Fréttablaðið - 10.07.2010, Side 38

Fréttablaðið - 10.07.2010, Side 38
 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR4 Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Landspítala Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskóla- sjúkrahús. Á spítalanum er veitt sérhæfð sjúkra- húsþjónusta, m.a. á göngu- og dagdeildum, fyrir alla landsmenn og almenn sjúkrahúsþjónusta fyrir íbúa heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins. Nánar er kveðið á um hlutverk hans í lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu. Á Landspítala starfa á fi mmta þúsund starfsmenn og er spítalinn stærsti vinnustaður á Íslandi. Forstjóri ber ábyrgð á að Landspítali starfi í sam- ræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem heilbrigðisráðherra setur. Forstjóri ber ábyrgð á þeirri þjónustu sem spítalinn veitir og á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Forstjóri ræður aðra starfsmenn spítalans. Forstjóri skal hafa háskólamenntun sem nýtist honum í starfi og búa yfi r reynslu af rekstri og stjórnun. Gerð er krafa um mikla samskipta- og leiðtoga hæfi leika. Hæfni umsækjenda verður metin af þriggja manna nefnd sem skipuð er af heilbrigðisráðherra skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðis- þjónustu. Skipað er í stöðuna til fi mm ára í senn frá 1. október 2010. Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um embættið. Launakjör eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs. Upplýsingar um starfi ð veita Berglind Ásgeirs- dóttir, ráðuneytisstjóri (berglind.asgeirs dottir@ hbr.stjr.is) og Sigurjón Ingi Haraldsson, skrifstofu stjóri (sigurjon.ingi.haraldsson@hbr.stjr. is). Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil sendist heilbrigðisráðuneytinu, Vegmúla 3, 150 Reykjavík eða á postur@hbr.stjr.is eigi síðar en 30. júlí 2010. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir. Matreiðslumaður/kona óskast. Þríund hf. vill bæta við metnaðarfullum matsveini. Þríund hf. rekur tvö veitingahús á besta stað í Reykjavík. Ef að þú uppfyllir eftirfarandi skilyrði þá gætir þú verið rétti maðurinn. • Hugmyndaríkur og skapandi. • Góður stjórnandi sem á auðvelt með að vinna með fólki. • Reglusamur, stundvís og skipulagður. Góð laun í boði fyrir réttan aðila. Fullum trúnaði heitið. Áhugasamir sendið umsókn á netfang: thriund@simnet.is eða í síma 863-8900. AÐSTOÐ Á TANNLÆKNASTOFU Aðstoð óskast á tannlæknastofu í Reykjavík. Um er að ræða 70% starf og þarf viðkomandi að getað hafi ð störf í byrjun september.Vinsamlegast sendið umsóknir á box@frett.is merktar “Tanntæknir/Aðstoð 1007”                                                                              Þjónustufulltrúar Tals eru samheldinn hópur sem sinnir viðskiptavinum af alúð í samræmi við þjónustu- og gæðastefnu Tals. Starfið felur í sér símsvörun, sölu og tæknilega aðstoð. Talsmenn eru þjónustulundaðir og jákvæðir. Þeir sýna frumkvæði og metnað og hugsa í lausnum. Þeir hafa áhuga á tækni og nýjungum; eru snyrtilegir og stundvísir. TALSMENN ÓSKAST Æskilegt er að umsækjendur búi að almennri tölvufærni og séu með stúdentspróf eða sambæri- lega menntun. Reynsla af störfum í fjarskiptum er kostur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Tal leitar að þjónustufulltrúum til starfa í þjónustuver og verslun. Sendu umsókn þína um starf þjónustufulltrúa á atvinna@tal.is Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí og allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Ný og ein glæsilegasta hársnyrtistofa landsins hefur opnað á Laugavegi 94. Óskum eftir fagfólki í stólaleigu. Frábært umhverfi . Áhugasamir sendi umsókn á atvinna@harvorur.is. Frekari upplýsingar í síma 866-3381 Hárvörur ehf. Fósturforeldrar óskast Barnaverndarstofa óskar eftir fósturforeldrum fyrir 11 ára gamalt barn sem á við hegðunarvanda að glíma sem tengist einhverfu. Sérstaklega er óskað eftir fólki sem hefur menntun og/eða reynslu af því að vinna með börn með slíkan vanda t.d. þroskaþjálfa. Um er að ræða s.k. styrkt fóstur og er því gert ráð fyrir að verkefnið feli í sér 100 % starf. Leitað er að fólki sem hefur áhuga á velferð barna, getur sýnt hlýju, er lipurt í sam- vinnu og er tilbúið til að vinna með öðru fagfólki. Áætlað er að fóstur hefjist sem allra fyrst eða eftir samkomulagi. Vinsamlegast sækið um fyrir 25. júlí, 2010. Nánari upplýsingar veitir Barnaverndarstofa í síma 530 2600. BARNAVERNDARSTOFA Auglýsingasími Allt sem þú þarft…

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.