Fréttablaðið - 10.07.2010, Page 60
32 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
„Fylgið okkur að vatni“
Hún kyssti mig
bara vegna þess
að homminn
var að reyna
við mig! Ekki af
neinni annarri
ástæðu!
Það er
nú gott.
Ýmsilegt
getur
gerst.
Ýmislegt?
Líka hjá
þér?
Já! Einu
sinni kyssti
sjúklingur mig
á munninn eftir
velheppnaða
aðgerð. Hann var
bara ánægður!
Algjörlega
saklaust.
Klárlega!
Gott! En
þegar ég
finn út hver
hann er þarf
hann á fleiri
aðgerðum
að halda!
Góða nótt
elskan!
Palli, hvernig lýst
þér á nýju skyrtuna
hans pabba þíns.
Töff. 17 hittir
Dressmann.
Hvað eru þið
að gerað inni?
Það er frábært
veður úti!
Farið út og veiðið
skordýr eða
eitthvað!
Það er rétt hjá
henni. Veðrið
er gott!
Segðu
pöddunum
það.
Einu sinni var ég dómari í spurningakeppni. Ég tók starfið
alvarlega og lagði metnað minn í að vera
eins sanngjarn og nákvæmur og mér var
unnt. Þegar mér urðu á mistök tók ég þau
hugsanlega óþarflega nærri mér. Einu
sinni eftir alvarleg mistök sór ég þess eið
að þetta skyldi ég aldrei gera aftur.
SAMT þáði ég boð um að gera þetta
aftur þegar mér bauðst það. En þá setti
ég skilyrði, því ég hafði gert mér ljóst
hvað olli flestum mistökum. Keppendur
svöruðu í flýti, hver ofan í annan og
töluðu óskýrt. Svörin bárust eyrum
mínum beint frá keppendum en ekki úr
hljóðnemunum á borðinu fyrir framan
þá, sem tóku upp hljóðið sem sent var út.
Áhorfendur heima í stofu heyrðu m.ö.o.
betur hvað keppendur sögðu en ég, sem
átti að úrskurða hvort svörin væru rétt
eða röng. Skilyrðið sem ég setti
var að aðstoðardómari sæti í
myndstjórninni og benti mér
á hugsanleg mistök. Alloft
breytti aðstoðardómarinn
stigagjöf minni. Sömuleiðis
áskildi ég mér rétt til að
skoða upptökur af svörum
ef ég var í vafa um hvort
þau væru rétt eða röng. Það
kom fyrir að ég nýtti mér
þessa tækni og leiðrétti í
kjölfarið fyrri úrskurð. Enginn kvartaði
yfir þessu. Engum þótti ég vera að breyta
reglunum. Jafnvel liðin sem misstu stig við
þetta virtu sanngirnissjónarmiðið.
ÞESS vegna er það mér hulin ráðgáta
hvers vegna knattspyrnuyfirvöld þrjóskast
við að taka tæknina í þjónustu sína, jafnvel
þegar sjálfur heimsmeistaratitillinn
er í húfi. Staðreyndin er sú að HM í
knattspyrnu 2010 hefur liðið ótrúlega
fyrir yfirsjónir dómara, jafnvel eyðilagt
ánægjuna af keppninni fyrir fjölda
manna. Í útsláttarkeppninni fullyrði ég
að afglöp dómara hafi oftar en ekki ráðið
úrslitum, ef ekki um lokatölur þá a.m.k.
um framvindu og þróun leikjanna. Það er
með öllu óviðunandi. Milljónir áhorfenda
um allan heim sjá betur en þeir, sem dæma
eiga leikinn, hvað raunverulega á sér stað
á vellinum.
ÖLL rök gegn því að styðjast við upptökur
flokkast undir það sem á góðri íslensku
heitir kjaftæði. Það væri ekki verið að
breyta neinum reglum, heldur einmitt að
gera allt sem hægt er til að sjá til þess
að réttum reglum sé fylgt. Það væri ekki
verið að breyta því hvernig íþróttin er
leikin, það væri ekki einu sinni verið að
breyta því hvernig hún er dæmd. Það væri
aðeins verið að tryggja unnendum hinnar
göfugu íþróttar sanngjörn úrslit.
Dómaramistök
www.frettabladid.is | 512 5000
*Kjarnadreifingarsvæði Fréttablaðsins er höfuðborgarsvæðið, Akureyri, Stokkseyri, Eyrarbakki, Hveragerði,
Selfoss, Borgarnes, Akranes, Reykjanesbær, Þorlákshöfn, Keilir, Garður, Sandgerði, Grindavík og Vogar.
GÓÐAR
FRÉTTIR
FYRIR ALLA
Enn betra aðgengi að Fréttablaðinu
Vesturland
Breytingar voru gerðar á frídreifingu og lausasölu Fréttablaðsins
1. júní. Blaðinu er áfram dreift ókeypis í lúgur og Fréttablaðskassa
kjarnadreifingarsvæði* okkar. Nýbreytnin felst í að frídreifingu
í verslunum og á bensínstöðvum á kjarnadreifingarsvæði verður
hætt, en blaðið í staðinn selt í lausasölu um land allt samhliða
fyrrgreindri frídreifingu heim eða í hverfi. Lausasölustöðum verður
fjölgað til muna auk þess sem fjöldi Fréttablaðskassa í íbúðahverfum
verður nærri þrefaldaður, úr 60 í um 170. Nánari upplýsingar um
dreifingu Fréttablaðsins má nálgast á visir.is/dreifing.
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt
á visir.is eða fengið sendan daglegan
tölvupóst með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
Olís, Kjalarnesi
Krónan, Akranesi
Olís, Akranesi
Bónus, Akranesi
N1 verslun, Akranesi
Olís, Borgarnesi
Bónus, Borgarnesi
Verslunin Baulan, Borgarfirði
Hönnubúð, Reykholti, Borgarfirði
Olís, Stykkishólmi
Bónus, Stykkishólmi
Hrannarbúðin, Grundarfirði
N1, Ólafsvík
Olís, Ólafsvík
Hraðbúð N1, Hellissandi
Shell/Vélsmiðja Árna Jóns, Hellissandi
N1 þjónustustöð, Ísafirði
Hamraborg, Ísafirði
N1 verslun, Ísafirði
Bónus, Ísafirði
Smáalind, Patreksfirði
Fjöldi lausasölustaða á Vesturlandi