Fréttablaðið - 10.07.2010, Síða 78

Fréttablaðið - 10.07.2010, Síða 78
50 10. júlí 2010 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN „Þetta var í nýjasta þætti Amer- ica‘s Next Top Model og það var eiginlega bara tilviljun að við rákum augun í þetta. Yfirleitt láta pressuskrifstofur mann vita af svona löguðu, en við erum ekki með slíka í Bandaríkjunum þannig það er erfiðara fyrir okkur að fylgjast með þar,“ útskýrir Gunn- ar Hilmarsson, eigandi hönnunar- fyrirtækisins Andersen & Lauth, en keppandi í hinum geysivinsæla sjónvarpsþætti, America‘s Next Top Model, sást klæðast vesti frá Andersen & Lauth í einni mynda- tökunni. Vestið er úr haust/vetrarlínu fyrirtækisins sem kom út síð- asta haust og segir Gunnar ávallt gaman þegar svona lagað gerist. „Þetta var ekki í gegnum okkur og við teljum að einhver stílist- inn hafi líklega keypt vestið ein- hvers staðar því við lánuðum það ekki sjálf. Við erum enn ekki farin að selja vörur okkar eins skipulega í Bandaríkjunum og við gerum í Evrópu og því kemur það manni enn svolítið á óvart þegar ég sé fólk klæðast hönnun minni í Bandaríkjunum,“ segir Gunnar, en Fréttablaðið greindi frá því í desember í fyrra að sést hafi til söngkonunnar Gwen Stefani í flík frá Andersen & Lauth. Gunnar er um þessar mundir staddur í Miami ásamt fjölskyldu sinni þar sem hann hleður batterí- in fyrir tískuvikurnar sem hefjast í ágúst. „Við notum mars, apríl og maímánuði í að teikna vorlínuna fyrir næsta ár. Svo kemur stutt hlé sem maður nýtir gjarnan í frí áður en maður hefur undirbúning fyrir tískuvikurnar sem hefjast í ágúst og standa fram á haust. Það er heilmikill undirbúningur sem fylgir slíkum sýningum og nóg að gera.“ - sm Andersen & Lauth í Top Model HEPPILEG TILVILJUN Gunnar Hilm- arsson, eigandi Andersen & Lauth, sá hönnun sína í sjónvarpsþættinum America‘s Next Top Model. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR „Við vorum að fá staðfestingu á að okkur er boðið í partí á mánudags- kvöldið. Það er sko mikið ferli að komast inn í þessi playboy-partí og allir verða að senda mynd og umsókn sem síðan er yfirfarin af starfsmönnum Playboy. Það má því kalla þetta ákveðinn heiður fyrir okkur að komast inn,“ segir Alma, söngkona í hljómsveitinni The Charlies, hlæjandi og viður- kennir að þær séu allar spenntar að berja Playboy-höllina augum en að þetta sé um leið mjög skrýt- ið og frekar fyndið. Í staðfestinga- bréfi frá aðstandendum partýsins kemur fram að 3.000 manns hafi sótt um að komast í partýið og að mikil öryggisgæsla verði á svæð- inu enda margir frægir á gesta- listanum. Hljómsveitin The Charlies, sem er skipuð þeim Ölmu, Klöru og Steinunni, er að taka upp tón- list í samvinnu við eitt af virt- ari plötuútgáfum í heimi, Holly- wood Records. Stúlkurnar fá að vinna með þeim bestu í bransan- um og eru á næstunni að fara að hitta upptökustjórann JR Rotem sem meðal annars hefur unnið með Rihönnu og Britney Spears. „Lífið er bara alveg dásamlegt hérna. Við þurfum eiginlega að klípa okkur á hverjum degi til að fatta að við séum í raun og veru að upplifa drauminn okkar,“ segir Alma en lífið er spennandi í borg englanna. Mikið