Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 27
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
JÚLÍ 2010
M
ünchen er höfuðborg
Bayern og þriðja
s t æ r s t a b o r g
Þýskalands. Íbúar
hennar eru 1,3 milljónir en þrátt
fyrir það hefur hún yfir sér
heimilislegan brag sem einkennist
af gömlum og sögufrægum
byggingum, fagurlega skreyttum.
Í München má margt bralla.
Bjórinn er Bæjurum til dæmis
hugleikinn og því auðvelt að ramba
inn í bjórgarð og væta kverkar
með bruggi úr smiðju einnar af
fjölmörgum bruggverksmiðjum
b o r g a r i n n a r . F r æ g a s t i
bjórgarðurinn er Hofbräuhaus
sem afgreiðir konunglegan bjór
með mörg hundruð ára sögu
auk þjóðlegra rétta á borð við
schweinshaxe, knödel, sauerkraut
og alls kyns pylsur.
Enski garðurinn ljáir borg-
inni notalega stemningu enda er
hann 4,17 ferkílómetrar og þar
með stærri en Central Park í New
York. Þar njóta íbúar borgarinnar
útivistar, hjóla og sóla sig.
SAGAN VIÐ HVERT FÓTMÁL
München er líklega þekktust fyrir bjórmenningu
og októberfest. Þó er svo margt annað sem borgin
hefur upp á að bjóða. Allt frá söfnum og góðum
verslunum til sögulegra bygginga og afþreyingar
fyrir alla fjölskylduna. Þá er borgin nokkurs konar
gátt að öðrum Evrópulöndum enda stutt að fara til
Austurríkis, Ítalíu, Sviss og Tékklands. Icelandair
fl ýgur beint til München til 9. september. FRAMHALD Á SÍÐU 4
Hinsegin staðir
Samkynhneigð pör í
giftingarhugleiðingum
hafa úr mörgum
spennandi
áfangastöðum
að velja fyrir
hveitibrauðsdagana.
SÍÐA 6
Kann vel við sig í Cannes
Jón Eggert Víðisson rekur hótel við
Miðjarðarhafsströnd Frakklands.
SÍÐA 2