Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 30
4 FERÐALÖG Vel er hægt að versla í München þó taka skuli fram að hún þykir heldur dýr borg. Þó má finna bæði ódýrar verslanir á borð við H&M og dýra merkjavöru á aðalverslun- argötunum. Í borginni er vitaskuld einn- ig að finna fjölda veitingastaða og skemmtistaða auk þess sem München er fræg fyrir listasöfn sín sem hafa að geyma bæði gömlu meistarana og nútímalistaverk. München var stofnuð árið 1158 og því má segja að sagan sé við hvert fótmál. Byggingar borgarinn- ar taka mið af ríkjandi leiðtogum hvers tíma. Því er München himna- ríki fyrir áhugamenn um arkitekt- úr sem geta skoðað byggingar í ólíkum stílum, allt frá gotneskum til barrokks, rókókó og Jugend. Stór hluti borgarinnar eyðilagð- ist reyndar í síðari heimsstyrjöld- inni en Bæjarar ákváðu að byggja upp gömlu húsin í stað þess að reisa nýstárlega glerkumbalda. München á sér líka dökkar hlið- ar. Hitler útnefndi borgina höfuð- borg hreyfingar sinnar og byggði þar nokkur hús undir skrifstofur sínar sem enn standa. Þá má vel ímynda sér hvernig hann hélt her- sýningar sínar á breiðum götum borgarinnar. Þó borgin hafi mikið aðdráttarafl gerir staðsetning hennar hana enn álitlegri. Segja má að hún sé gátt að mörgum löndum Evrópu enda stutt að aka til Austurríkis, Ítalíu, Sviss og jafnvel Tékklands. - sg FRAMHALD AF FORSÍÐU Iðandi mannlíf Marienplatz er miðpunktur München. HÆSTI TINDUR ÞÝSKALANDS Zugspitze er hæsti tindur Þýskalands, 2.962 metrar yfir sjávarmáli. Þaðan er óborganlegt útsýni yfir Þýskaland, Austurríki og Ítalíu. Þar er einnig prýðilegasta skíðasvæði með níu skíðalyftum. Á tindinn má komast með því að taka lest eða kláf sem liggur frá toppi fjallsins og að rótum þess, en þar sem Zugspitze liggur að landamærum Aust- urríkis er lítið mál að taka kláfinn upp Þýskalandsmegin og skella sér svo í heimsókn í austurríska bæinn Ehrwald hinu megin við fjallið. Fjallið hentar ekki aðeins skíðamönnum, það er einnig vinsælt hjá göngumönnum og liggja nokkrar miserfiðar leiðir upp fjallið. Næsti bær er Garmisch-Partenkirchen þar sem búa um 26 þúsund manns. Bærinn er sérlega heillandi, öll húsin eru í bærískum stíl og mörg skreytt fallega máluðum myndum. Fjöldi gistihúsa er í bænum sem sinna bæði skíðafólki og öðrum ferðamönnum. Mörg önnur skíðasvæði eru í fjallgarðinum og hefur bærinn hlotið nokkra frægð fyrir þau. Vetrarólympíuleikarnir voru haldnir þar árið 1936 og á næsta ári verður þar haldið heimsmeistaramótið í alpagreinum. Bjórinn vinsæll Um 100 þúsund manns geta fengið sæti í 14 stórum og 15 minni bjórtjöldum á októberfest. Aðdráttarafl Gosbrunnar og tjarnir eru víða. Einstakur arkitektúr München er himnaríki fyrr áhugamenn um arkitektúr, en þar er meðal annars að finna ýmsar gamlar kirkjur sem eru fallega innréttaðar. Fegurð Víða má finna falleg útivistarsvæði. ÍS L E N S K A S IA .I S S F G 4 20 40 0 4. 20 08 E n d um rúntinn he ima !
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.