fjaðrafok hefur verið í kringum Hugh Hefner síðustu daga en fyrrum kærasta hans, Kendra Wilkinson, var að gefa út ævisögu sína þar sem hún afhjúpar leyndardóma Playboy- veldisins. Það sem hefur vakið mesta athygli er að Wilkinson segir að stúlkurnar í partíun- um hafi verið í röð inn á svefn- herbergi Hugh Hefners. „Já, við erum aðeins búnar að vera að fylgjast með þessu en get sko lofað þér að við erum ekkert að fara að stilla okkur upp í neina röð,“ segir Alma glöð í bragði en stúlkurnar verða að láta sjá sig í partíum og á flottum skemmti- stöðum sem er liður í að kynnast rétta fólkinu og koma sér áfram í hörðum bransa. „Okkar hversdagur er reyndar frekar einhæfir en við förum á æfingu og erum svo uppi í stúd- íói að taka upp alla daga,“ segir Alma en sveitin er núna að leggja lokahönd á fjögurra laga plötu sem mun koma út á næstunni. „Við erum með árs atvinnuleyfi og svo sjáum við bara til. Það er mjög erfitt að skipuleggja eitt- hvað í þessum bransa enda hlut- irnir fljótir að breytast. Núna erum við að njóta augnabliks- ins og taka þetta allt inn,“ segir Alma en stúlkurnar sakna þó ást- vinanna á Íslandi. „Það er alveg erfitt að vera svona langt í burtu frá öllum. Við komumst ekki heim fyrr en um jólin næst. Það er því mjög gott að vera þrjár saman hérna. Við gerum allt saman og það er því gott að okkur kemur vel saman.“ alfrun@frettabladid.is ALMA GUÐMUNDSDÓTTIR: NÓG AÐ GERA HJÁ CHARLIES Í LOS ANGELES Partí í Playboy-setrinu Á SLÓÐIR HEFNERS Alma, Klara og Steinunn eru að fara í partí í Playboyhöllinni hans Hugh Hefner um helgina. Stelpurnar komust í gegnum mikið umsóknarferli enda Play- boy-partíin eftirsóknarverð og gestalistinn stútfullur af frægum nöfnum. LÁRÉTT 2. eyja í asíu, 6. hvort, 8. húðsepi milli táa, 9. borg, 11. tveir eins, 12. súla, 14. afdrep, 16. stefna, 17. runa, 18. að, 20. fyrir hönd, 21. liðormur. LÓÐRÉTT 1. erindi, 3. frá, 4. vitsmunamissir, 5. sigað, 7. pedali, 10. samræði, 13. ferskur, 15. sjá eftir, 16. erlendis, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. java, 6. ef, 8. fit, 9. róm, 11. tt, 12. stöng, 14. skýli, 16. út, 17. röð, 18. til, 20. pr, 21. igla. LÓÐRÉTT: 1. vers, 3. af, 4. vitglöp, 5. att, 7. fótstig, 10. mök, 13. nýr, 15. iðra, 16. úti, 19. ll. „Það er mjög flott að heyra þessar ólíku tón- listarstefnur saman í einu lagi. Þetta er óvana- legt og áhugavert samstarf,“ segir tónlistar- maðurinn Daníel Ágúst Haraldsson um lagið Þriggja daga vakt sem er samstarfsverkefni þriggja vinsælla hljómsveita: Gus Gus, Hjalta- lín og Ný Dönsk. Birgir Þórarinsson, betur þekktur sem Biggi Veira, úr hljómsveitinni Gus Gus hefur verið að taka á móti sveitunum í stúdíói síð- ustu daga og er nú að leggja lokahönd á lagið. „Þeir sem hafa heyrt taktinn undir segja að þetta sé mitt besta verk. Ég verð bara að miðla því áfram,“ segir Biggi hlæjandi en lagið var ný áskorun fyrir hann enda sveitirnar ólíkar. „Okkur langaði að gera lag í tengslum við hátíðina og fengum þessa hugmynd sem allir voru til í að framkvæma. Björn Jörund- ur samdi texta, Högni syngur annað erindið og Stefán Hjörleifsson samdi flott gítarsóló,“ segir Biggi en