Fréttablaðið - 10.07.2010, Page 69
LAUGARDAGUR 10. júlí 2010 41
Fjöldi manns var mættur við Fríkirkjuna í Reykjavík í
gærmorgun til að leika statistahlutverk í kvikmyndinni
Gauragangi. Gott veður og mikil stemning var á tökustað
en um 400 manns mættu til að taka þátt í kvikmyndinni.
Skátarnir stóðu vörð og íslenska fánanum var flaggað.
Senan sem verið var að taka upp var upphafstriði myndar-
innar og gerist í jarðarför.
Gauragangur í
MIÐBÆNUM
Tóm kista,
prestur og afar
litríkt málverk.
Fólk streymdi að Fríkirkjunni til að vera í statistahlutverki í upphafssenu
myndarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Skátarnir stóðu
vörð og voru
greinilega í
hlutverki.
Leikkonan
Megan Fox
giftist kærasta
sínum, leikar-
anum Brian
Austin Green,
við látlausa
athöfn á Hawaii
fyrir stuttu. Nú
vilja fjölmiðlar
meina að parið
hafi ákveðið að
ganga í hið heil-
aga því Fox eigi
von á sér. „Fólk
hefur verið að hvísla sín á milli
og Megan hefur viðurkennt að
þau hafi verið að reyna að eign-
ast barn í einhvern tíma,“ var
haft eftir vinkonu Fox. Hótelgest-
ir á Havaí segjast jafnframt hafa
séð Green strjúka varlega yfir
kvið eiginkonu sinnar. „Hann
var mjög ljúfur við hana og hann
strauk mjög varlega yfir maga
hennar. Hún ljómaði öll,“ sagði
sjónarvottur.
Ólétt Fox?
ÓLÉTT Sumir vilja
meina að Megan
Fox eigi von á
barni.
Þessir verða
greinilega í ein-
hverju hlutverki
í myndinni.
Leikarar myndar-
innar voru komnir
í sitt fínasta púss
fyrir tökur.
Tónlistarmaðurinn Elton John
ætlar að hætta að senda frá sér
smáskífur og gefa þess í stað út
hefðbundnar plötur. „Á áttunda,
níunda og tíunda áratugnum sögðu
plötufyrirtækin mér að búa til
smáskífur. Ég held að ég hafi upp-
fyllt þær óskir,“ sagði hinn 63 ára
Elton. Nýjasta plata hans, The
Union, kemur út í október. Sam-
starfsmaður hans var hinn marg-
reyndi Leon Russell, sem er 68
ára. „Ég þarf ekki að búa til popp-
plötur lengur,“ sagði Elton. „Ég
er hættur að einbeita mér að smá-
skífulistanum og ætla í staðinn
að gera plötur sem hæfa mínum
aldri.“
Ekki fleiri
smáskífur
ELTON JOHN Tónlistarmaðurinn knái
ætlar að einbeita sér að hefðbundnum
plötum á næstunni.
Rockwood Premier 2317G 12 fet. Rockwood 191XR OFF ROAD 10 fet.
Verð: 2.998.000kr Verð: 2.798.000krVerð: 2.698.000kr
Rockwood Premier 1904 10 fet.
Ríkulegur staðalbúnaður í Rockwood fellihýsum
Opnunartími:
Mán - Föst. kl: 10-18
Laug - Sun. kl: 12-16
• Galvaníseruð grind
• Evrópskar þrýstibremsur
• Upphitaðar 12 cm springdýnur
• Tjakkar með sandskeifum á öllum
hornum
• Góð fjöðrun, fjaðrir sem henta vel á
íslenskum vegum
• Útdraganleg trappa við inngang
• Breitt nefhjól (uppblásið gúmmídekk)
• Handbremsa og varadekk m/hlíf
• 50 mm kúlutengi
• 220v tengill (blár skv. reglugerð)
• Útvarp með geislaspilara,
hátalarar inni og úti
• Radial dekk / 13” álfelgur
• Vatnsh. öndunardúkur í svefnrými
• Dometic kæliskápur XL 2,5 cubic
• SMEV ryðfrí gaseldavél m/rafstarti
• 2 gaskútar
• Gasviðvörunarkerfi
• Öflug Truma combi 4 miðstöð
m/heitu vatni
• Stór loftlúga m/þriggja hraða viftu
• Skyggni (markísa)
• Skyggðir gluggar
• Flugnanet f. gluggum og hurð
• Gardínur f. gluggum og svefnrými
• 2ja feta geymsluhólf
• Stórt farangurshólf
• Voldugir öryggisarmar fyrir þak
og tjald
• 3 x 12 volta loftljós og 1 x útiljós
• 1 x færanlegt lesljós með viftu
• 110 amp rafgeymir
• Heitt og kalt vatn, tengt
• Rafmagnsvatnsdæla
• 86 lítra vatnstankur
• Klósett með hengi
Fossháls 5-7 • 110 Reykjavík • Sími 551 5600 • utilegumadurinn.is
Rockwood fellihýsi fyrir Íslenskar aðstæður
Torfæru útgáfan frá Rockwood
fyrir þá sem vilja komast lengra.
m/ útdraganlegri hlið.
• upphækkað á 15” dekkjum
• sér styrkt grind og sterkari hjólabúnaður.