Fréttablaðið - 10.07.2010, Side 28
ferðalög kemur út mánaðarlega
með helgarblaði Fréttablaðsins.
Ritstjóri Roald Viðar Eyvindsson roald@frettabladid.is
Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir
Forsíðumynd Nordic Photos Getty
Pennar Gunnarþóra Gunnarsdóttir, Marta María
Friðriksdóttir, Ragnheiður Tryggvadóttir og Sólveig
Gísladóttir. Ljósmyndir Fréttablaðið
Auglýsingar Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
JÚLÍ 2010
M ünchen er höfuðborg Bayern og þriðja s t æ r s t a b o r g Þýskalands. Íbúar
hennar eru 1,3 milljónir en þrátt
fyrir það hefur hún yfir sér
heimilislegan brag sem einkennist
af gömlum og sögufrægum
byggingum, fagurlega skreyttum.
Í München má margt bralla.
Bjórinn er Bæjurum til dæmis
hugleikinn og því auðvelt að ramba
inn í bjórgarð og væta kverkar
með bruggi úr smiðju einnar af
fjölmörgum bruggverksmiðjum
b o r g a r i n n a r . F r æ g a s t i
bjórgarðurinn er Hofbräuhaus
sem afgreiðir konunglegan bjór
með mörg hundruð ára sögu
auk þjóðlegra rétta á borð við
schweinshaxe, knödel, sauerkraut
og alls kyns pylsur.
Enski garðurinn ljáir borg-
inni notalega stemningu enda er
hann 4,17 ferkílómetrar og þar
með stærri en Central Park í New
York. Þar njóta íbúar borgarinnar
útivistar, hjóla og sóla sig.
SAGAN VIÐ HVERT FÓTMÁLMünchen er líklega þekktust fyrir bjórmenningu og októberfest. Þó er svo margt annað sem borgin hefur upp á að bjóða. Allt frá söfnum og góðum verslunum til sögulegra bygginga og afþreyingar fyrir alla fjölskylduna. Þá er borgin nokkurs konar gátt að öðrum Evrópulöndum enda stutt að fara til Austurríkis, Ítalíu, Sviss og Tékklands. Icelandair fl ýgur beint til München til 9. september.
FRAMHALD Á SÍÐU 4
Hinsegin staðir
Samkynhneigð pör í
giftingarhugleiðingum
hafa úr mörgum
spennandi
áfangastöðum
að velja fyrir
hveitibrauðsdagana.
SÍÐA 6
Kann vel við sig í Cannes
Jón Eggert Víðisson rekur hótel við
Miðjarðarhafsströnd Frakklands.
SÍÐA 2
N
ýuppteknar kartöflur, síld og dill og safa-
rík jarðarber með rjóma. Mmmmm … Mið-
sumarmaturinn í Svíþjóð.
Sænska sumarið er ljúft. Það vissi ég
fyrir og sannfærðist enn betur um fyrir skemmstu
er ég dvaldi í vikutíma í Värmlandi. Til að komast
þangað frá Íslandi er best að fljúga til Ósló og ferð-
ast svo með bíl eða lest. Sonur minn sem býr í Arvika
sótti mig til Gardemoen því flugvélinni seinkaði frá
Keflavík svo sýnt var að síðasta lest það kvöldið yrði
komin á sporbaug austur yfir landamærin.
Arvika er fallegur bær á bökkum vatns og teygir
sig þaðan upp hæð. Húsin bera sænskri byggingarlist
fagurt vitni og íbúarnir sjá um að skreyta þau með
blúndugardínum og blómakerjum. Sænskt og sætt.
Þá er bílaflotinn á götunum þjóðlegur. Volvo á eftir
Volvo. Sumir sýnilega komnir til ára sinna en eigend-
urnir ekki. Það virðist nefnilega í tísku hjá ungdómn-
um í Arvika að aka um á eldgömlum Volvoum á litlum
dekkjum – með græjurnar í botni.
Värmland bar nafn með rentu meðan ég stóð við.
Nálin á hitamælinum hélt sig kringum 20 stigin. Við
vatnið er vinaleg strönd þar sem bæjarbúar og tjald-
stæðisgestir sóla sig. Ég fór þangað aldrei en þegar
sólin var farin af svölunum um tvöleytið rölti ég
gjarnan niður í miðbæinn með bók í töskunni, settist
á bekk í skrúðgarðinum eða á torginu og beið eftir að
sonurinn lyki vinnu og byði mér á kaffihús. Stundum
kíkti ég í búðir eða gramsaði á flóamörkuðum. Fann
kökudiska við bolla sem ég keypti eitt sinn í Köben.
Eitt kvöldið fórum við mæðgin að sjá Miðsumar-
næturdraum eftir Shakespeare, leikinn með tilþrif-
um í reisulegu rauðu húsi í grænu túni á öðrum vatns-
bakka. Í hléinu náðu gestir í nestiskörfur og settust
með þær á túnið. Eins og í sænskri sumarmynd.
Eitt er enn ótalið Arvika til gildis – Olsonss brygga
– glæsilegur veitinga-og skemmtistaður við smábáta-
höfnina sem var opnaður í síðasta mánuði og rúmar
2.000 gesti, inni og úti. Grunnurinn tvær stórar, rauð-
ar timburskemmur sem höfðu bæði lent í vatni og eldi
áður en þær fengu þetta nýja hlutverk. Þarna var þétt
setið á miðvikudagskvöldi en þau kvöld kallast „lilla
lördag“ í Svíþjóð og þá eru veitingastaðir opnir leng-
ur en aðra virka daga.
