Fréttablaðið - 10.07.2010, Side 70
42 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Kristján Hauksson, fyr-
irliði Fram, fékk að líta rauða
spjaldið í leiknum gegn FH á
fimmtudag.Matthías Vilhjálms-
son FH-ingur hékk þá í treyju
Kristjáns sem í kjölfarið baðaði
út handleggnum sem endaði í
andlitinu á Matthíasi.
„Þetta var alls ekki viljand. Ég
ætlaði ekki að kýla Matta. Hann
heldur í mig og ég er að reyna að
losa mig. Það var ekkert annað,“
sagði Kristján en samkvæmt
sjónvarpsupptökum virðist rauða
spjaldið hafa verið réttur dómur.
„Ég er ekki búinn að sjá atvikið
í sjónvarpinu. Ég man ekki eftir
því að hafa fundið neitt sérstak-
lega fyrir því að hafa farið í and-
litið á honum. Þetta gerist allt
mjög hratt.“
Kristján fer nú í leikbann en
við því mega Framarar illa enda
með Jón Guðna Fjóluson einnig
í banni. „Við erum með breiðan
hóp og verðum að þjappa okkur
saman. Þetta er ömurlegt en við
komumst í gegnum þetta.“ - hbg
Kristján Hauksson:
Ætlaði ekki að
kýla Matta
KRISTJÁN HAUKSSON Fékk að líta rauða
spjaldið gegn FH. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tryggvi Guðmundson ætlaði að fljúga með Keflavíkurliðinu í land eftir
2-1 sigur ÍBV á fimmtudaginn. Hann hætti þó snarlega við þar sem
Keflvíkingar voru brjálaðir út í Tryggva. Ástæðan er sú að hann var
viðriðinn atvik sem lauk með því að Guðjón Árni Antoníusson
fékk rautt spjald áður en ÍBV tryggði sér sigur.
„Ég er skiljanlega ekki sáttur. Það var greinilegt að við
áttum innkastið en Tryggvi tók boltann upp. Ég var pollróleg-
ur og ætlaði að taka boltann af honum til að taka innkastið
hratt en þá dettur hann. Ef dómarinn átti að spjalda einhvern
átti hann að spjalda Tryggva, hann veit það sjálfur að
þetta var leikaraskapur,“ sagði Guðjón sem fékk sitt
seinna gula spjald fyrir að ýta við Tryggva.
„Það er tvísýnt hver átti innkastið,“ segir
Tryggvi. „Bæði lið vilja tryggja sér sigur og ég
náði því í boltann til að taka innkastið hratt.
Við lendum saman og áður en ég veit af er
dómarinn kominn með gula spjaldið. Ég var
ekki að reyna að fiska spjald eða láta mig detta. Við rákumst bara
saman og ég stóð strax upp. Hann gerði mér ekkert,“ sagði Tryggvi.
„Ég hélt að dómarinn myndi sjá í gegnum þetta,“ segir Guðjón.
„Gunnar Jarl dómari hafði dæmt vel og beðið menn um að standa
í lappirnar. Það var dapurlegt að dómarinn skyldi falla fyrir einmitt
þessu, ég átti alls ekki skilið gult spjald,“ sagði Guðjón.
„Ég er ekki það fljótur að hugsa að ég ætli að ná í bolta til að láta
hugsanlega einhvern brjóta á mér sem er kannski með gult spjald
og getur fengið rautt. Ég er fljótur að hugsa en ekki svona
fljótur,“ segir Tryggvi en þetta er ekki í fyrsta skipti í sumar
sem andstæðingar Tryggva eru ósáttir.
„Ég verð seint valinn vinsælasti keppandinn í deild-
inni, það eru tveir búnir að fjúka út af í kringum mig
í sumar til dæmis. Ég ætlaði að fljúga með Keflavík-
urliðinu heim en hætti við vegna þess hve brjálaðir
þeir voru. Ég reyndi líka að tala við Willum þjálfara
þeirra til að skýra mína hlið en það var vonlaust.”
