditkort erlendis til að byrja
með vegna gjaldeyrishafta
Seðlabankans og þegar það var
hægt þurfti að sækja sérstaklega
um leyfi til þess hjá Seðlabanka
Íslands. Í fyrstu voru það nánast
eingöngu opinberir starfsmenn
og starfsmenn einkafyrirtækja í
útflutningsiðnaði sem fengu slík-
ar heimildir. Aðrir urðu að reiða
sig á hefðbundinn gjaldeyri en
máttu eigi að síður nota greiðslu-
kortið í neyð, en alls ekki til inn-
kaupa.
Ekki voru allir á þeirri skoðun
að kreditkortin væru af hinu góða.
Í apríl 1980 léði Guðrún Helgadótt-
ir, þá þingkona Alþýðubandalags-
ins, máls á því að kortin kynnu að
leiða til umframeyðslu. Neytenda-
blaðið og Tíminn blönduðu sér í
umræðuna og á endanum varð
Haraldi Haraldssyni, forstjóra
Kreditkorta, nóg um, fékk birta
grein í Morgunblaðinu í desember
1980 þar sem hann vísaði þessu
öllu á bug og sagði kreditkort-
in síður en svo leiða til umfram-
eyðslu. Þá hélt hann því fram að
Íslendingar væru ekki meiri van-
skilamenn en aðrar þjóðir.
Miklar sveiflur hafa orðið á
báða bóga í notkun debet- og
kreditkorta eftir hrun en þó hefur
heildarvelta greiðslukorta lands-
manna haldist nokkuð jöfn undan-
farna mánuði.
Íslensk kortaþjóð í þrjátíu ár
Þrjátíu ár eru liðin frá því að fyrsta íslenska kreditkortið var gefið út. Margar raðgreiðslur hafa runnið til sjávar síðan þá, þegar
aðeins 150 fyrirtæki tóku við kortum. Júlía Margrét Alexandersdóttir skautaði yfir gömul myndaalbúm og kreditkortasöguna.
BYLTING FYRIR MEÐALJÓN OG MEÐALJÓNU Afgreiðslukona bregður á leik í verslun árið 1984 þegar tveimur kortum er otað að henni. Íslendingar höfðu fram til ársins 1980
aðallega notast við ávísanir og reiðufé. Hraðbankar komu til sögunnar árið 1995. 365/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
BRUGÐIÐ Á LEIK Á LÆKJARTORGI Starfsmenn Eurocard bregða á leik á Lækjartorgi árið 1984 og kynna kortið fyrir landsmönn-
um. Kortin þóttu bylting fyrir venjulega alþýðu sem gekk ekki að lánum fyrir utanlandsferðum vísum í bönkum. Kreditkortin voru
því kærkomin fyrir mörg heimili sem notuðu þau til að fara til Mallorca og kaupa sjónvarp.
POSAR SLÁ ÚT VEGNA ÁLAGS Oft þurfti að nota handvirku
aðferðina fyrstu árin eftir að posakerfið var innleitt vegna
álags. Hér þurfti að grípa til slíkra ráðstafana árið 1983.
EITT FYRSTA AUGLÝSINGASTRÍÐIÐ Eurocard var nánast einrátt á íslenskum kredit-
kortamarkaði í þrjú ár en þá hóf VISA starfsemi sína. Upp úr sauð milli Eurocard
og VISA þegar fyrrnefnda kortafyrirtækið birti fræga auglýsingu árið 1989 með sla-
gorðinu „Ekki láta vísa þér á dyr“. VISA Ísland kærði Eurocard fyrir brot á siðareglum
SÍA. Auglýsingin var síðar meir valin athyglisverðasta auglýsingin í lokahófi samtaka
auglýsingastofa.
GAMLA HANDVIRKA AÐFERÐIN Afgreiðslukona tekur við kreditkorti árið 1987 og
notar gömlu handvirku aðferðina við greiðsluna. Svokallaðir posar litu svo dagsins
ljós árið 1990 en flest fyrirtæki tóku orðið við kortum á þeim árum. Nema ÁTVR,
sem fór ekki að taka við kortum fyrr en 1998.
MISJAFNAR MÓTTÖKUR
Miklar deilur urðu í þjóðfélaginu um væntanlega
kortavæðingu landsmanna. Kortin voru sögð eiga að
auka verðbólgu, koma neytendum í skuldafen auk þess
sem kortin myndu þrengja að kaupmönnum og hækka
vöruverð. Guðrún Helgadóttir þáverandi
þingmaður var ein þeirra sem
gagnrýndi kortið harðlega og
sagði að kortið myndi leiða til
umframeyðslu.