Fréttablaðið - 10.07.2010, Side 32
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
stendur fyrir skemmtilegri
dagskrá um helgina.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur stend-
ur nú fyrir þjóðdansa- og þjóðlaga-
mótinu Ísleik 2010 í samráði við nor-
rænu danssamtökin Nordlek. Mótið
hófst í gær og stendur til 16. júlí.
Margt verður að gerast um helg-
ina og í dag verður til dæmis dans-
að í miðbæ Reykjavíkur frá klukk-
an 13.30 til 16.00 og frá 17.00 til
18.30 verður svo haldin opnunar-
hátíð í Háskólabíói.
Á morgun hefst dagskráin á nor-
rænni guðsþjónustu í Neskirkju
klukkan 11.00, frá 14.00 til 16.00
verður danssýning í Árbæjarsafni
og frá 17.00 til 18.30 verða þjóð-
lagatónleikar í Neskirkju.
Enginn aðgangseyrir er á uppá-
komurnar. - eö
Dansað í miðbænum
Þjóðdansafélagið ætlar að sýna dans í miðbænum í dag.
Í Grímsnesinu verður ýmislegt
um að vera í dag og á morgun.
Brú til Borgar, hátíð hollvina
Grímsness, verður haldin nú um
helgina.
Dagskráin í dag er tileink-
uð íslenskri menningu og hefst
klukkan 13.00 á Gömlu Borg með
setningu ljósmyndasýningar-
innar Göngur og réttir. Þá verða
sungin íslensk þjóðlög, boðið upp
á íslenska glímu, íslenski þjóð-
búningurinn kynntur, flutt kvæði
og rímur, sagðar sögur og gömlu
dansarnir dansaðir. Allir sem eiga
þjóðbúning eru hvattir til þess að
klæðast honum í tilefni dagsins.
Klukkan 20.00 verður svo slegið
upp sveitaballi þar sem Hjördís
Geirsdóttir leikur fyrir dansi.
Á morgun verður haldið málþing
um Ólaf Jóhann Sigurðsson sem
hefst klukkan 11.00 á Torfastöðum,
klukkan 12.00 verður boðið upp á
kjötsúpu í Þrastarlundi og klukkan
13.00 hefst sýning á ritverkum og
fleiru í félagsheimilinu Borg. - eö
Hátíð hollvina
Grímsness á Borg
Dagskráin hefst á Gömlu Borg með ljósmyndasýningunni Göngur og réttir.
SÆLUHELGI verður haldin á Suðureyri nú um helg-
ina. Meðal þess sem verður boðið upp á er Mansakeppni,
söngvarakeppni, Skothólsganga, kassabílarallí, krítarkeppni,
kossakeppni, ljósmyndakeppni og barnaball.
Í tilefni íslenska safnadagsins býður Listasafn Íslands
leiðsögn fyrir alla fjölskylduna um fastasýningu safnsins,
Áfanga, í fylgd Halldórs Björns Runólfssonar safnstjóra
klukkan 14.00. Fjöldi verka eftir íslenska myndlistarmenn
frá upphafi 20. aldar fram til samtímans er á sýningunni.
Einstakt tækifæri til að fræðast um perlur úr mynd-
listarsögu þjóðarinnar, tilurð þeirra og samhengi út frá
alþjóðlegu samhengi auk þess sem hægt er að ræða
við safnstjórann og fá svör við spurningum.
Safnbúðin og veitingahúsið Marengs verða opin til
klukkan 17.00. - eö
Leiðsögn um listasafnið
SAFNADAGURINN ER Á MORGUN, SUNNUDAGINN 11. JÚLÍ.
Vopnaskak stendur nú yfir á
Vopnafirði.
Fjölskyldudagur Vopnaskaks á
Vopnafirði er í dag og ýmislegt
áhugavert í boði. Klukkan 10.30
er kapphlaup og ratleikur og seinni
partinn verður brugðið á leik með
yngri kynslóðinni. Markaður með
músíköntum verður haldinn í
miðbæ Vopnafjarðar og er öll fjöl-
skyldan hvött til að mæta. Klukk-
an 19.00 verður rammþjóðleg súpu-
stund og í framhaldi af henni er
lopapeysuskemmtun með líflegri
tónlist fram eftir nóttu.
Á morgun verður svo safnadagur
í Burstafellsbænum og guðsþjón-
usta í garðinum klukkan 14.00.
- eö
Skemmtun
fyrir alla
Lopapeysuskemmtun verður haldin í
kvöld og stendur fram eftir nóttu.
Laugavegi 63 • s: 551 4422
SUMARÚTSALA
ALLT AÐ
50% AFSLÁTTUR
6 dagar í golfi, flug,
hótel, rúta
Verð 98.900 kr.
Brottför til Riga í Lettlandi:
16.-24. ágúst
Einn besti golfvöllur
í N-Evrópu
í beinu flugi
Forn borg menningar og lista við Eistrasaltið.
Gamli og nýi tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka.
Flug og hótel, rúta, fararstjóri
64.900 kr. per mann.
Flug með skatti 32.990. kr.
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is
sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is
sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is
sími 512 5447
Þriðjudaga