TRYGGVI GUÐMUNDSSON: SAKAÐUR UM LEIKARASKAP ENN Á NÝ EFTIR AÐ GUÐJÓN ÁRNI ANTONÍUSSON SÁ RAUTT
Ég verð seint valinn vinsælasti keppandinn
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í
handbolta fékk draumariðil á
heimsmeistaramótinu í handbolta
sem fer fram í Svíþjóð í janúar
á næsta ári en dregið var í gær.
Slæmu fréttirnar eru þær að í
milliriðli sem Ísland á að komast
í bíða gríðarlega erfiðir andstæð-
ingar, meðal annars heims- og Evr-
ópumeistarar Frakka.
Ísland er í riðli með Japan, Bras-
ilíu, Ungverjalandi, Austurríki og
Norðmönnum. „Norðmenn eru
góðir líkt og Ungverjar og Aust-
urríkismenn eru hættulegir. Við
þurfum að vinna riðilinn og taka
sem flest stig upp í milliriðilinn,“
sagði Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari við Fréttablaðið.
Óvíst er hvort Dagur Sigurðsson
þjálfar Austurríki á HM en liðin
voru saman í riðli á Evrópumótinu í
janúar. Þar gerðu liðin ótrúlegt 37-
37 jafntefli þar sem gestgjafarn-
ir skoruðu tvö mörk á síðustu 30
sekúndunum, jöfnunarmarkið yfir
hálfan völlinn. Ísland mætti Norð-
mönnum svo í milliriðli og fór með
eins marks sigur af hólmi, 35-34.
„Við þurfum að byrja á að kom-
ast upp úr riðlinum en ef allt er
eðlilegt eigum við að gera það. Það
borgar sig þó ekki að kalla hann
auðveldan. Öll þessi lið eru sýnd
veiði en ekki gefin, Ungverjarnir
hafa oft verið okkur erfiðir þó að
þeir séu ekki jafn góðir núna og
oft áður og það hentar okkur illa
að spila gegn þeim. Leikirnir gegn
Japan og Brasilíu eiga að enda með
sigri okkar,“ sagði Guðmundur.
„Þá tekur við gríðarlega erfiður
milliriðill, það er hreinlega ótrú-
legt að sjá hvernig þetta raðað-
ist upp,“ sagði landsliðsþjálfarinn
en riðlana má sjá í töflunni hér til
hliðar. Þrjú lið fara upp úr hverjum
riðli og taka svo stig með sér upp
í milliriðla.
„Ef við horfum á þetta í sam-
hengi er milliriðillinn lykillinn
að því að gera eitthvað á mótinu.
Hann er svakalega erfiður, miklu
erfiðari en hinn. Svíar völdu sér
riðil og völdu ekki okkar riðil með
milliriðilinn í huga. Ég skil þeirra
val vel,“ sagði Guðmundur.
Ísland er með Austurríki í riðli
fyrir forkeppni EM 2010 ásamt
Þjóðverjum sem liðið gæti mætt í
milliriðli. Þá eru einnig fyrirhug-
aðir tveir æfingaleikir við Þjóð-
verja í janúar á næsta ári, í undir-
búningi fyrir HM.
„Við munum því leika við þessi
lið rétt fyrir HM. Ég á ekki von á
því að við hættum við að spila við
Þjóðverja þó að liðin gæti mæst,
það þýðir ekkert að velta sér upp
úr því,“ sagði Guðmundur.
Hann segir svo að margt muni
velta á stöðunni á leikmönnum
þegar mótið byrjar. Einn af lykil-
mönnum liðsins, Guðjón Valur Sig-
urðsson, er til að mynda meiddur
og verður lengi frá.
Ísland spilar í Linköping í 8.500
manna höll sem nefnist Cloette
Center og í Himmelstalundshallen
í Norköpping sem tekur um 4.500
manns í sæti. hjalti@frettabladid.is
Svakalegur milliriðill er lykillinn
Ísland var nokkuð heppið með riðil á HM í handbolta en lendir í mjög sterkum milliriðli komist liðið
áfram. „Milliriðillinn er lykill að góðum árangri á HM,“ segir landsliðsþjálfarinn um dráttinn í gær.
