Fréttablaðið - 10.07.2010, Page 33
LAUGARDAGUR 10. júlí 2010 3
„Með skærin sem pensil“ er heiti
farandsýningar sem verður opnuð
í Norræna húsinu í dag klukkan 16.
Á sýningunni gefur að líta klippi-
list eftir dansk-norsku listakon-
una Karen Bit Vejle en hún er einn
fremsti klippilistamaður Norður-
landanna.
Verk Vejle eru óvanaleg en
hún klippir fíngerð munstur af
nákvæmni út í stakar pappírsark-
ir. Verkin eru stór en á sýning-
unni má meðal annars sjá 5 metra
langt verk sem tók Vejle 200 tíma
að klippa. „Ég fullmóta myndina
fyrst í huga mér og ákveð hvað ég
þarf að klippa burt. Það getur tekið
mig tvær vikur áður en myndin er
tilbúin fyrir skærin en ég teikna
myndina ekki upp heldur dreg ein-
ungis nokkrar stuðningslínur,“
segir Vejle en hún er sjálfmenntuð
í list sinni.
Vejle heillaðist af klippilistinni
þegar hún sem unglingur sá mann
klippa út fígúrur og munstur í
pappír, í Tívolíinu í Kaupmanna-
höfn. Hún hefur á 35 ára ferli þróað
sína eigin sérstöku tækni og stíl og
er ein fárra á Norðurlöndum sem
vinna klippiverk af þessu tagi. En
hvaðan fær hún innblásturinn?
„Ég hlusta alltaf á tónlist meðan
ég klippi og fæ innblástur úr henni.
Fyrir þessa sýningu vann ég sér-
stakt verk innblásið af Íslandi og
hlustaði þá mikið á Björk. Ég hef
einnig lesið mikið um Ísland og veit
að Íslendingar halda arfi sínum og
fornri hefð á lofti. Þeir eru einnig
alltaf fyrstir af Norðurlöndunum
til að tileinka sér það sem er „kúl“
en á myndinni er íslenski hestur-
inn og hipp-hoppari að dansa ofan
á honum,“ útskýrir Vejle og segist
jafnframt tengjast íslenska hest-
inum sérstaklega. „Móðir mín var
fyrst til að flytja inn íslenska hesta
til Danmerkur og ég ólst upp með
16 íslenskum hestum.“
Vejle notar yfirleitt hvítar eða
svartar arkir í verk sín. Hún brýt-
ur pappírinn saman einu sinni til
tvisvar til að klippa út samhverft
munstur en óregluleg mótíf klipp-
ir hún í einfalda örkina. Um helg-
ina verður Karen með leiðsögn um
sýninguna og útskýrir verk sín en
á sýningunni er einnig kvikmynd
sem sýnir hvernig Vejle vinnur.
Þegar gengið er gegnum sýning-
una hljómar einnig hljóðverk úr
samspili saxófóns og skæra.
„Hér verður líka pappír og skæri
sem gestirnir, bæði ungir og gaml-
ir, geta gripið í og prófað að klippa
út munstur og ég skal leiðbeina
þeim sem vilja,“ segir Vejle sem
flýgur utan aftur á mánudaginn.
heida@frettabladid.is
Klippir út ævintýraheim
Dansk-norska listakonan Karen Bit Vejle opnar myndlistarsýningu í dag í Norræna húsinu þar sem hún
býður gestum inn í ævintýraheim klippimynda. Gestir geta einnig gripið í skærin með Vejle.
Klippimyndir Vejle eru unnar af nákvæmni en listakonan segist innblásin af tónlist
meðan hún vinnur. MYND/NORRÆNA HÚSIÐ
Vejle fullmótar myndina í huganum áður en hún hefst handa með skærin. Hver
mynd getur tekið hundruð vinnustunda í vinnslu. MYND/NORRÆNA HÚSIÐ
Karen Bit Vejle opnar myndlistasýningu í Norræna húsinu í dag en hún hefur þróað
sinn eigin sérstaka stíl í klippimyndalist.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Opið frá kl. 11 - 18 í Smáralind
Enn meiri verðl
ækkun
á útsöluvörum
Nýjar vörur á frábæru
verði