Í framhaldi af lilla lördag í næstu viku verður árleg
tónlistarhátíð í Arvika. Á slíkum hátíðum hafa oft
troðið upp þekktir alþjóðlegir tónlistarmenn og við-
búið er að svo verði einnig nú. Um það má fræðast á
http://www.arvikafestivalen.se.
Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
MIÐSUMAR Í SVÍÞJÓÐ
S káli gallerísins Serpent-ine í London sem settur er upp árlega verður opn-
aður í dag. Hinn þekkti franski
arkitekt Jean Nouvel var fenginn
til að hanna skálann í ár en þetta
er hans fyrsta fullgerða bygging í
Bretlandi.
Serpentine-skálinn hefur í gegn-
um tíðina orðið alþjóðlegur vett-
vangur fyrir tilraunir á sviði arki-
tektúrs. Hönnun Nouvels spilar inn
á andstæður með léttum efnivið og
áhrifamikilli málmuppbyggingu.
Skálinn er í líflegum rauðum lit
þar sem andstæðurnar koma skýrt
fram í grænum garðinum við Serp-
entine-galleríið þar sem hann er
staðsettur. Skálinn verður hafður
opinn til 17. október. - mmf
Andstæður í skála Serpentine
Tilraunstofa Spilað er inn á andstæður í hönnun skála gallerísins Serpentine í ár.
NORDICPHOTOS/AFP
M ér bauðst þessi vinna með stuttum fyrir-vara þegar ég var að vinna á veitingastað heima sem þjónn. Ég var búinn að fá mig
lausan þaðan svo ég greip bara tækifærið og sé ekki
eftir því. Þetta er alveg frábært,“ segir Jón Eggert
Víðisson þar sem hann situr í 30 stiga hita í villu-
hverfinu í Cannes en síðastliðið ár hefur hann rekið
þar hótelið Kimi sem er í eigu Íslendinganna Stein-
unnar Þorvaldsdóttur og Hilmars Hilmarssonar.
Jón talaði enga frönsku þegar hann kom út og því
gengu öll samskipti við heimamenn treglega til að
byrja með. Hann segir lagni þurfa á Frakkana.
„Fyrsta hálfa árið skildi mig ekki nokkur maður hér
svo það var talsverð vinna að koma þessu í gang. Eftir að
ég fór að tala betur málið og lærði líka inn á Frakkana þá
gekk þetta betur. Frakkar eru nefnilega mjög fínir þegar
maður kynnist þeim, það þarf bara smá lagni á þá.“
Cannes er vinsæll ferðamannastaður og þúsund-
ir gesta heimsækja borgina á hverju ári. Þar fer að
vora í lok febrúar en aðalferðatímabilið hefst í maí
og stendur fram í september. Jón Eggert segir þó
eitthvað um að vera allt árið og ekki síðra að heim-
sækja Cannes yfir vetrartímann.
DRAUMALÍF Í SÓLINNI Í CANNES
Jón Eggert Víðisson greip tækifærið þegar honum bauðst að reka lítið íbúðahótel í Cannes í
Frakklandi. Fyrstu mánuðina skildi hann ekki nokkur maður en Jón Eggert segir talsverða lagni
þurfi á Frakkana. Nú getur hann ekki hugsað sér að fl ytja heim.
Hefur fest rætur
Jón Eggert Víðisson
talaði ekki stakt
orð í frönsku
þegar hann fór til
Cannes til að reka
þar hótel. MYND/ÚR
EINKASAFNI
Gamla höfnin í Cannes Borgin er vinsæll ferðamannastaður yfir sumartímann en Jón Víðir segir eitthvað um að vera allt árið. NORDICPHOTOS/GETTY
„Við erum vel staðsett ofarlega í villuhverfinu í
einungis 15 mínútna göngufjarlægð frá miðbæn-
um. Hótelið er í gamalli villu með 16 litlum íbúðum
með eldhúskrók, baði og rúmi og svo er fínn garður
í kring. Hér eru alltaf einhverjir viðburðir og stærst
er auðvitað kvikmyndahátíðin í maí. Ég hefði ekki
trúað því hvað það er mikið um að vera í kringum
hana,“ segir Jón Eggert. Spurður hvort einhverj-
ar kvikmyndastjörnur hafi gist á Kimi segir hann
aðstoðarfólk stjarnanna frekar gista hjá þeim.
„Við fáum oft einkaflugmenn stjarnanna og hér
hafa líka gist leikarar sem eru frægir í sínum heima-
löndum en við þekkjum ekki neitt. Íslendingar hafa
ekki verið stór hluti gesta hjá okkur því það er ekki
flogið beint. En það væri nú gaman ef þeim fjölg-
aði.“
Jón Eggert kann vel við sig í sólinni í Cannes og er
farinn að festa rætur ytra. „Það er alltaf gaman að
læra eitthvað nýtt og kynnast annarri menningu. Ég
ætlaði bara að vera hér í eitt ár en nú dettur mér ekki
til hugar að koma heim. Þetta er algjört draumalíf.“
Hótelið er haft opið allt árið. Nánar á www.kimi.com.
- rat
flugfelag.is
Netið
Þú færð alltaf
hagstæðasta verðið
á www.flugfelag.is
2 FERÐALÖG