Fréttablaðið - 10.07.2010, Síða 72
44 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Frægasta dýr veraldar
í dag er klárlega kolkrabbinn
Paul. Hann hefur verið ótrúlega
getspakur hingað til á HM og
því beið heimsbyggðin spennt
eftir því að sjá spá hans fyrir
úrslitaleik HM.
Sem fyrr voru sett tvö
matarbúr ofan í vatnstankinn
hjá Palla. Annað hólfið var
með fána Spánar og hitt með
fána Hollands. Palli var ekki
að eyða neinum tíma í vitleysu
að þessu sinni og óð beint í
Spánarkassann. Hann leit varla á
hollenska kassann. Það veit á gott
fyrir Spánverja.
Paul spáði einnig fyrir um
bronsleikinn á mótinu og þar vill
Palli meina að Þýskaland vinni
Úrúgvæ. Paul hefur haft rétt
fyrir sér um alla leiki Þjóðverja
á mótinu og því munu eflaust
margir setja pening á þýska liðið
í leiknum.
Þó svo Palli spái Spánverjum
sigri er ekki öll nótt úti enn
hjá Hollendingum. Hann er
nefnilega frægur fyrir að klikka
á ögurstundu.
Palli hefur aðeins einu sinni
giskað vitlaust og það var fyrir
úrslitaleik EM 2008. Þá spáði
Palli Þjóðverjum sigri á Spáni en
Spánverjar unnu þann leik eins
og flestir ættu að vita.
- hbg
Kolkrabbinn Paul:
Spáir Spáni
sigri á HM
KOLKRABBINN PAUL Hefur hann enn og
aftur rétt fyrir sér? NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI FIFA hefur gefið út lista
yfir þá tíu leikmenn sem koma
til greina í vali á besta leikmanni
HM 2010. Sá hinn sami hlýtur
hinn eftirsótta Gullbolta.
Það er fátt sem kemur þar á
óvart. Spánverjar eiga þrjá full-
trúa – Xavi, Iniesta og David
Villa – á topp tíu.
Hollendingarnir Wesley Sneij-
der og Arjen Robben eru líka á
listanum sem og Þjóðverjarnir
Bastian Schweinsteiger og Mesut
Özil.
Úrúgvæinn „Deadly“ Diego
Forlan er að sjálfsögðu á listan-
um sem og Lionel Messi og Gana-
maðurinn Asamoah Gyan.
Besti ungi leikmaðurinn fær
einnig verðlaun og þar stendur
valið á milli Þjóðverjans Thom-
as Muller, Mexíkóans Giovani
Dos Santos og Ganverjans Andre
Ayew. - hbg
Búið að tilnefna þá bestu:
Hver fær Gull-
boltann?
BESTUR? Spánverjinn David Villa þykir
líklegur til að fá Gullboltann.
NORDIC PHOTOS/AFP
HM 2010 Hápunktur heimsmeistarakeppninnar
í knattspyrnu er klukkan 18.30 á sunnudaginn
er sjálfur úrslitaleikurinn fer fram. Það er evr-
ópskur úrslitaleikur enda leikur á milli Spánar
og Hollands. Leikurinn verður alltaf söguleg-
ur enda mun önnur hvor þjóðin lyfta bikarnum
í fyrsta skipti.
Bikarnum, sem nú er keppt um, var í fyrsta
skipti lyft árið 1974. Þá var Holland einmitt í
úrslitaleiknum en tapaði gegn Vestur-Þýska-
landi. Franz Beckenbauer fékk því fyrstur allra
að hampa gylltu styttunni glæsilegu sem Ítal-
inn Silvio Gazzaniga hannaði. Hún er rúm 6
kíló að þyngd.
Leikmenn Spánar geta orðið goðsagnir
Fari svo að Spánverjar vinni leikinn munu leik-
menn liðsins rita nöfn sín gylltu letri í knatt-
spyrnusöguna. Spánn verður með sigri handhafi
bæði Evrópumeistaratitilsins og heimsmeistara-
titilsins. Sigur þýðir að liðsins verður minnst
sem eins besta knattspyrnulandsliðs allra tíma.
