Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 10.07.2010, Blaðsíða 67
LAUGARDAGUR 10. júlí 2010 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Laugardagur 10. júlí 2010 ➜ Tónleikar 14.00 Kl. 15.00 verður ný messa, Missa Pacis, eftir Sigurð Sævarsson frumflutt á sumartónleikaröð í Skálholti. Það er einnig sönghópurinn Hljóm- eyki sem mun flytja verkið auk þeirra Sigurðar Halldórssonar sellóleikara, Steingríms Þórhallssonar orgelleikara og Franks Aarnink slagverksleikara. Stjórn- andi er Magnús Ragnarsson. Sama dag kl. 17.00 mun Sigurður Halldórsson sellóleikari flytja efnisskrá sem nefnist „Þrjú misstillt selló”. Þar leikur hann á þrjú mismunandi hljóðfæri - í þremur mismunandi stillingum. 15.00 Tríó píanóleikararans Sunnu Gunnlaugsdóttur mun leika á sjöttu tónleikum sumartónleikaraðar veitinga- hússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu í dag. Flutt verða alíslensk lög. Tónleik- arnir hefjast kl. 15.00 og standa til 17.00 Leikið er utandyra á Jómfrúartorginu og er aðgangur ókeypis. ➜ Opnanir 13.00 Afmælissýning verður opnuð í Ólafsdal í Gilsfirði, en fyrir 130 árum var fyrsti landbúnaðarháskóli á Íslandi stofnaður í Ólafsdal. Sýningin verður opnuð kl. 13.00 í dag, laugardag. 18.00 Arnfinnur Amazeen opnar sýn- ingu í Kling & Bang, að Hverfisgötu 42, í dag, en sýninguna kallar listamaðurinn „Myrkrið borið inn (á ný)”. Sýningin verður opnuð kl. 18.00. Aðgangseyrir er enginn og allir velkomnir. Listverkefni danska sýningarstjórans Jacob Fabricius; Old News, verður opið fyrir gesti og gangandi í dag kl. 17.00 á Nýlistasafninu. Nánari upplýsingar má finna á www.oldnews.org. ➜ Hátíðir 13.00 Hollvinir Grímsness halda árlega sumarhátíð nú um helgina sem ber nafnið Brú til Borgar. Dagskrá hefst kl. 13.00 í dag, laugardag, í Gömlu Borg. Upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má finna á www.hollvinir.blog.is. ➜ Opið Hús 15.00 Frá kl. 15-18 verður dagskrá um Drangajökul á vegum Snjáfjallaseturs í Dalbæ á Snæfjallaströnd. Opnuð verður sýning um sérstöðu Drangajökuls og breytingar á honum í gegnum tíðina. Nánari upplýsingar má sjá á vef Sjá- fjallaseturs, www.snjafjallasetur.is. ➜ Útivist Skátafélagið Landnemar verða með skemmtilega dagskrá í Viðey sem ætluð er allri fjölskyldunni. Frumbyggjaþorp verður reist og gefst gestum Viðeyjar tækifæri til að læra að bjarga sér að hætti frumbyggja. Þátttaka er gestum Viðeyjar að kostnaðarlausu. Sunnudagur 11. júlí 2010 ➜ Tónleikar 17.00 Sunnudaginn 11. kl. 17:00 verð- ur Guðsþjónusta í Skálholti þar sem Egill Hallgrímsson þjónar. Þar mun Hljómeyki frumflytja verk eftir Oliver Kentish til minningar um Helgu Ing- ólfsdóttur og nýtt verk eftir Steingrím Þórhallsson. Steingrímur mun einnig frumflytja nýtt orgelverk eftir Atla Heimi Sveinsson. Auk þess verða messuþættir úr Missa Pacis eftir Sigurð Sævarsson fluttir. ➜ Opið Hús 13.00 Íslenski safnadagurinn verður haldinn hátíðlegur í Þjóðmenningar- húsinu í dag, sunnudag og býður Þjóð- menningarhúsið barnafjölskyldur sér- staklega velkomnar þennan dag. Enginn aðgangseyrir verður að sýningunni. Opið frá kl. 11-17. 13.30 Í Laufási verður sumarstarfsdag- ur í dag, sunnudag, frá kl. 13.30-16.00. Þar verður hægt að upplifa lífið eins og það var á 19.öld í burstabæ í Gamla bænum Laufási við Eyjaförð. Gestir eru hvattir til að klæða sig upp í íslenska búninginn, en uppáklæddir gestir fá frítt inn þennan dag. 16.00 Frír aðgangur verður að Gljúfra- steini í dag í tilefni íslenska safnadags- ins. Stofutónleikar hefjast kl. 16.00. María Arnardóttir og Matthías Sigurðs- son leika á píanó og klarinettu. Nánari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is. ➜ Leiðsögn 13.00 Íslenski safnadagurinn verður haldinn hátíðlegur í Hafnarborg, Hafn- arfirði. Klukkan 13.00 verður leiðsögn um sýninguna Formlegt aðhald þar sem sýnd eru verk listmálarans Eiríks Smith frá 1951-1957 í umsjón Ólafar K. Sigurð- ardóttur sýningarstjóra. ➜ Útivist 11.30 Í Viðey verður flugdrekasmiðja í dag, sunnudag. Flugdrekasmíðin hefst kl. 11.30 og kl. 14.00 verða allir flugdrekar settir í loft á sama tíma. Skorað er á alla sem eiga flugdreka að koma til Viðeyjar og taka þátt, en reynt verður að setja Íslandsmet í fjölda flugdreka á lofti í einu. Þátttaka er gestum Viðeyjar að kostnað- arlausu. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. Gamanleikarinn Kelsey Grammer stendur nú í skilnaði við eiginkonu sína, Camille Grammer, en þau eiga þrettán ára samband að baki. Samkvæmt heimildum eiga hjónin að hafa rifist oft og gjarnan síðustu mánuði bæði vegna fjárhagsörðug- leika og vegna meints framhjáhalds Camille. „Camille hitti tvítugan þjón þegar hún var í fríi á Havaí og varð mjög hrifin af honum. Hún bauð honum meira að segja að heimsækja sig til Los Angeles á meðan Kelsey var í New York að leika. Kelsey frétti af framhjáhaldinu og varð miður sín,“ var haft eftir ónefndum heimildar- manni sem segir Camille jafnframt hafa eytt um efni fram. „Camille er hrifin af rándýrum merkjavör- um og Kelsey hefur margoft beðið hana um að eyða minna, en hún hlustar ekki. Kelsey er ekki far- inn á hausinn en hann er ekki leng- ur ríkur og ég held að Camille hafi ekki verið hrifin af því að þurfa að lifa samkvæmt efnum.“ Hjónin eiga saman tvö börn, hina átta ára gömlu Mason og fimm ára gamlan son, Jude. Konan hélt framhjá SKILIN Kelsey Grammer og Camille Grammer standa nú í skilnaði. Þau eiga saman tvö börn. NORDICPHOTOS/GETTY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.