ERFITT Aron Pálmarsson er hér í leik gegn Frökkum sem verða væntanlega andstæð-
ingar Íslands í milliriðlinum á HM. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Ný handbók um
hvali í norðurhöfum
Falleg og fróðleg
bók í þægilegu broti
ÞEKKIR ÞÚ HVALINA?
Fáanleg á ís lensku og ensku
156
síður
www.forlagid.is
Riðlarnir á HM:
A-riðill: Barein, Egyptaland, Túnis,
Þýskaland, Frakkland, Spánn.
B-riðill: Japan, Brasilía, Ungverjaland,
Austurríki, Ísland, Noregur.
C-riðill: Alsír, Ástralía, Rúmenía, Ser-
bía, Króatía, Danmörk.
D-riðill: Chile, Argentína, Slóvakía,
S-Kórea, Pólland, Svíþjóð.
FÓTBOLTI Stjörnustúlkur fóru á
kostum í átta liða úrslitum VISA-
bikars kvenna sem fór fram í gær.
Þær skoruðu fjögur mörk gegn
engu og komust örugglega í und-
anúrslitin. Soffía Gunnarsdóttir
skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna
og þær Kristrún Kristjánsdóttir og
Katie McCoy sitt hvort markið.
Óvæntustu úrslitin voru þó í
Vestmannaeyjum í gær. Þá lagði
1. deildarlið ÍBV lið Hauka sem
leikur í Pepsi-deildinni. ÍBV er í
öðru sæti í B-riðli 1. deildarinn-
ar en Haukar í níunda sæti Pepsi-
deildarinnar.
Sigurinn var þó síst of stór en
mörk ÍBV skoruðu þær Sara Rós
Einarsdóttir og Hlíf Hauksdóttir.
Þór/KA átti ekki í vandræðum
með FH í Hafnarfirðinum í gær.
Norðanstúlkur skoruðu fimm mörk
á FH sem klóraði í bakkann með
síðasta marki leiksins þegar Lili-
ana Martins skoraði. Rakel Hönnu-
dóttir skoraði tvö mörk fyrir Akur-
eyringa og hefur þar með skorað
fimm mörk í síðustu tveimur leikj-
um. Inga Dís Júlíusdóttir, Mateja
Zver og Vesna Smiljkovic skoruðu
hin mörkin.
Þá vann Valur fínan sigur á
Fylki í Árbænum, 2-0. Björk Gunn-
arsdóttir og Dóra María Lárus-
dóttir sáu um markaskorun Vals-
kvenna sem eiga titil að verja.
Dregið verður í undanúrslitin á
þriðjudaginn. - hþh
Átta liða úrslit VISA-bikars kvenna fóru fram í gær:
Eyjastúlkur áfram
STJÖRNUSIGUR Myndin er úr leik Stjörnunnar og Grindavíkur í gær þar sem Stjörnu-
stúlkur unnu stórsigur þrátt fyrir einbeitingu Suðurnesjastúlkna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
> ÍR jafnar topplið Leiknis á nýjan leik
ÍA og ÍR skildu jöfn í 1. deild karla í knattspyrnu í gær. Það
eina markverða sem gerðist í fyrri hálfleik var dauðafæri
Kristjáns Ara Halldórssonar sem komst einn gegn opnu
marki en skaut í stöngina og í kjölfarið í slána eftir mikinn
darraðardans. Arnar Már Guðjónsson skoraði fyrir ÍA af
stuttu færi eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik en þremur
mínútum síðar jafnaði Elvar Lúðvík Guðjónsson
með skalla eftir hornspyrnu. ÍA var nær því að
tryggja sér sigurinn, þeir áttu tvö skot í slána
í sömu sókninni undir lok leiksins. ÍA er efst
ásamt Leikni og Víkingi en hefur leikið tveim-
ur leikjum meira. Njarðvík vann góðan sigur á
Fjölni á heimavelli með einu marki gegn engu
og Þróttur og Grótta gerðu 2-2 jafntefli.