Spánn hefur oft átt frábær landslið en aldrei
hafði þjóðinni áður tekist að komast í undan-
úrslit á HM. Þetta spænska lið er því að
rita spænska knattspyrnusögu upp á
nýtt.
Carles Puyol var hetja Spán-
verja í undanúrslitaleiknum og
takist honum að verða í sigurliði
á morgun hefur honum tekist að
vinna nánast allt sem hægt er
að vinna í boltanum enda leik-
ur hann í sigursælu liði Barce-
lona.
„Það er mjög ánægjulegt að
vera kominn í þennan úrslitaleik.
Ég mun skoða framhaldið með
landsliðinu eftir mótið. Ég er ekki
búinn að taka ákvörðun um að hætta
í landsliðinu,“ sagði Puyol sem er
afar stoltur af því að vera kominn í
úrslitaleikinn.
„Við eigum skilið að vera í þessum
leik. Allt liðið getur ekki beðið eftir þess-
um leik og ætlar sér stóra hluti. Þetta
verður flókinn leikur því bæði lið eru
mjög öflug og vilja halda boltanum. Það
eru alltaf jafnar líkur í úrslitaleikj-
um. Við vorum sigurstranglegastir
fyrir mótið en þá töpuðum við fyrir
Sviss. Það var slys,“ sagði Puyol en
ekkert lið hefur unnið HM eftir
að hafa tapað fyrsta leik sínum á mót-
inu. Spánn getur breytt því.
Það er oft sagt að hollenska landslið-
ið árið 1974 sé besta landslið sem vann
ekki HM. Hollendingar fengu aftur
tækifæri fjórum árum síðar en þá tap-
aði liðið fyrir Argentínu. 32 ára bið Hol-
lands er nú á enda og þjálfarinn, Bert
van Marwijk, segir að liðið í dag sé ekk-
ert að velta sér upp úr fyrri töpum Hol-
lands í úrslitum HM.
Fortíðin skiptir engu máli
„Ég hugsa ekkert um það og leikmennirn-
ir ekki heldur. Við erum aðeins að hugsa
um þennan úrslitaleik. Það sem gerðist
í fortíðinni skiptir engu máli núna. Það
eru engin leyndarmál á milli þessara
liða. Við þekkjumst mjög vel og við
erum ekki hræddir við Spánverjana,“ sagði Van
Marwijk og bætti við.
„Ég get ekki neitað því að Spánn er að spila
aðeins betri fótbolta en við á þessu móti. Þeir
halda boltanum ótrúlega vel og án boltans eru
þeir fljótir að hreyfa sig. Þetta verður áhuga-
verður leikur tveggja liða sem vilja halda bolt-
anum.“
Flestir sparkspekingar eru á því að Spánn sé
líklegri til þess að vinna leikinn. Það truflar
ekki Van Marwijk að hans lið sé „litla“ liðið í
leiknum.
„Mér er alveg sama þótt allur heimurinn segi
að Spánn sé sigurstranglegri. Þetta er leikur
tveggja þjóða, milli tveggja liða og bæði lið
geta unnið. Við höfum fulla trú á okkar getu.
Við virðum spænska liðið en erum ekki hrædd-
ir. Það er mikil áskorun að mæta þessu liði og
vinna það.“ henry@frettabladid.is
Nýtt nafn ritað á HM-bikarinn
Úrslitaleikur HM 2010 fer fram á morgun. Þá mætast Spánn og Holland. Hvorugt liðið hefur áður unnið
HM og því kemur nýtt nafn á bikarinn. Holland hefur tvisvar áður komist í úrslit en tapað í bæði skiptin.
Spánn er í sínum fyrsta úrslitaleik. Liðið getur þó stimplað sig inn sem eitt það besta í knattspyrnusögunni.
STJÖRNURNAR Hollendingurinn Wesley Sneijder og Spánverjinn David Villa hafa verið hetjur sinna
liða hingað til á HM. Báðir hafa hæfileika til þess að gera út um úrslitaleikinn. NORDIC PHOTOS/AFP