Fréttablaðið - 10.07.2010, Page 31
„Við ætlum að skella okkur í úti-
legu, tjalda þarna í miðri náttúru-
fegurðinni,“ segir Guðrún Norð-
fjörð, nýráðin framkvæmdastjóri
Listahátíðar í Reykjavík, sem
ætlar í dag að bregða sér á Snæ-
fellsnesið ásamt fjölskyldunni,
eiginmanninum, Jóni Páli Leifs-
syni, og börnum þeirra tveimur,
Hildi, fjögurra ára, og Kára, eins
og hálfs árs.
Að sögn Guðrúnar er fjölskyld-
an mikið gefin fyrir útivist, úti-
legur og gönguferðir og nýta helg-
ar, einkum á sumrin, til að bregða
sér í styttri eða lengri ferðir út
fyrir bæinn. „Við höfum hins
vegar ekki farið neitt það sem
af er árs. Þess vegna var löngu
orðið tímabært að bregða undir
sig betri fætinum og skella sér í
sveitina,“ útskýrir hún brosandi
og bætir við að Snæfellsnes hafi
orðið fyrir valinu vegna náttúru-
fegurðar.
„Staðurinn er í miklu uppá-
haldi hjá okkur þar sem umhverf-
ið þarna er svo fjölbreytt og fal-
legt, jökullinn, sandurinn, fjaran
og fleira. Þess vegna reynum við
að fara þangað eins oft og við
getum og höfum þá með okkur
gamla góða tjaldið en pöntum
okkur bændagistingu ef spáð er
rigningu. Það er bara svo gott
að skipta svona um umhverfi,“
segir Guðrún en viðurkennir að
hafa ekki fengið áhuga á útivist
og ferðalögum fyrr en hún komst
til vits og ára, eins og hún orðar
það.
Fleiri ferðalög innanlands eru
svo á döfinni hjá fjölskyldunni í
sumar. „Við ætlum í hálendisferð,
Gæsavatnsleiðina, með góðum
hópi fólks sem allt á krakka og
svo í minnst eina fullorðinsferð í
Fjörður fyrir norðan, frá Greni-
vík og inn í Flayteyjardal, sem er
mjög fallegt svæði með einstöku
útsýni.“
Utan ferðalaga eru menning og
listir eitt helsta áhugamál Guðrún-
ar, sem hlakkar til að takast á við
nýtt hlutverk, stöðu framkvæmda-
stjóra Listahátíðar í Reykjavík, í
haust. „Þetta verður veit ég mjög
spennandi og skemmtilegt, enda
hef ég unnið sem verkefnisstjóri
hjá Listahátíð og verið aðstoðar-
maður framkvæmdastjóra síðustu
fimm ár. Raunverulega er ég bara
að færa mig til,“ segir Guðrún,
sem ætlar þangað til að njóta sum-
arsins í faðmi fjölskyldunnar.
roald@frettabladid.is
Stefnan tekin út á land
Guðrún Norðfjörð nýtir oft helgar til að fara í útilegur ásamt fjölskyldunni. Að þessu sinni er stefnan sett
á Snæfellsnesið sem er í miklu uppáhaldi hjá Guðrúnu og þá meðal annars vegna náttúrufegurðar.
Guðrún Norðfjörð ásamt börnum sínum, Kára, eins og hálfs árs, og Hildi, fjögurra ára. Fjölskyldan ætlar í tjaldútilegu um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TJALDIÐ er nokkuð sem nú ætti að taka fram ef ekki er
ennþá búið að gera það því tilvalið er að leggja land undir
fót í dag og eyða nóttinni einhvers staðar úti í náttúrunni.
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
ÚTSALAN
Sængurfatnaðurinn er ofinn úr gæða bómullardamask.
Yfir 30 tegundir af sængurfatnaði til brúðargjafa.
Íslensk hönnun á góðu verði.