þetta er í fyrsta sinn sem hann setur gítarsóló í eitthvert lag. „Þetta er brot af því besta frá öllum sveit- um. Popp, rokk og teknó. Maður kemst sko í gott skap af því að hlusta á lagið og er mjög dansvænt,“ fullyrðir Daníel en þetta er í fyrsta sinn sem þessar hljómsveitir leiða saman hesta sína. Lagið kemur út í tengslum við tónlistarhátíðina Þriggja daga vakt sem verður á Akureyri um verslunarmannahelg- ina, þar sem sveitirnar munu koma fram. „Við höldum að þessi þrenning sé ósigrandi um verslunarmannahelgina og að þetta verði ein þriggja daga tónlistarveisla fyrir alla.“ - áp Hjaltalín, Gus Gus og Ný dönsk semja lag BIGGI VEIRA OG DANÍEL ÁGÚST Leggja lokahönd á lagið Þriggja daga vakt þar sem vinsælustu sveitir landsins, Hjaltalín, Gus Gus og Nýdönsk, koma saman. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Eygló Hilmarsdóttir Aldur: Ég er 18 ára. Starf: Er nemi við Menntaskól- ann í Reykjavík. Fjölskylda: Ég á 3 systkini og foreldra, 3 ketti, 3 hænur og 1 hund. Foreldrar: Hilmar Jónsson og Sóley Elíasdóttir. Búseta: Hafnarfjörður. Stjörnumerki: Naut. Eygló Hilmarsdóttir fer með hlutverk í kvikmyndinni Gauragangi sem tökur hófust á nú á dögunum. Lækjargata 2a 101 R. sími 511-5001 opið alla daga 9.00 - 22.00 30% afsl. Vikutilboð fullt verð 2.490,- tilboð 1.745,- fullt verð 2.490,- tilboð 1.745,- Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur ákveðið að flytja til London í byrjun september. Þar getur hann prófað sig enn frekar áfram í tónlist- inni og á auðveldara með að koma sér á framfæri. Á heimasíðu sinni segist hann jafnframt vera „búinn að klára Reykja- vík í bili“ og á þar við að hann vilji einfaldlega reyna fyrir sér á stærri markaði. Á sama tíma er Besti flokkurinn rétt að byrja með Reykjavík og eru því systkinin Snorri og Heiða Kristín, aðstoðarmaður Jóns Gnarr borg- arstjóra, á öndverðum meiði hvað varðar framtíð sína í borginni. Undirbúningshópur um bíótek í Regnbogan- um, sem Ásgrímur Sverrisson er í forsvari fyrir, fagnar því að þetta gamalgróna bíó hafi fengið 12 milljóna styrk til áframhald- andi starfsemi. Ný starfsemi verður í bíóinu, meðal annars Kvikmynda- miðstöð Íslands, skólasýningar fyrir börn og unglinga og kaffihús, auk þess sem kvikmyndahátíðir fá þar góðan sess. Núna um helgina verður auglýst eftir framkvæmdastjóra bíóteksins og verður forvitnilegt að vita hver hreppir þessa eftirsóknar- verðu stöðu sem indí-bíókóngur miðbæjarins. Eins og Fréttablaðið greindi frá í vik- unni þá er rokksöngvarinn Jenni úr hljómsveitinni Brain Police á leiðinni til Danmerkur þar sem hann ætlar að leggja stund á rafmagnsverkfræði. Annar góður tónlistarmaður, tromm- arinn Bjössi í Mínus, verður þar einnig næsta haust þar sem hann komst inn í leiklistarskóla. Mínus og Brain Police spiluðu oft saman þegar hljómsveitirnar voru upp á sitt besta og nú velta menn fyrir sér hvort félag- arnir þurfi ekki að leita að gítar- og bassaleikara og stofna nýja hljóm- sveit. - fb, afb FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 10. 1 Breiðablik. 2 Bjössi í Mínus. 3 Fyrir utan höfuðstöðvar AGS.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.